Nýgreindum smitum í Evrópu fjölgar einna minnst á Íslandi

Sótt­varna­læknir segir það ánægju­legt að nýgreindum smitum kór­ónu­veirunnar á Íslandi fjölgi einna minnst af öllum löndum Evrópu. Það sé vís­bend­ing um að þær aðgerðir sem gripið hefur verið til hér á landi séu að virka.

Víðir Reynisson, Þórólfur Guðnason og Lárus Blöndal á upplýsingafundi almannavarna í dag.
Víðir Reyn­is­son, Þórólfur Guðnason og Lárus Blöndal á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Mynd: Lögreglan

Sótt­varna­læknir segir að 92 ný smit af kór­ónu­veirunni hér á landi síð­asta sól­ar­hring­inn þurfi ekki að koma á óvart. Far­ald­ur­inn sé í upp­sveiflu. Þetta þurfi ekki að þýða að smit verði fleiri en haldið hafi verið fram hingað til. Sveiflur séu eðli­legar í því fámenni sem hér er en skýr­ingin á fjöld­anum gæti líka verið sú að sam­fé­lags­smit sé að verða meira.

Enn á eftir að setja tölur um smit inn í spálíkan og meta hvenær far­ald­ur­inn muni ná hámarki. Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að enn væri gert ráð fyrir því að far­ald­ur­inn nái hámarki um miðjan apríl. Næstu dagar muni skera úr um það hvort að bestu eða verstu spár um útbreiðsl­una ræt­ist. Hins vegar væri allur und­ir­bún­ingur, m.a. í heil­brigð­is­kerf­inu, mið­aður við það að versta spá raun­ger­ist.

Tólf sjúk­lingar með COVID-19 liggja nú á Land­spít­al­anum. Einn er á gjör­gæslu en hann er ekki í önd­un­ar­vél. Þá er fyr­ir­hugað að útskrifa 4-5 í dag.

Þórólfur sagði að nú væri tíma­bært að reyna að leggja mat á þær aðgerðir sem gripið hefur verið til fram að þessu hér á landi sem eru að greina snemma, ein­angra sýkta, rekja smit og setja í sótt­kví.

Helmingur smita meðal þeirra sem eru í sóttkví

Jákvæða vís­bend­ingu sé meðal ann­ars að finna í þeirri stað­reynd að um helm­ingur allra sem eru að grein­ast með veiruna þessa dag­ana eru ein­stak­lingar sem eru í sótt­kví. Það sýni að sótt­kví­ar­úr­ræðið sé að skila árangri og að með henni hafi verið komið í veg fyrir tölu­vert af smitum. „Það er jákvætt,“ sagði Þórólfur. Hann benti einnig á að þegar Íslensk erfða­grein­ing var að taka hund­ruð sýna á dag voru jákvæð sýni aðeins í kringum 1 pró­sent. Hann sagði að nú væru ákveðnar vís­bend­ingar um að hlut­fallið kunni að vera að aukast sem bendi til aukn­ingar á sam­fé­lags­legu smiti. Það ætti hins vegar ekki að koma á óvart.

[links]Vís­inda­menn hjá mið­stöð lýð­heilsu­vís­inda hjá Háskóla Íslands hafa borið saman dag­lega með­al­tals­aukn­ingu á nýgreindum til­fellum á hverja þús­und íbúa hér á landi við hinar Norð­ur­landa­þjóð­irnar. „Það kemur í ljós að Ísland er lægst á þessum skala,“ sagði Þórólfur. „sem segir að nýgreindum fjölgar einna minnst hér á Íslandi og það er ágætis vitn­is­burður um það að þær aðgerðir sem við höfum verið að grípa til hafa skilað árangri.“

Þórólfur sagði að stærð­fræð­ing­ur­inn Pawel Bartoszek hefði kom­ist að svip­aðri nið­ur­stöðu hvað varðar aðrar Evr­ópu­þjóðir. „Þessar nið­ur­stöður um að aukn­ing á sýk­ingum á Íslandi er einna lægst af Evr­ópu­þjóðum enn sem komið er er mjög ánægju­legt og á að hvetja okkur enn frekar til dáða og halda áfram með þær aðgerðir sem við höfum verið að beita fram að þessu.“

Sótt­varna­læknir minnti á að sam­fé­lags­legar aðgerðir á borð við þær að hvetja fólk til sótt­varna, þvo sér vel um hendur, nota spritt og virða fjar­lægð­ar­mörk, séu mik­il­vægar svo árangur náist.

Heimsskortur á sýnatökupinnum

Að sögn Þórólfs virð­ist „heims­skortur“ nú vera á sýna­tökupinnum og því kunni að koma að því að setja þurfi strang­ari skil­yrði fyrir sýna­tökum. Hann sagði allra leiða leitað til að fá hingað til lands fleiri pinna og von er á send­ingu í þess­ari viku.

Tugir ábendinga um brot á sóttkví

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra, sagði á fund­inum að lög­regl­unni bær­ust tugir ábend­inga á hverjum degi um að fólk væri að brjóta reglur um sótt­kví. Spurður hvort til greina komi að herða eft­ir­lit með sótt­kví sagði hann það ekki standa til.

„Við höfum hingað til treyst fólki og að sam­fé­lagið standi saman í þessu,“ sagði hann. Lög­reglan hafi heim­ildir til að loka starf­semi, þar sem reglum sé ekki fram­fylgt, án fyr­ir­vara. „En við skulum halda áfram að treysta hvert öðru og gera þetta almenni­lega.“

Skorar á landsmenn að hafa veirufrían klukkutíma

Í kvöld er von á hertum aðgerðum um sam­komu­bann en það er heil­brigð­is­ráð­herra sem tekur ákvarð­anir um slíkt á grund­velli leið­bein­inga sótt­varna­læknis. „Við erum að fara að herða þessar reglur,“ sagði Víðir, „og við viljum brýna fyrir [ykkur] að ef þið eruð kvefuð – verið heima. Ef þú ert með bein­verki eða slíkt – vertu heima. Og ef þú heldur að þú sért að verða veikur – vertu þá heima.“

Hann end­aði fund­inn á því að hvetja lands­menn til þess að taka „veiru­frían“ klukku­tíma milli klukkan 20-21 í kvöld þar sem talað yrði um eitt­hvað allt annað en kór­ónu­veiruna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár