Hreiðar Már vill að meðdómari víki - Situr í stjórn samtaka sem berjast gegn spillingu

Hörður Felix Harð­ar­son, lög­maður Hreiðars Más Sig­urðs­sonar, fyrrum for­stjóra Kaup­þings, hefur farið fram á að Ásgeir Brynjar Torfason, lektor við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands, víki sæti í Marple-mál­inu svo­kall­aða. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er frá­vís­unin meðal ann­ars byggð á því að Ásgeir Brynjar sitji í stjórn sam­tak­anna Gagnsæis, sem hafa það yfir­lýsta mark­mið að berj­ast gegn spill­ingu í öllum grunn­stoðum sam­fé­lags­ins. Auk þess eru ýmis ummæli Ásgeirs Brynjars í þjóð­mála­um­ræðu und­an­far­inna ára sem og grein­ar­skrif hans sögð draga úr hlut­leysi hans sem dóm­ara.

Krafan verður lögð fram í hér­aðs­dómi Reykja­víkur á morgun. Dóms­for­mað­ur­inn í mál­inu mun taka afstöðu til hennar og meti hann það svo að Ásgeir Brynjar þurfi að víkja sem með­dóm­ari mun aðal­með­ferð Marple-máls­ins þurfa að fara fram á ný. Hún fór fyrst fram í hér­aðs­dómi í byrjun sept­em­ber og búist var við dómi í því á næstu dögum.

Gagnsæ eru félaga­sam­tök sem berj­ast gegn spill­ingu. Þau voru stofnuð fyrr á þessu ári og í stjórn sam­tak­anna sitja að mestu fólk úr háskóla­sam­fé­lag­inu. Eitt aðal­mark­mið sam­tak­anna er að sækja um aðild að Transparency International-hreyf­ingu og verða Íslands­deild hennar. Samtökin héldu mál­stofu um vernd upp­ljóstr­ara í síð­ustu viku þar sem Þórunn Elísabet Boga­dóttir, aðstoð­ar­rit­stjóri Kjarnans, var fund­ar­stjóri.

Höfðu allir áður samþykkt meðdómarann


Sak­born­ingar í Marple-mál­inu höfðu áður allir sam­þykkt Ásgeir Brynjar sem með­dóm­ara í mál­inu. Hann er, líkt og fyrr segir, lektor við Háskóla Íslands og kennir fjár­mál, bók­hald og grein­ingu árs­reikn­inga.

Hann lauk dokt­ors­prófi frá Gauta­borg­ar­há­skóla í fyrra og fjall­aði dokt­ors­rit­gerð hans um flæði fjár­magns í banka­kerf­inu en rann­sóknin byggði á mis­mun­andi aðferðum og sam­spili fjár­mála, pen­inga­hag­fræði og reikn­ings­skila­reglna. Ásgeir Brynjar var einn umsækj­enda um starf seðla­banka­stjóra þegar það var aug­lýst til umsóknar árið 2014.

Snýst um tilfærslu á átta milljörðum til Skúla Þorvaldssonar


Fjórir eru ákærðir í Marple-mál­inu, þau Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, Guðný Arna Sveins­dóttir, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri bank­ans, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri bank­ans í Lúx­em­borg og Skúli Þor­valds­son fjár­festir.

Hreiðar Már og Guðný Arna eru ákærð fyrir fjár­drátt og umboðs­svik. Magnús er ákærður fyrir hlut­deild í fjár­drætti og umboðs­svikum og Skúli er ákærður fyrir hylm­ingu. Málið snýst um til­færslu á um átta millj­örðum króna úr sjóðum Kaup­þings til félags­ins Marple Holding, í eigu Skúla, án þess að lög­mætar við­skipta­legar ákvarð­anir lægju þar að baki. Hin ákærðu eiga yfir höfði sér allt að sex ára fang­elsi verði þau fundin sek.

Alls hefur emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara ákært þá Hreiðar Má og Magnús fjórum sinnum. Hreiðar Már hefur tví­vegis verið dæmdur sekur í málum gegn honum, þótt annað þeirra mála eigi enn eftir að fara fyrir Hæsta­rétt. Magnús hlaut dóm í Al Thani-mál­inu en var sýkn­aður í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál­inu tengt Kaup­þingi fyrr á þessu ári. Báðir afplána þeir nú langa fang­els­is­dóma á Kvía­bryggju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár