Le Pen send í geðrannsókn af frönskum dómstól

Franskur dóm­stóll hefur fyr­ir­skipað öfga­hægri leið­tog­anum Marine Le Pen að gang­ast undir geð­rann­sókn. Eru þessar aðgerðir hluti af mála­rekstri í tengslum við mynd­birt­ingum Le Pen á Twitter þar sem hún deildi myndum af víga­mönnum íslamska rík­is­ins.

Emmanuel Macron og Marine Le Pen.
Emmanuel Macron og Marine Le Pen. Mynd: EPA

Franskur dóm­stóll hefur fyr­ir­skipað öfga­hægri leið­tog­anum Marine Le Pen að gang­ast undir geð­rann­sókn. Eru þessar aðgerðir hluti af mála­rekstri í tengslum við mynd­birt­ingum Le Pen á Twitter þar sem hún deildi myndum af víga­mönnum íslamska rík­is­ins.

Var Le Pen, sem er leið­togi Þjóð­fylk­ing­ar­innar í Frakk­landi, svipt þing­helgi svo hægt væri að höfða mál gegn henni vegna mynd­birt­ing­anna en dóm­stóll­inn vill með geð­mat­inu fá úr því skorið hvort hún þjá­ist af geð­sjúk­dómi eða hvort hún sé fær um að skilja ummæli og svara spurn­ingum.

Le Pen seg­ist sjálf nú vera farin að ótt­ast stjórn­völd. Þessi vinnu­brögð séu hættu­leg.

Hún er ákærð fyrir að hafa dreift skila­boðum sem hvetja til hryðju­verka eða stríða gegn mann­legri reis, en mynd­unum deildi Le Pen í des­em­ber árið 2015, skömmu eftir að 130 manns voru myrtir í París af hryðju­verka­mönnum íslamska rík­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár