Bensínverð hefur lækkað hratt - Sparnaður neytenda sjö milljarðar króna á ársgrundvelli

Verð á 95 okt­ana bens­íni á Íslandi hefur hríð­lækkað und­an­farið og algeng­asta verð er nú 202,5 krónur á lítra. Fyrir einu ári síðan var verðið 243,3 krónur á lítra og hefur því lækkað um tæp 17 pró­sent á tíma­bil­inu, eða um tæpa 41 krónu. Á árinu 2014 voru fluttir inn 178 millj­ónir lítra af 95 okt­ana bens­íni. Fyrir einu ári síðan hefði það magn kostað íslenska neyt­endur 43,3 millj­arða króna, en í dag myndi það kosta 36,1 millj­arð króna. Miðað við það magn er sparn­aður bíl­eig­enda um sjö millj­arðar króna árs­grund­velli auk þess sem lækk­unin sparar þjóð­ar­bú­inu um sex millj­arða króna í verð­mætum gjald­eyri.

Heims­mark­aðs­verð á olíu hefur hríð­fallið und­an­farið ár og fór fyrr í þessum mán­uði niður fyrir 40 dali á tunnu.Í dag er verðið um 50 dalir á tunnu. Í júní 2014 kost­aði tunna af Brent-olíu 115,9 dali og verðið hefur því lækkað um 57 pró­sent á rétt rúmu ári.

Kjarninn greindi frá því í frétta­skýr­ingu 4. ágúst síð­ast­lið­inn að sam­hliða þessum lækk­unum á heims­mark­aði hefði útsölu­verð olíu­fé­lag­anna á Íslandi á 95 okt­ana bens­íni lækkað um 12,1 pró­sent. Ein ástæða þess að bens­ín­verðið hafði ekki lækkað meira var sú að álagn­ing íslensku olíu­fé­lag­ana hafði auk­ist á tíma­bil­inu. Félag íslenskra bif­reið­ar­eig­enda áætl­aði þá að sú hækkun á álagn­ingu sem átt hafði sér stað hefði aukið útgjöld neyt­enda um hálfan millj­arð króna á einu ári. Frá 4. ágúst hefur verð á 95 okt­ana­bens­íni lækkað um átta pró­sent, eða 17 krónur. Fyrir þá sem eru með dælu­lykla hjá þeim elds­neyt­is­sölum sem bjóða upp á slíka, og fá þar af leið­andi auk­inn afslátt af bens­íni, er verðið á 95 okt­ana bens­íni því komið undir 200 krónur á lítra.

Heldur aftur af verðbólgu


Þessi mikla lækkun á elds­neyti hefur einnig haldið mjög aftur af áhrifum auk­innar einka­neyslu íslensku þjóð­ar­innar. Allar tölur sýna að hún eyðir nú mun meiri en áður og ef elds­neyt­is­verð hefði hald­ist svipað og það var í fyrra­sumar myndi sú eyðsla skila sér að miklum krafti inn í verð­bólgu, sem þó hefur farið ört hækk­andi und­an­farið og nálg­ast nú verð­bólgu­mark­mið Seðla­banka Íslands.

Sem dæmi um þessa auknu eyðslu má benda á að Íslend­ingar eyddu sam­tals 6,7 pró­sent meiru með Visa­kort­unum sínum í júlí 2015 en í sama mán­uði árið áður. Eyðsla þeirra inn­an­lands jókst um 4,7 pró­sent en mesta aukn­ingin var erlendis, þar sem velta íslenskra Visa­korta­eig­enda jókst um 16,9 pró­sent á milli ára. Eyðsla á bens­ín­stöðvum og í elds­neyti dróst hins vegar saman um 8,7 pró­sent, en elds­neytis­kostn­aður er stór hluti af dag­legum útgjöldum íslenskra heim­ila.

Ríkið tekur um helming til sín


Það er eðli­legt að útsölu­verð á elds­neyti lækki ekki til jafns við lækkun á heims­mark­aðs­verði á olíu, þótt vissu­lega séu deildar mein­ingar um hversu mörgum krónum lækkun á heims­mark­aðs­verði ætti að skila í vasa neyt­enda hverju sinni. Íslenskir elds­neyt­is­salar þurfa til dæmis að gera ráð fyrir inn­kaupa­verði, sköttum álagn­ingu og flutn­ings­kostn­aði í útsölu­verði sínu. Og gengi íslensku krón­unnar skiptir líka máli, enda greitt fyrir elds­neyti með gjald­eyri. Íslenska krónan hefur lækkað tölu­vert gagn­vart Banda­ríkja­dal frá því í júní á síð­asta ári, eða um 12 pró­sent,og það hefur nei­kvæð áhrif á lækkun á elds­neyt­is­verði til neyt­enda.

Önnur ástæða sem oft er nefnd er sú að olíu­fé­lögin eigi svo miklar upp­safn­aðar birgðir af elds­neyti sem keyptar hafi verið á hærra verði. Því taki tíma fyrir lækk­anir á heims­mark­aðs­verði að skila sér út í verð­lagið sem íslenskir neyt­endur verða að sætta sig við. Þegar langt lækk­un­ar­skeið á sér stað eiga þau rök þó aug­ljós­lega ekki við og ljóst að á ein­hverjum tíma­punkti verði lækkun á heims­mark­aðs­verði alltaf að skila í útsölu­verði.

Það er rétt að stór ástæða þess að verð á bensín og dísel er jafnt hátt og raun ber vitni hér­lendis er sú að ríkið tekur til sín um helm­ing elds­neyt­is­verðis til sín í formi ýmissa gjalda og skatta sem það leggur á. Þar er átt við sér­stakt bens­ín­gjald, almennt bens­ín­gjald, kolefn­is­gjald og auð­vitað virð­is­auka­skatt sem leggst á bensín eins og aðra vöru. Því fara rúm­lega 100 krónur af hverjum lítra af bens­íni sem við kaupum til rík­is­ins og aug­ljóst að ríkið gæti stuðlað að lægra verði með því að draga úr álögum sínum.

Það breytir því hins vegar ekki að svig­rúm olíu­fé­laga til að lækka sitt útsölu­verð eykst í hvert skipti sem heims­mark­aðs­verðið lækkar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár