Louvre neitaði að sýna dýrasta málverk sögunnar á forsendum krónprins Sádi-Arabíu

Mohammad bin Salman vildi að að mál­verk í hans eigu yrði sýnt við hlið Monu Lisu á sýn­ingu Louvre og verkið sagt eftir Leonardo að öllu leyti. Það hefði verið líkt og að þvætta 450 milljón dala verk að mati við­mæl­anda nýrrar heim­ild­ar­myndar um mál­verkið.

Verðir standa vörð um Salvator Mundi í útibúi Christie's í London. Myndin var seld hjá Christie's í New York fyrir 450 milljón Bandaríkjadali í nóvember árið 2017.
Verðir standa vörð um Salvator Mundi í úti­búi Christie's í London. Myndin var seld hjá Christie's í New York fyrir 450 milljón Banda­ríkja­dali í nóv­em­ber árið 2017. Mynd: EPA

Mohammed bin Salman, krón­prins Sádi-Arabíu, neit­aði að lána Louvre safn­inu mál­verkið Salvator Mundi sem er í eigu krón­prins­ins en það er dýrasta mál­verk í heimi. Safnið fal­að­ist eftir því að fá mál­verkið lánað á gríð­ar­stóra sýn­ingu á verkum Leon­ar­dos da Vinci sem haldin var á safn­inu árið 2019 á 500 ára ártíð lista­manns­ins. Ástæða þess að krón­prins­inn vildi ekki lána verkið var sú að stjórn­endur safns­ins vildu ekki sam­þykkja kröf­urnar sem krón­prins­inn setti fyrir lán­inu.

Krón­prins­inn bað sér­stak­lega um að verkið yrði sýnt við hlið Monu Lisu á sýn­ing­unni og að það yrði merkt sem höf­und­ar­verk Leon­ar­dos en það er umdeilt hversu stóran hluta verks­ins er í raun og veru hægt að eigna Leonardo. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri heim­ild­ar­mynd um verkið sem ber heitið The Savior for Sale en fjallað er um málið íThe Art Newspaper. [links]

Mál­verkið var selt á upp­boði upp­boðs­húss­ins Christie’s í New York í nóv­em­ber árið 2017. End­an­legt kaup­verð mynd­ar­innar var 450 millj­ónir Banda­ríkja­dala, í kringum 47 millj­arðar króna á gengi þess tíma. Þegar verk helstu meist­ara lista­sög­unnar eru seld á upp­boðum stóru upp­boðs­hús­anna er alla jafna farið var­lega í allar stað­hæf­ingar um hver höf­undur mynd­ar­innar sé. Liggi ekki fyrir skot­held eig­enda­saga eða skrá­setn­ing á sögu verks­ins eru verk því gjarnan sögð hafa verið unnin á vinnu­stofu til­tek­ins lista­manns eða af hendi fylgj­anda lista­manns­ins. Svo var ekki í til­viki Salvator Mundi – hún var seld sem mynd eftir Leonardo da Vinci.

Lán verksins rætt á leiðtogafundi Frakka og Sáda

Í kvik­mynd­inni The Savior for Sale er rætt við hátt­settan emb­ætt­is­mann sem starfar innan stjórnar Emmanu­els Macron Frakk­lands­for­seta. Emb­ætt­is­mað­ur­inn, sem kemur fram undir dul­nefn­inu Jacques, segir í mynd­inni að eftir ítar­legar rann­sóknir sér­fræð­inga Louvre safns­ins hafi komið í ljós að mál­verkið hafi að litlum hluta verið málað af Leonardo sjálfum.

Annar heim­ild­ar­maður, emb­ætt­is­maður úr menn­ing­ar­mála­ráðu­neyti Frakka sem gengur undir dul­nefn­inu Pierre, gerir í mynd­inni grein fyrir hlut­verk mál­verks­ins í flóknum milli­ríkja­samn­ingum ríkj­anna tveggja, Frakk­lands og Sádi-Arabíu. Viðræður um lán á verk­inu fóru fram á sér­stökum leið­toga­fundi ríkj­anna tveggja sem hald­inn var í apríl árið 2018. Menn­ing­ar­mál voru ofar­lega á baugi á leið­toga­fund­inum en þar var Al-Ula samn­ing­ur­inn und­ir­rit­aður. Samn­ing­ur­inn felur í sér aðkomu Frakka að upp­bygg­ingu Al-Ula hér­aðs með það að mark­miði að festa hér­aðið í sessi sem menn­ing­ar­miðju.

Tekið var á móti Mohammed með pompi og prakt í París enda voru miklir við­skipta­hags­munri Frakka tryggðir með samn­ingnum. Að sögn Pierre voru frönsk stjórn­völd með­vituð um að það væri mik­il­vægt fyrir ímynd Mohammeds bin Salman að á hann væri litið sem mann sem væri að nútíma­væða Sádi-Arabíu og „opna“ landið menn­ing­ar­lega.

Málað að litlum hluta af Leonardo

Heim­ild­ar­mað­ur­inn Jacques segir mál­verkið hafa komið til Parísar í júní 2019 og þá hafi sér­fræð­ingar Louvre safns­ins hafið rann­sókn á verk­inu. Teknar voru röntgen myndir af mál­verk­inu og aðal­sýn­ing­ar­stjóri í mál­verka­deild Louvre safns­ins kall­aði inn sér­fræð­inga víðs vegar að úr heim­inum til að skoða mynd­ina. Öll rök hnigu að því að Leonardo hefði ein­ungis málað lít­inn hluta mynd­ar­innar. Sú nið­ur­staða var svo kynnt fyrir Sádunum sem og hvaða þýð­ingu nið­ur­staðan myndi hafa á sýn­ing­una. Það væri enda Louvre að ákveða í hvaða sam­hengi mál­verkið yrði sýnt.

Mohammad bin Salman var allt annað en sáttur með fram­vindu mála. Hann lagði í kjöl­farið fram ósk sína sem áður hefur verið minnst á. Myndin skyldi sýnd við hlið­ina á Monu Lisu og hún merkt sem mál­verk eftir Leonardo. Við tóku strangar samn­inga­við­ræður og er það full­yrt í mynd­inni að ráð­herrar bæði menn­ing­ar­mála og utan­rík­is­mála í Frakk­landi hafi dregið taum krón­prins­ins og talað máli hans.

Sýning verksins líkt við peningaþvætti

Á þessum tíma­punkti stóð und­ir­bún­ingur fyrir sýn­ing­una sem hæst. Sýn­ing­ar­skrá var sett saman í tveimur útgáfum, önnur útgáfan var gerð fyrir sýn­ingu með Salvator Mundi og hin fyrir sýn­ingu án verks­ins.

Það var sjálfur Frakk­lands­for­seti sem sá um ákvörð­un­ar­töku í mál­inu og undir lok sept­em­ber­mán­aðar kom loka­svar frá Elysée höll. Macron ætl­aði ekki að verða við óskum krón­prins­ins. Þegar sýn­ingin var opnuð 21. októ­ber 2019 var því engan Salvator Mundi þar að finna.

Heim­ild­ar­mað­ur­inn Jacques segir í mynd­inni að trú­verð­ug­leiki safns­ins hafi legið að veði og að ekki hefði verið hægt að sýna verkið á safn­inu og hunsa þar með nið­ur­stöðu helstu sér­fræð­inga í mál­inu. Að hans mati var vilji utan­rík­is­ráð­herra Frakka sem og mennta­mála­ráð­herra til að sýna verkið ein­ungis til­kom­inn vegna við­skipta­hags­muna. Hefði safnið sýnt verkið á for­sendum Sádanna þá væri það ekk­ert annað en þvætti á 450 milljón dala lista­verki að mati Jacques.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár