„Milljónamæringa-skattur“ lagður á

Nýr skattur á stór­eigna­fólk hefur verið tek­inn upp í Argent­ínu til að standa straum af kostn­aði vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Skatt­tekj­urnar verða m.a. not­aðar til að kaupa lækn­inga­vörur.

Sjúklingur á gjörgæsludeild í Buenos Aires. Heilbrigðiskerfi Argentínu er komið að þolmörkum.
Sjúk­lingur á gjör­gæslu­deild í Buenos Aires. Heil­brigð­is­kerfi Argent­ínu er komið að þol­mörkum. Mynd: EPA

Frumvarp um millj­óna­mær­inga-skatt­inn, eins og hann er kall­aður, var sam­þykkt á argent­ínska þing­inu í gær. 42 þing­menn stuttu hinn nýja skatt en 26 voru á móti.

Skatt­ur­inn verður aðeins lagður á stór­eigna­fólk sem á eignir metnar á 200 millj­ónir pesósa eða meira (um 315 millj­ónir króna). Um 12 þús­und manns í land­inu falla í þennan hóp.

Í kringum 1,5 millj­ónir til­fella af kór­ónu­veirunni hafa greinst í Argent­ínu og talið er að um 40 þús­und manns hafi lát­ist vegna COVID-19.

Argent­ína hefur því orðið verr úti en flestar aðrar þjóðir í far­aldr­inum. Íbúar lands­ins eru um 45 millj­ónir. Til ýmissa harðra aðgerða hefur verið gripið til að hefta útbreiðsl­una. Það hefur haft áhrif á efna­hags­lífið sem var veik­burða áður en kór­ónu­veiran kom til sög­unnar. Þar eru margir undir fátækt­ar­mörkum, skuldir rík­is­ins eru gríð­ar­legar og atvinnu­leysi útbreitt. Efna­hag­skreppa hófst í Argent­ínu árið 2018 og hefur aðeins dýpkað síð­ustu mán­uði.

Nýi skatt­ur­inn mun leggj­ast á um 0,8 pró­sent lands­manna. Þessi hópur mun þurfa að greiða skatta af eignum sínum, bæði eignum í Argent­ínu og utan land­stein­ana. Forseti lands­ins, Alberto Fernandez, von­ast til þess að þetta skili 300 millj­örðum pesósa í rík­is­kass­ann til að standa straum af kostn­aði við lækn­inga­vörur og efna­hags­að­gerðir ýmis konar.

Leið­togar stjórn­ar­and­stöð­unnar segja millj­óna­mær­inga-skatt­inn hins vegar eiga eftir að fæla fjár­festa frá land­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár