Síðasta vígið fallið: Kórónuveiran komin til allra heimsálfa

Fyrst var það Asía. Svo Evrópa og Norður-Ameríka. Þannig bætt­ust þær við, koll af kolli, heims­álf­urnar sem nýja kór­ónu­veiran, SARS CoV-2, greind­ist í. Það er þó fyrst núna sem hún hefur borist til Suð­ur­skauts­lands­ins, afskekkt­ustu heims­álfu ver­aldar.

Bernardo O‘Higgins-herstöðin.
Bernardo O‘Higgins-her­stöðin. Mynd: EPA

Yfirvöld í Chile hafa greint frá því að í það minnsta 58 mann­eskjur á tveimur her­stöðvum á Suð­ur­skauts­land­inu hefðu greinst með kór­ónu­veiruna. Þar með hefur far­aldur COVID-19 náð til allra heims­álfa.

Her­mála­yf­ir­völd í Chile til­kynntu í upp­hafi vik­unnar að 36 manns í Bernardo O‘Higgins-her­stöð­inni hefðu greinst jákvæðir fyrir veirunni og í gær bár­ust svo tíð­indi af því að 21 hefði sýkst um borð í her­skip­inu Sargento Aldea. Þá greind­ist eitt smit í þorp­inu Las Estrellas, þar sem her­menn búa á meðan dvöl þeirra á Suð­ur­skauts­land­inu stendur. Enginn er sagður alvar­lega veikur.

Borgarar fleiri ríkja dvelja á Suð­ur­skauts­land­inu en engar fréttir um smit í þeirra röðum hafa enn borist.

Þrír greindust smit­aðir um borð í her­skip­inu Sargento Aldea í síð­ustu viku og hafa allir skip­verjar, 208 tals­ins, verið í ein­angrun um borð í skip­inu síðan. Skipið hafði átt við­komu á nokkrum stöðum á Suð­ur­skauts­land­inu á tíma­bil­inu 27. nóv­em­ber til 10. des­em­ber.

78 millj­ónir manna hafa nú greinst með kór­ónu­veiruna sem er 1 pró­sent jarð­ar­búa sem í heild telja um 7,8 millj­arða. Rúmlega 1,7 milljón manna hafa lát­ist vegna COVID-19.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár