Lestur stærstu prentmiðla landsins heldur áfram að dala

Lestur Morg­un­blaðs­ins og Frétta­blaðs­ins, einu dag­blaða lands­ins, hjá fólki undir fimm­tugu er nú þriðj­ungur þess sem hann var 2009. Útgáfu­fé­lög beggja hafa tapað háum fjár­hæðum á und­an­förnum árum.

Fréttablaðið er eina fríblað landsins.
Frétta­blaðið er eina frí­blað lands­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Lestur tveggja stærstu dag­blaða lands­ins hefur haldið áfram að dala það sem af er ári, sér­stak­lega hjá yngri hluta lands­manna. Samkvæmt nýbirtum tölum Gallup um lestur á prent­miðlum lásu 22,4 pró­sent lands­manna í ald­urs­hópnum 18-49 ára Frétta­blaðið í júlí­mán­uði og 9,4 pró­sent Morg­un­blaðið.

Morg­un­blaðið fór undir tíu pró­sent lestur hjá þessum hópi í vor, en árið 2009 las um þriðj­ungur lands­manna undir fimm­tugu það blað.

Lestur Frétta­blaðs­ins hjá þessum ald­urs­hópi var 65 pró­sent í byrjun árs 2009 en er nú um þriðj­ungur þess hlut­falls.

Heild­ar­lestur á bæði blöð hefur aldrei verið minni en hann var í júlí. Þá sögð­ust 31,3 pró­sent lesa Frétta­blaðið en árið 2010 lásu 64 pró­sent lands­manna frí­blaðið. Heild­ar­lestur blaðs­ins hefur því helm­ing­ast á rúmum ára­tug.

Morg­un­blaðið fór undir 20 pró­senta múr­inn í heild­ar­lestri fyrr á þessu ári og nú mælist lestur blaðs­ins 19,3 pró­sent. Hann hefur rúm­lega helm­ing­ast frá 2009, þegar núver­andi eig­enda­hópur tók við og Davíð Oddsson og Haraldur Johann­es­sen voru ráðnir rit­stjórar, en þá lásu um 40 pró­sent lands­manna prentút­gáfu Morg­un­blaðs­ins.

Mikill taprekstur

Þessi þróun, hríð­minnk­andi lestur, hefur átt sér stað þrátt fyrir að Morg­un­blaðið hafi síð­ast­liðin ár verið frí­blað á fimmtu­dögum. Í því felst að blað er í aldreif­ingu þá daga og fer inn á heim­ili tug­þús­unda sem eru ekki áskrif­endur. Almenn áskrift að Morg­un­blað­inu kostar í dag 7.982 krónur á mán­uði, eða 95.784 krónur á ári.

[adspot]Tap Árvak­urs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins og fleiri miðla, á þeim ára­tug sem leið frá því að nýir eig­endur tóku yfir móð­­ur­­fé­lagið Þór­s­­mörk á árinu 2009, og fram til loka árs 2019, var sam­tals um 2,5 millj­­­örðum króna. Stærstu eig­endur Árvakurs eru tengdir sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum auk þess sem Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, er skráður fyrir rúm­lega 20 pró­sent eign­ar­hlut.

Kjarninn greindi frá því í lið­inni viku að tekjur Árvakurs í fyrra hefðu dreg­ist saman um rúm fjögur pró­sent og starfs­fólki hefði verið fækkað um næstum 14 pró­sent. Laun og þókn­anir til stjórn­enda hækk­uðu hins vegar um næstum fimm pró­sent.

Rekstr­ar­tap Árvakurs í fyrra var 210 millj­ónir króna. Þá var búið að taka til­lit til 99,9 milljón króna rekstr­ar­styrk sem Árvakur fékk úr rík­is­sjóði vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru. End­an­legt tap Árvakurs var hins vegar 75 millj­ónir króna. Hlut­deild í afkomu dóttur- og hlut­deild­ar­fé­laga, sem teng­ist ekki grunn­rekstri Árvakurs, útskýrir þann mun sem er á end­an­legri afkomu og rekstr­ar­af­komu, en hún er jákvæð um 160 millj­ónir króna.

Fækkuðu útgáfudögum í fyrra

Frétta­blaðið er enn frí­blað sem dreift er í 85 þús­und ein­tökum án end­ur­gjalds á heim­ili á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á Akureyri fimm daga vik­unnar. Útgáfu­dögum þess var þó fækkað úr sex í fimm á síð­asta ári.

[links]Heild­ar­lestur Frétta­blaðs­ins fór undir 60 pró­sent í apríl 2012, undir 50 pró­sent í nóv­em­ber 2015 og undir 40 pró­sent í ágúst 2018. Hann er nú, líkt og áður sagði, 31,3 pró­sent.

Frétta­blaðið er í eigu Torgs sem rekur einnig miðla á borð við Hring­braut og DV. Helgi Magn­ús­son athafna­maður keypti Torg árið 2019. Opinber gögn gefa til kynna að kostn­aður við þau kaup hafi verið um 600 millj­ónir króna. Félag Helga hefur síðar lagt rekstr­inum til 600 millj­ónir króna í nýtt hlutafé.

Tap Torgs á árinu 2019 var 212 millj­­­ónir króna. Torg hefur ekki skilað árs­reikn­ingi vegna árs­ins 2020 til árs­reikn­inga­skrár.

Rit­stjóra­skipti urðu nýverið á Frétta­blað­inu þegar Sig­mundur Ernir Rún­ars­son tók við stjórn­ar­taumunum af Jóni Þór­is­syni.

Reka vel sótta vefi

Vert er að taka fram að þeir prent­miðlar sem nefndir eru í þess­ari umfjöllun reka frétta­vef­síður. Síða Morg­un­blaðs­ins, mbl.is, er nú, og hefur oft­ast verið, mest lesna vef­síða lands­ins, þótt helsti sam­keppn­is­að­ili hennar, Vísir, hafi oftar verið í fyrsta sæti á þeim lista á þessu ári.

Vefsvæði DV, dv.is og tengdir vefir, er þriðja mest lesna vef­svæði lands­ins og vef­svæði Frétta­blaðs­ins, sem inni­heldur líka vef Hring­brautar, er það fimmta mest lesna sam­kvæmt lista Gallup en vert er að taka fram að ein­ungis tólf vef­svæði taka þátt í vef­mæl­ingum fyr­ir­tæk­is­ins. Á meðal fjöl­miðla sem gera það ekki eru Kjarninn og Stundin. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár