Íslendingar strauja kreditkortin sín mun meira en þeir gerðu fyrir ári síðan

Íslend­ingar eyddu sam­tals 6,7 pró­sent meiru með því að nota Visa kredit­kort sín í júlí 2015 en þeir gerðu í sama mán­uði árið áður. Eyðsla þeirra inn­an­lands jókst um 4,7 pró­sent en mesta aukn­ingin var erlendis, þar sem velta íslenskra Visa­korta­eig­enda jókst um 16,9 pró­sent á milli ára. Því er ljóst að einka­neysla Íslend­inga, bæði inn­an­lands og sér­stak­lega erlendis, er að aukast hratt. Þetta kemur fram í Valitor vísi­töl­unni fyrir júlí 2015, sem sýnir breyt­ingar á notkun íslenskra Vísa kredit­korta.

Það vekur athygli að þessi aukn­ing á sér stað þrátt fyrir að eyðsla á bens­ín­stöðvum og í elds­neyti hafi dreg­ist saman um 8,7 pró­sent, en elds­neytis­kostn­aður er stór hluti af dag­legum útgjöldum íslenskra heim­ila. Ástæðan fyrir þeim sam­drætti er hratt fallandi heims­mark­aðs­verð á olíu, en það hefur lækkað um 58 pró­sent frá því í júní 2014.

Íslend­ingar hafa aukið áfeng­is­kaup sín til muna, og keyptu 13,54 pró­sent meira af slíku í júlí 2015 en í sama mán­uði árið áður. Þá hefur eyðsla þeirra í mat­vöru- og stór­versl­unum auk­ist um 5,3 pró­sent á milli ára. Samtals jókst eyðsla Íslend­inga í mat­vöru, bensín og vín um 1,2 pró­sent.

Velt­ur­töl­urnar breytt­ust nokkuð frá því að Valitor vísi­talan var síð­ast birt, en þá sýndi hún breyt­ingar milli júní­mán­aða 2014 og 2015. Þá hafði heild­ar­velta reyndar auk­ist um svipað hlut­fall, 6,5 pró­sent, en Íslend­ingar eyddu 1,2 pró­sentum minna í mat­vöru, bensín og vín í júní 2015 en þeir gerðu í sama mán­uði árið áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár