Bill Gates áhyggjufullur yfir ákvörðun Trumps – Boðar meiri fjárfestingar

Bill Gates, rík­asti maður heims, segir ákvörðun Trumps um að draga Banda­ríkin út úr Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu sorg­lega. Hann boðar enn meiri fjár­fest­ingar í umhverf­is­vænni nýsköpun.

Bill Gates, stofnandi Microsoft og einn ríkasti maður heims.
Bill Gates, stofn­andi Microsoft og einn rík­asti maður heims. Mynd: EPA

Bill Gates, annar stofn­enda Microsoft og einn rík­asti maður heims, með eignir upp á 88 millj­arða Banda­ríkja­dala, segir ákvörðun Donalds Trumps um að draga Banda­ríkin út úr Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu vera sorg­lega og slæma fyrir umheim­inn.

Hann segir að ákvörðun Trumps muni með engu móti stöðva áform sjóðs­ins Breakthrough Energy Ventures, sem hann setti á fót í París, en um er að ræða stærsta fjár­fest­inga­sjóð heims á sviði nýsköp­unar í umhverf­is­vænni tækni.

Sjóð­ur­inn hefur fjár­fest­inga­getu upp á 100 millj­arða Banda­ríkja­dala, og segir Gates að stefnan sé sett á að auka enn frekar fjár­fest­ingar á næst­unni.

For­stjórar tækniris­ana App­le, Alp­habet (Goog­le), Microsoft og Tesla Motors voru fljótir að tjá sig um ákvörðun Trumps, og sögðu hana engu breyta um það að fyr­ir­tækin ætl­uðu sér að leggja sitt af mörkum til að mark­mið Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins muni nást.

Elon Musk, stofn­andi og for­stjóri Tesla, ákvað að fara úr ráð­gjafa­ráði Trump, þegar kemur að atvinnu­málum og nýsköp­un, um leið og ákvörðun hans lá fyr­ir. Hann sagði að ákvörðun væri slæm fyrir Banda­ríkin og slæm fyrir heim­inn all­an. „Lofts­lags­breyt­ingar eru raun­veru­leg­ar,“ sagði hann á Twitter svæði sínu.

Ind­verjar riðu á vaðið í gær, og til­kynntu að stefnan sé nú sett á að selja aðeins raf­drifna bíla árið 2013, eða eftir 13 ár. Það er risa­vaxið verk­efni enda Indland næst fjöl­menn­asta ríki heims með 1,3 millj­arða íbúa.

Robert Iger, for­stjóri Walt Dis­ney, sagði sig einnig strax úr ráð­inu, og mót­mælti ákvörðun Trumps. Dar­ren Woods, for­stjóri Exxon Mobile, stærsta skráða olíu­fé­lags í heimi, sendi Trump bréf og bað hann um að halda Banda­ríkj­unum inn í Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu.

Úrsögn Banda­ríkj­anna úr Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu tekur fjögur ár og tekur hún gildi dag­inn eftir næstu for­seta­kosn­ingar, eins og rakið er í grein Þrastar Freys Gylfa­sonar stjórn­mála­fræð­ings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár