Að vera eða ekki vera forsætisráðherra

Orða­til­tækið „kött­ur­inn hefur níu líf“ þekkja flestir. Vísar til fornrar trúar og þeirrar stað­reyndar að kettir eru bæði lífseigir og klókir. Ef þetta orða­til­tæki gilti um stjórn­mála­menn væri Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra Dana í þeim hópi.

Lars Lökke Rasmussen
Lars Lökke Rasmus­sen Mynd: EPA

Starfi for­sæt­is­ráð­herra fylgir að jafn­aði mikil umfjöllun fjöl­miðla, slíkt telst ekki til tíð­inda. En að umfjöll­unin snú­ist oft á tíðum um allt annað en stjórn­mál er óvenju­legra. Ekki þó þegar Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra Dana á í hlut. Hann hefur vikum saman verið umfjöll­un­ar­efni danskra fjöl­miðla og það ekki í fyrsta sinn.

Lars Løkke, sem er lög­fræð­ingur að mennt, gekk ungur til liðs við Venstre flokk­inn. Hann sett­ist á þing 1994 og var kjör­inn vara­for­maður Venstre fjórum árum síðar. Hann var jafn­framt framá­maður í sveit­ar­stjórna­málum á þessum tíma en varð inn­an­ríkis- og heil­brigð­is­ráð­herra árið 2001, gegndi um tveggja ára skeið starfi fjár­mála­ráð­herra. Árið 2009 tók hann við for­sæt­is­ráð­herra­starf­inu af Anders Fogh Rasmus­sen, því gegndi hann fram að kosn­ingum árið 2011 og síðan aftur frá kosn­ingum 2015.

Skandalakóngur

Danir eiga sem kunn­ugt er engan kóng, sem ber ein­ungis kon­ungs­tit­il­inn. Þeir eiga sína skatta­kónga, kvóta­kónga, marka­kónga, afla­kónga o.s.frv. Sumir þess­ara kon­ungs­titla eru taldir eft­ir­sókn­ar­verðir en ekki þó allir. Lars Løkke Rasmus­sen hefur margoft hlotið þann vafa­sama heiður að vera útnefndur skandala­kóngur Dan­merkur, tit­ill sem fæstir kæra sig um að bera. Árið 2008 greindu danskir fjöl­miðlar frá því (fyrst í Ekstra­blað­inu) að svo virt­ist sem Lars Løkke Rasmus­sen, sem þá var fjár­mála­ráð­herra, væri ekki það sem kall­ast mætti nákvæmur bók­hald­ari. Að minnsta kosti ekki hvað hann sjálfan varð­aði, þar væri notað svo­kallað rassvasa­bók­hald, öllu væri grautað saman og ráð­herr­ann gerði ekki grein­ar­mun á því hvenær hann ætti sjálfur að borga og hvenær ráðu­neytið ætti að punga út. Ekstra­blaðið birti reikn­inga þar sem fram kom að ríki og sveit­ar­fé­lag hefðu borgað reikn­inga á veit­inga­húsum og hót­elum, sem ekki höfðu neitt með störf Lars Løkke að gera. Sígar­ettur voru enn­fremur til­greindar í umfjöllun Ekstra­blaðs­ins. Þetta var bara byrj­unin á því sem fært hefur for­sæt­is­ráð­herra Dana skandala­kóngs­tit­il­inn.

Reykingaklefinn

Árið 2009, eftir að Lars Løkke varð for­sæt­is­ráð­herra, lét hann inn­rétta svo­kall­aðan reyk­inga­klefa í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Ráðu­neytið borg­aði klef­ann, hann kost­aði sem sam­svar­aði þremur og hálfri milljón íslenskra króna. Þegar þetta mál komst i hámæli ákvað Lars Lökke að borga klef­ann en á end­anum var það Venstre flokk­ur­inn sem borg­aði. Í sjón­varps­við­tali býsnað­ist einn af for­ystu­mönnum flokks­ins yfir verð­inu á klef­anum og fór mörgum orðum um græðgina í fyr­ir­tæk­inu sem seldi og setti upp klef­ann.

Nærbuxnamálið

Árið 2014 var Venstre undir stjórn Lars Lökke í stjórn­ar­and­stöðu. Í maí það ár hafði Ekstra­blaðið kom­ist yfir reikn­inga sem sýndu að Venstre, flokkur Lars Løkke hafði borgað fjöl­marga reikn­inga vegna fata­kaupa for­manns­ins. Upphæðin var ekki sér­lega há, um 20 þús­und krónur (ca. 340 þús­und íslenskar). Um var að ræða níu jakka­fata­sett, 28 skyrtur, átta vand­aðar nær­buxur (feit­letrað í frá­sögn Ekstra­blaðs­ins) og fleira. Spaugi­legt þótti mörgum að heyra útskýr­ingar for­ystu­manna Venstre á því að nær­buxur teld­ust vinnu­fatn­aður, sem ekki er skatt­skyldur sam­kvæmt dönskum skatta­lögum. Í þess­ari umfjöllun Ekstra­blaðs­ins kom líka fram að Venstre hafði margoft borgað fyrir hrein­gern­ingar á hót­el­her­bergjum þar sem for­mað­ur­inn virti ekki reglur um reyk­inga­bann heldur púaði eins og honum sýnd­ist.

Flugmiðinn og langi fundurinn

Árið 2013 var Lars Løkke (Venstre var þá í stjórn­ar­and­stöðu) í for­mennsku fyrir sam­tök um lofts­lags­mál, GGGI, en sam­tökin eru meðal ann­ars fjár­mögnuð með styrkjum frá danska rík­inu. Lars Løkke hafði ætlað að fara til New York ásamt dóttur sinni þegar hann þurfti skyndi­lega að fara til Rio de Janero á vegum GGGI. Samtökin borg­uðu flug­miða fyrir dótt­ur­ina frá New York til Rio de Janero. Mikið fjöl­miðla­fár varð í kringum þennan flug­miða og á lengsta frétta­manna­fundi sem hald­inn hefur verið í Danmörku reyndi Lars Lökke að útskýra af hverju sam­tökin hefðu borgað mið­ann. Þótt fund­ur­inn stæði í tæpa fjóra klukku­tíma voru frétta­menn, og danska þjóðin sem fylgd­ist með fund­inum í beinni sjón­varps­út­send­ingu, engu nær.

Løkke sjóðurinn og tengslin við kvótakóngana

Þau mál sem nefnd voru hér að framan hafa skaðað ímynd Lars Løkke, að mati danskra stjórn­mála­skýrenda. Fjöl­margar kann­anir sýna að per­sónan Lars Løkke nýtur tak­mark­aðs álits, og áður­nefnd mál gjarna nefnd sem rök­stuðn­ingur. Nýjasta málið af þessu tagi er þó langtum stærra og, að flestra mati, alvar­legra. Það snýr að tengslum Lars Løkke við danska stór­út­gerð­ar­menn, svo­nefnda kvóta­kónga.

Árið 2012 stofn­aði Lars Løkke sjóð, Løkke fonden. Sjóðnum er ætlað að styrkja og styðja við pilta sem lent hafa út af spor­inu (eins og Lars Løkke kallar það). Lars Løkke var for­maður sjóðs­ins frá stofnun og þangað til hann varð for­sæt­is­ráð­herra öðru sinni, árið 2015. Síðan þá hefur eig­in­konan, hin fær­eyska Sólrún, gegnt for­mennsk­unni. Fjár til sjóðs­ins er aflað með frjálsum fram­lögum, á síð­asta ári námu þessi fram­lög jafn­gildi hálfrar sjö­undu millj­ónar íslenskra króna. Ekstra­blaðið greindi frá því fyrir nokkru að meira en helm­ingur þess­arar upp­hæðar hefði komið frá stór­út­gerð­ar­mönnum á Norð­vestur-Jótlandi. Stærsta ein­staka fram­lagið frá John-Anker Hametner Larsen, sá er meðal stór­lax­anna í danskri útgerð, kvóta­kóng­anna svo­nefndu.

John-Anker hefur í jan­ú­ar­mán­uði und­an­farin ár skipu­lagt fjár­öfl­un­ar­kvöld­verð fyrir Løkke sjóð­inn, svo­nefnt tor­skeg­ilde. Þarna hefur Lars Løkke ætíð mætt, ekki sem for­sæt­is­ráð­herra að eigin sögn heldur sem for­maður sjóðs­ins og síðar sem eig­in­maður for­manns­ins. Ekstra­blaðið greindi frá því, fyrir skömmu, að áður en fjár­öfl­un­ar­kvöld­verð­ur­inn í fyrra hófst hafði Lars Løkke átt klukku­stundar fund með nokkrum stór­út­gerð­ar­mönnum, þar á meðal John-Anker Hametner Larsen. Í fyrra mætti Thomas Dani­el­sen tals­maður Venstre í sjáv­ar­út­vegs­málum einnig í kvöld­verð­inn. Áður­nefndur John-Anker hafði þá nokkru fyrr keypt hlutafé fyrir jafn­gildi 67 millj­óna íslenskra króna í fyr­ir­tæki sem Thomas Dani­el­sen á stóran hlut í, ásamt eig­in­konu sinni.

Sumarbústaðardvöl í afmælisgjöf

Ekstra­blaðið greindi frá því fyrir nokkru að árið 2014, þegar Lars Løkke varð fimm­tugur (og í stjórn­ar­and­stöðu) hefði John-Anker gefið honum dvöl í sum­ar­húsi sínu á Skagen, nyrst á Jótlandi. Lars Løkke not­færði sér gjöf­ina árið 2016 (þá for­sæt­is­ráð­herra), Ekstra­blaðið segir viku­leigu í svona húsi jafn­gilda 185 þús­undum íslenskra króna. Þeir Lars Løkke og John-Anker þekkj­ast sem­sagt vel en sá Lars Løkke er ekki for­sæt­is­ráð­herr­ann heldur prí­vat­per­sónan, segir Løkke.

Er eitt­hvað athuga­vert við að maður þekki mann? Þessari ein­földu spurn­ingu hefur Lars Løkke margoft svarað og ætíð neit­andi. En það eru ekki allir sam­mála for­sæt­is­ráð­herr­anum, til dæmis margir þing­menn, sem telja þessi tengsl hans við kvóta­kóng­ana í meira lagi óeðli­leg. Ekki síst í ljósi þess að rík­is­stjórnin hefur tregð­ast við að gera breyt­ingar á kvóta­kerf­inu en slíkar breyt­ingar myndu gera það að verkum að stór­út­gerð­ar­menn gætu ekki haldið áfram að kaupa upp kvóta eins og þeim hefur reynst mögu­legt all­mörg und­an­farin ár. Tregða rík­is­stjórn­ar­innar þykir mörgum grun­sam­leg, sumir þing­menn segja kvóta­kóng­ana hafa Lars Løkke og rík­is­stjórn­ina „í vas­anum“. Því neitar Lars Løkke og segir að per­sónu­legur kunn­ings­skapur sinn við suma stór­út­gerð­ar­menn hafi engin áhrif á störf sín sem for­sæt­is­ráð­herra.

Tvisvar yfirheyrður af þingnefnd

Lars Løkke hefur tvisvar verið kvaddur fyrir þing­nefnd til að svara fyrir hugs­an­leg tengsl sín við stór­út­gerð­ar­menn. Slíkir fundir kall­ast sam­rád, sam­ráð, sem er í raun rang­nefni, yfir­heyrsla væri rétt­ara heiti á fundum þessum. Fyrri fund­ur­inn var í nóv­em­ber á síð­asta ári og sá síð­ari fyrir nokkrum dögum. Þrátt fyrir að þing­menn hafi sótt hart að Lars Løkke hefur hann þver­tekið fyrir að kunn­ings­skapur ráði, eða hafi ráðið, nokkru um störf sín á ráð­herra­stóli. Spurn­ingum um afmæl­is­gjöf­ina (dvöl­ina í sum­ar­bú­staðnum) neit­aði Lars Løkke að svara og vís­aði til reglna þings­ins um einka­mál þing­manna.

Hvað svo?

Danskir stjórn­mála­skýrendur telja að þessu máli varð­andi tengsl for­sæt­is­ráð­herr­ans og kvóta­kóng­anna sé lokið. Lars Løkke sitji áfram í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og staða hans í Venstre flokknum sé sterk. Hins vegar verði þetta mál ekki til að auka vin­sældir hans meðal almenn­ings en það láti Lars Løkke sér lík­lega í léttu rúmi liggja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár