Eins og í lygasögu

Þekktur banda­rískur pró­fessor hefur verið kærður fyrir að halda fræðslu­fyr­ir­lestur hjá starfs­fólki danska skatts­ins og skatta­nefnd danska þings­ins. Þyngsta refs­ing við slíku broti er brott­vísun úr landi.

Brooke Harrington.
Brooke Harr­ington.

Brooke Harr­ington hefur und­an­farin átta ár búið í Danmörku og allan þann tíma verið pró­fessor við Við­skipta­há­skól­ann í Kaup­manna­höfn, CBS. Hún er almennt álitin í hópi helstu sér­fræð­inga varð­andi skatta­mál, einkum hvað varðar alls kyns und­an­skot og leiðir til að fela fjár­muni í þeim afkimum heims­ins sem iðu­lega eru nefndir skattaparadísir. Kunnátta hennar snýr að leiðum til að upp­lýsa og koma í veg fyrir skatta­laga­brot.

Vegna yfir­burða­þekk­ingar sinnar á þessu sviði er Brooke Harr­ington mjög eft­ir­sótt sem fyr­ir­les­ari og síðan hún flutti til Dan­merkur, fyrir átta árum, hefur hún haldið ótal fyr­ir­lestra, í háskólum, hjá stétt­ar­fé­lögum, karla- og kvenna­klúbbum, og fyr­ir­tækjum.

Suma þess­ara fyr­ir­lestra hefur hún þegið greiðslu fyrir, aðra ekki. Í ráðn­ing­ar­samn­ingi pró­fess­ora við Við­skipta­há­skól­ann stendur að meðal starfs­skyldna þeirra sé að miðla af þekk­ingu sinni til lærðra og leikra og Brooke Harr­ington hefur í við­tölum sagt að hún hafi lagt sig fram um að fara eftir þessu ákvæði í ráðn­ing­ar­samn­ingnum. Hún hefur reyndar ekki getað orðið við nema litlum hluta þeirra beiðna sem henni hafa borist „ég kemst ein­fald­lega ekki yfir nema brot af því sem ég er beðin um“.

Skatturinn og skattanefnd þingsins óskaði eftir fræðsluerindi

Fyrir nokkru fékk Brooke Harr­ington beiðni um að halda fræðslu­er­indi fyrir sér­fræð­inga dönsku skatt­stof­unnar, Skat, og skatta­nefnd danska þings­ins. Þeir sem fylgj­ast með dönskum fréttum vita að starfs­fólki Skat veitir ekki af, í ljósi fréttaum­fjöll­unar síð­ustu ára, af allri þeirri fræðslu sem völ er á. Sama gildir um skatta­nefnd þings­ins. Brooke Harr­ington brást vel við beiðn­inni og hélt fyr­ir­lest­ur­inn eins og um var samið og við­staddir hafa síðan lýst í við­tölum að þeir hafi orðið margs vís­ari við að hlýða á pró­fess­or­inn.

[adspot]

Lögreglan lagði fram kæru

Þótt þeir sem hlýddu á áður­nefndan fræðslu­fyr­ir­lestur væru ánægðir með það sem fyr­ir­les­ar­inn hafði að segja verður ekki sama sagt um starfs­fólk SIRI, sér­deildar inn­flytj­enda­ráðu­neyt­is­ins. Það var þó ekki fyr­ir­lest­ur­inn sem slíkur sem fór fyrir brjóstið á SIRI heldur það að pró­fessor Brooke Harr­in­tgon skyldi halda fyr­ir­lest­ur­inn, án þess að hafa fengið til þess sér­stakt leyfi. Hún má semsé ekki halda fyr­ir­lestur fyrir þing­menn og sér­fræð­inga (og reyndar hvern sem er utan skól­ans) án þess að hafa til þess leyfi frá áður­nefndri sér­deild. Rétt er að taka fram að þessi regla gildir ekki um þennan eina pró­fessor, allir sem ráðnir eru til til­tek­inna starfa í Danmörku, og fá land­vist­ar­leyfi sem slíkir, mega ekki starfa við annað en það sem leyf­is­veit­ingin nær til. Reglan nær ekki til borg­ara ESB ríkj­anna og ann­arra íbúa evr­ópska efna­hags­svæð­is­ins, t.d. Íslend­inga.

Kæran ekki einsdæmi

Kæran sem lög­reglan lagði fram vegna fræðslu­er­indis Brooke Harr­ington er síður en svo eins­dæmi. Í Danmörku starfa tug­þús­undir útlend­inga, sumir þeirra sér­fræð­ingar, aðrir ekki. Við Kaup­manna­hafn­ar­há­skóla starfa til að mynda 700 sér­fræð­ingar frá löndum utan Evr­ópu­sam­bands­ins. Fyrir ári síðan fékk ástr­alski óbó­leik­ar­inn Rachel Bullin 33 þús­und króna sekt (um það bil 542 þús­und íslenskar) fyrir að hlaupa í skarðið hjá Sin­fón­íu­hljóms­sveit­inni í Kolding á Suður-Jótlandi. Kold­ing­borg fékk jafn­framt 80 þús­und króna sekt (um það bil 1,4 millj­ónir íslenskar). Verk­fræði­nem­inn Marius Yuobi frá Kamerún slapp ekki með sekt, honum hafði orðið það á að vinna 16 klukku­tíma eina vik­una, við hrein­gern­ingar, en hafði aðeins leyfi fyrir 15 klukku­stundum. Fyrir þetta brot var honum vísað úr landi. Það mál vakti mikla athygli og Marius Youbi kom aftur til Dan­merkur nokkru síðar „ég fylgist vel með klukk­unni þegar ég er í vinn­unni“ sagði hann bros­andi í við­tali við danskt dag­blað.

Svona eru reglurnar segir ráðherrann

Mál Brooke Harr­ington hefur vakið mikla athygli í Danmörku. Kannski ekki síst vegna þess að brot hennar fólst í því að fræða hátt­setta emb­ætt­is­menn, og þing­menn, um skatta­mál. Hún hefur eins og áður var getið haldið fjöld­ann af fyr­ir­lestrum án þess að starfs­fólk SIRI gerði athuga­semdir. Fjöl­miðlar hafa greint frá því að í sumum til­vikum hafi þeir sem báðu um fyr­ir­lest­ur­inn sótt um und­an­þág­una, stundum hafi hreint ekki verið sótt um slíkt og Brooke Harr­ington hefur stundum sjálf sótt um þetta sér­staka leyfi (umsóknin er á 19 síðum). Inger Stöjberg ráð­herra inn­flytj­enda­mála seg­ist ánægð með að SIRI fólkið vinni sitt verk en hún telji sjálf­sagt að gera breyt­ingar á regl­unum til að mæta því sem hún kallar „sér­stök til­vik“.

Þingmenn krefjast breytinga

Fjöl­margir þing­menn, þar á meðal Lars Lökke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra, hafa tjáð sig um Brooke Harr­ington málið, eins og það er kallað, og eru á einu máli um að regl­urnar séu algjör­lega út í hött. Lars Lökke hefur margoft, síð­ast í ræðu fyrir nokkrum dögum, talað um gagn­semi þess að við háskóla lands­ins starfi erlendir sér­fræð­ingar sem jafn­framt miðli af þekk­ingu sinni utan veggja skól­anna. Mette Reissmann þing­maður Sós­í­alde­mókrata sagði í blaða­við­tali að erlendir fræði­menn hefðu tak­mark­aðan áhuga á að koma til Dan­merkur ef þeir vissu að þeir ættu á hættu að verða sektaðir og jafn­vel reknir úr landi „det er helt ude i hampen, det er helt godnat“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár