Velferðarnefnd vill framlengja hlutabótaleiðina út árið 2020

Meiri­hluti vel­ferð­ar­nefndar leggur til að sami ein­stak­lingur sem hafi þegar nýtt hluta­bóta­leið­ina, en verið svo end­ur­ráð­inn í fullt starf, geti nýtt hana aftur ef vinnu­veit­andi við­kom­andi er kom­inn aftur í rekstr­ar­vand­ræði.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Meiri­hluti vel­ferð­ar­nefndar leggur til að gild­is­tími hluta­bóta­leið­ar­innar verði fram­lengdur út þetta ár, í stað þess að hann gildi út októ­ber líkt og frum­varp Ásmundar Einars Daða­sonar, félags- og barna­mála­ráð­herra, gerir ráð fyrir.

Þetta kemur fram í áliti meiri­hlut­ans á mál­inu sem birt var á vef Alþingis í gær­kvöldi.

Auk þess leggur meiri hlut­inn áherslu á að fjár­mögnun úrræð­is­ins verði tryggð í fjár­auka­lögum síðar á þessu ári. „Í þessu sam­hengi telur meiri hlut­inn því ekk­ert til fyr­ir­stöðu að hluta­bóta­leiðin verði nýtt aftur fyrir sama ein­stak­ling sem hefur verið end­ur­ráð­inn í fullt starf, að því gefnu að skil­yrði fyrir nýt­ingu úrræð­is­ins séu upp­fyllt, þ.m.t. að um sé að ræða lækkað starfs­hlut­fall. Hins vegar getur ein­stak­lingur ekki nýtt sér hluta­bóta­leið­ina ef hann er end­ur­ráð­inn í 50 pró­sent starfs­hlut­fall enda er þá ekki um að ræða tíma­bundna lækkun á starfs­hlut­falli.“

Mikill samdráttur á nýtingu

Hluta­bóta­leiðin er það úrræði stjórn­valda sem gripið hefur verið til vegna yfir­stand­andi heims­far­ald­urs sem nýst hefur hvað best. Til­gangur hennar er að við­halda ráðn­ing­ar­sam­bandi milli starfs­manns og fyr­ir­tækis þegar rekstr­ar­grund­völlur fyr­ir­tæk­is­ins brestur tíma­bundið. Auk þess tryggir hún sjálf­stætt starf­andi ein­stak­lingum með eigin rekstur í félagi svig­rúm til þess að draga úr rekstri án þess að verða fyrir óvið­ráð­an­legu tekju­tapi vegna far­ald­urs­ins.

[adspot]Í því felst að hið opin­bera greiðir hluta af launum starfs­manna fyr­ir­tækja sem upp­fylla sett skil­yrði hennar upp að ákveðnu þaki. Í vor, þegar leiðin var fyrst kynnt til leiks, var það hlut­fall 75 pró­sent en það var síðan lækkað niður í 50 pró­sent í sumar og mun verða þannig áfram, sam­þykki Alþingi að fram­lengja leið­ina. Síðasta fram­leng­ing á hluta­bóta­leið­inni rann út í byrjun þess­arar viku og því er hún í raun ekki í gildi eins og er.

Þegar mest var, í apr­íl, nýttu 33.637 manns hluta­bóta­leið­ina. Í júlí var sú tala komin niður í 3.862 sem leiddi af sér 300 millj­óna króna kostn­að, sam­kvæmt minn­is­blaði fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra dag­sett 14. ágúst sem lagt var fyrir rík­is­stjórn fyrr í mán­uð­in­um. Þar segir að búast megi við því að tæp­lega helm­ingur þeirra sem nýttu úrræðið í júlí hafi gert það í ágúst. Kostn­aður við að fram­lengja leið­ina út októ­ber átti að vera tveir millj­arðar króna, en hún kost­aði rík­is­sjóð alls 18 millj­arða króna frá mars og út júlí­mánuð.

Sanngirnisrök

Í umsögn meiri­hluta vel­ferð­ar­nefndar, sem sam­anstendur af þing­mönnum stjórn­ar­flokk­anna í nefnd­inni, segir að þrátt fyrir að veru­lega hafi dregið úr ásókn í úrræðið sé enn nokkur fjöldi launa­manna sem fær hluta fram­færslu sinnar vegna úrræð­is­ins og heldur ráðn­ing­ar­sam­bandi. „Fyrir nefnd­inni komu fram þau sjón­ar­mið að það geti reynst tor­velt að reka saman til langs tíma tvö mis­mun­andi kerfi, þ.e. hefð­bundið atvinnu­leys­is­trygg­inga­kerfi og hluta­bætur, og bent á það misvægi sem gæti skap­ast milli rétt­inda þeirra sem væru ann­ars vegar á hluta­bótum og þeirra sem væru hins vegar atvinnu­leit­endur og á atvinnu­leys­is­bótum. Í ljósi þess telur meiri hlut­inn því ekki skyn­sam­legt að lengja gild­is­tíma úrræð­is­ins til lang­frama.“

Sann­girn­is­rök hnígi hins vegar að því að lengja gild­is­tím­ann meira en í tvo mán­uði. Þar komi til að aðdrag­and­inn að því að afnema úrræðið end­an­lega hafi verið full­stuttur, og það að fram­lengja í tvo mán­uði muni ekki breyta miklu í stöðu þeirra fyr­ir­tækja sem séu að skoða mögu­leika sína á að halda áfram ráðn­ing­ar­sam­bandi. 

Vildi lengja úrræðið til júní 2021

Þeir full­trúar stjórn­ar­and­stöðu í vel­ferð­ar­nefnd sem hafa skilað inn minni­hluta­á­litum um málið vildu lengja gild­is­tíma leið­ar­innar umfram það sem meiri­hlut­inn lagði til. Anna Kolbrún Árna­dóttir, þing­maður Mið­flokks­ins, vildi fram­lengja hann út febr­úar 2021, eða um sex mán­uði.

[links]Helga Vala Helga­dóttir, for­maður vel­ferð­ar­nefndar og þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, vildi ganga enn lengra og lagði til að hluta­bóta­leiðin yrði fram­lengd til 1. júní 2021. Í áliti hennar segir að hluta­bóta­leiðin sé vel heppnuð aðgerð sem fyrst og fremst gekk út á að við­halda ráðn­ing­ar­samn­ingi þegar atvinnu­leysi jókst mikið. „Stjórn­völd tóku því miður þá ákvörðun síð­ast­liðið vor að beina fyr­ir­tækjum frekar í það úrræði að segja upp fólki með stuðn­ingi stjórn­valda í upp­sagn­ar­fresti en að liðka til fyrir fyr­ir­tæki að við­halda ráðn­ing­ar­sam­bandi. 2. minni hluti var­aði mjög við þeirri ákvörðun enda hefur komið í ljós að það voru dýr mis­tök. Fækkaði ein­stak­lingum í hluta­bóta­úr­ræði úr rúmum 30.000 í tæp­lega 3.000 á tíma­bil­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár