Umferð á hringveginum eykst mikið milli ára

Umferð jókst hlut­falls­lega mun meira á lands­byggð­inni en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Mesta aukn­ingin varð á aust­ur­landi.

Árið 2016 var algert metár í umferð­inni á Hring­veg­inum en umferðin jókst um ríf­lega þrettán pró­sent „sem er gríð­ar­lega mikil aukn­ing á einu ári“ að því er segir á vef Vega­gerð­ar­innar.

Aukn­ingin er nærri tvö­föld á við aukn­ing­una sem næst kemur á milli áranna 2006 og 2007 sem var 6,8 pró­sent. „Aldrei fyrr hafa jafn­margir bílar farið um mæli­punkta Vega­gerð­ar­innar á Hring­veg­inum. Sama á við um nýlið­inn des­em­ber­mánuð en umferðin jókst um ríf­lega 21 pró­sent í mán­uð­inum og hefur umferð yfir vetr­ar­mán­uð­ina auk­ist gríð­ar­lega sem lík­lega má fyrst og fremst rekja til auk­innar vetr­ar­ferða­mennsku,“ segir í frétt á vef Vega­gerð­ar­innar.

Gera má ráð fyrir að mikil aukn­ing í ferða­þjón­ustu eigi stóran hlut í þessar umferð­ar­aukn­ingu en um 1,7 millj­ónir ferða­manna heim­sóttu landið á árinu 2016 og nam aukn­ingin í það minnsta 30 pró­sentum milli ára. End­an­legar tölur um fjöld­ann eiga þó eftir að ber­ast.

Umferðin í des­em­ber 2016 jókst gríðar mikið en nið­ur­staðan varð rúm­lega 21 pró­sent aukn­ing árið 2016 miðað við sama mánuð árið 2015. Þetta er mesta aukn­ing milli des­em­ber mán­uða frá því að þessi sam­an­tekt hófst. Umferð jókst á öllum lands­svæðum en lang­mest mæld­ist aukn­ingin um mæli­snið á Aust­ur­landi eða um tæp­lega 52 pró­sent. Minnst jókst umferð um mæli­snið um og í grennd við höf­uð­borg­ar­svæðið eða um 18 pró­sent.

Á vef Vega­gerð­ar­innar segir að góð færð kunni einnig að hafa sín áhrif á það, að umferð hefur auk­ist jafn mikið og raun ber vitni núna á vetr­ar­mán­uðum. „Vafa­laust eru nokkrar ástæður fyrir því að umferðin á Hring­vegi eykst svona eins og hún hefur gert. Vega­gerðin hefur bent á fylgni umferðar við hag­vöxt, aukn­ingu ferða­manna og síðan mætti ímynda sér að góð færð á vegum yfir vetr­ar­mán­uði hafi mikið að segja. Þetta kunna að vera þrjár meg­in­á­stæður fyrir þess­ari miklu aukn­ingu á síð­asta ári. Það verður því afar fróð­legt að fylgj­ast með þró­un­inni á þessu ári og sjá hvort þessi mikla aukn­ing haldi áfram eða hvort það hægi á henni,“ segir á vef Vega­gerð­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár