Víðir: Getum ekki sest í hægindastólinn og slakað á

Þrátt fyrir að útlit sé fyrir að árangur sé að nást af hertum sótt­varna­að­gerðum inn­an­lands og til­slak­anir séu framundan er ekki kom­inn til að hætta að huga að smit­vörnum. Sá tími kemur ekki á meðan að veiran er til staðar, segir Víðir Reyn­is­son.

Víðir Reynisson á upplýsingafundi almannavarna í dag.
Víðir Reyn­is­son á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Mynd: Lögreglan

„Þó svo að við séum að boða ein­hverjar til­slak­anir hérna þá er það ekki þannig að við getum sest aftur í hæg­inda­stól­inn og slakað á. Það gilda og munu gilda áfram svo lengi sem þessi veira er í sam­fé­lag­inu, ein­stak­lings­bundnar smit­varnir, sem ganga út á að þvo á sér hend­urnar, spritta á sér hend­urnar, þvo sam­eig­in­lega snertifleti, að vera í ekki of stórum hópum og halda þess­ari fjar­lægð sem er í gildi – tveir metr­arnir eru grunn­reglan í því,“ sagði Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn við lok 101. upp­lýs­inga­fundar almanna­varna í dag.[links]

Hann sagði, rétt eins og Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir, að nú virt­ist sem við værum að ná stjórn á þess­ari bylgju far­ald­urs­ins. Vænt­an­lega myndu fleiri grein­ast næstu daga, en við ættum ekki að láta það slá okkur út af lag­inu, heldur halda áfram að berj­ast gegn veirunni með þeim ráðum sem við höfum til­tæk.

Víðir þakk­aði öllum þeim sem hefðu tekið þátt í því að vinna góða vinnu til þess að halda sam­fé­lag­inu gang­andi með þeim sótt­varna­ráð­stöf­unum sem hafa verið í gildi frá því fyrir versl­un­ar­manna­helgi.

Rætt um ungt fólk eins og „geimverur“

Staða ungs fólks í þessum far­aldri var sér­stak­lega tekin til umræðu á upp­lýs­inga­fund­inum í dag, en 37 pró­sent allra þeirra sem greinst hafa með veiruna í þeim hóp­sýk­ingum sem komið hafa upp und­an­farnar vikur hafa verið á aldr­inum 18-29 ára.

[adspot]

Eitthvað hefur borið á gagn­rýni í garð atferlis ungs fólks í þessum far­aldri – og það verið haft á orði að leið­bein­ingar almanna­varna og heil­brigð­is­yf­ir­valda séu ekki að ná nægi­lega vel til yngstu hópanna. Una Hild­ar­dóttir, for­seti Lands­sam­bands ung­menna­fé­laga, var á fund­inum og sagði að mik­il­vægt væri fyrir yfir­völd og fjöl­miðla lands­ins að tala við ungt fólk, ekki bara til þeirra.

„Við höfum fundið fyrir þeirri lensku núna að ungt fólk sé, líkt og oft áður, tekið út fyrir sviga og það sé rætt um það eins og ein­hvern hóp sem sé ekki hluti af sam­tal­inu, eins og ein­hverjar geim­verur,“ sagði Una og bætti við að ein­falt væri að ná til ungs fólks og tala við það ef vilji væri fyrir hendi.

Hún sagði ungt fólk hafa tekið mikla ábyrgð í þessum far­aldri, væri margt að vinna í fram­línu­störfum með við­kvæm­ustu hóp­unum í sam­fé­lag­inu og væri að standa sig vel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár