Vantar um átta þúsund íbúðir á markaðinn

Mikil spenna er á íbúða­mark­aði þar sem við­var­andi skortur á íbúðum er far­inn að hafa mikil áhrif á stöðu mála.

Þjóðskrá telur að það vanti um átta þús­und íbúðir inn á fast­eigna­markað, eins og málin standa, til að halda í við eft­ir­spurn­ina sé horft sér­stak­lega til sögu­legra gagna um þróun á mark­aðnum. Þetta er umtals­vert meiri skortur á eignum heldur en reiknað hefur verið með í öðrum grein­ingum, svo sem nýlegri grein­ingu Arion banka, þar sem því var spáð að fast­eigna­verð myndi hækkað um 30 pró­sent á næstu árum, meðal ann­ars vegna skorts á eignum á mark­aði.

Samkvæmt því sem fram kemur í grein­ingu Þjóð­skrár, þá segir að fjöldi íbúa á hverja íbúð hafi farið lækk­andi árin 1995 til 2008, úr 2,75 árið 1995 í tæp­lega 2,47 við hrun.

Fjöldi í hverri íbúð lækk­aði lít­il­lega frá árinu 2008 til 2014 og fór þá aftur lít­lega hækk­andi. Að mati Þjóð­skrár hefði undir venju­legum kring­um­stæðum mátt búast við því að fjöldi íbúa á hverja íbúð héldi áfram að lækka miðað við þróun á með­al­fjöl­skyldu­stærð.

Þjóðskrá setur upp þrjár sviðs­myndir. Sú fyrsta að fjöldi íbúa á hverja íbúð sé 2,4, önnur að 2,35 sé í hverri íbúð og þriðja að fjöld­inn sé 2,3.

Til þess að fjöld­inn á hverja íbúð væri 2,4 þyrfti um 5.000 íbúðir umfram það sem til er í dag. Ef fjöld­inn ætti að vera 2,35 þá þyrfti um 8.000 íbúðir umfram það sem til er í dag og ef fjöld­inn ætti að vera 2,3 þá þyrfti 11.000 íbúðir umfram það sem til er í dag. Ályktun þjóð­skrar er að „miðað við línu­lega þróun er skort­ur­inn lík­leg­ast um 8 þús­und íbúðir,“ segir í grein­ingu Þjóð­skrár.

Algeng við­miðun er að það þurfi að byggja um 1.800 til 2.000 íbúðir á ári á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, til að mæta nátt­úru­legri fjölgun, vegna fólks­fjölg­unar. Miðað við það er upp­söfnuð bygg­ing­ar­þörf íbúða á pari við allt að fjög­urra ára upp­bygg­ingu íbúða. Miðað við þessar tölur er langt í að jafn­vægi skap­ist á fast­eigna­mark­aði.

Í fyrra hækk­aði fast­eigna­verð um 15 pró­sent en að und­an­förnu hefur hækk­unin verið á bil­inu 1,5 til tvö pró­sent á mán­uði, sem er í við meiri og hrað­ari hækkun en var í fyrra. Eins og áður segir þá gera spár ráð fyrir því að fast­eigna­verð muni hækka áfram á næstu árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár