Yfir 6.500 sýni verið tekin

Nú eru birtar opin­ber­lega tölur um sýna­tökur bæði Land­spít­al­ans og Íslenskrar erfða­grein­ingar. Á sunnu­dag voru tekin tæp­lega 1.500 sýni.

Íslensk erfða­grein­ing og sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans hafa sam­an­lagt tekið 6.510 sýni vegna nýju kór­ónu­veirunnar. 250 smit eru stað­fest og eru allir þeir ein­stak­lingar í ein­angrun. Í sótt­kví eru 2.422 en 457 hafa lokið sótt­kví.

Á vefnum Covid.is má sjá að nær algjör­lega jafn­margar konur og karlar hafa smit­ast. Enn eru flest smitin rakin til útlanda eða rúm­lega 51%, tæp­lega 27% eru inn­an­lands smit og ekki er vitað um upp­runa 22% smit­anna sem hér hafa greinst.

Lang­flest smit hafa greinst á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eða 224. Þar eru nú 1.782 í sótt­kví. Næst­flest smitin hafa greinst á Suð­ur­landi eða sextán og þar eru 376 í sótt­kví, m.a. nem­endur við grunn­skól­ann í Hvera­gerði og starfs­fólk og nem­endur við Fjöl­brauta­skóla Suð­ur­lands.

Flestir hinna smit­uðu eru á aldr­inum 40-49 ára og næst­stærsti hóp­ur­inn er á aldr­inum 50-59 ára. Tvö börn yngri en níu ára hafa greinst með smit.

Þrír liggja á sjúkra­húsi vegna COVID-19, sjúk­dóms­ins sem nýja kór­ónu­veiran veldur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár