Bráðabirgðaklósett fyrir sumarið slegin út af borðinu

Ekki þótti fýsi­legt að koma upp bráða­birgðasal­ernum á fjöl­sóttum ferða­manna­stöðum í sumar. Meðal ann­ars er ástæðan sú að það er ekki tími til þess.

Mikill skortur er á boð­legum almenn­ings­sal­ernum um allt land, og ekki er útlit fyrir að það breyt­ist mikið í sumar. Stjórn­stöð ferða­mála ætl­aði upp­haf­lega að vera til­búin með til­lögur um for­gangs­röðun staða þar sem nauð­syn­legt þykir að fjölga sal­ernum fyrir ferða­menn í apríl síð­ast­liðnum. Nú er stefnt að því að ljúka því verk­efni í júní, en ljóst er að lítið mun ger­ast til við­bótar í sal­ern­is­málum fyrir ferða­menn í sumar þar sem það tekur langan tíma að koma upp við­un­andi aðstöðu, jafn­vel þó hún eigi bara að vera til bráða­birgða.

Stjórn­stöð ferða­mála hóf vinnu tengda sal­ern­is­málum í febr­úar síð­ast­liðnum. Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, ráð­herra ferða­mála, sagði frá því í skýrslu um ferða­mál sem hún lagði fyrir Alþingi í apríl síð­ast­liðnum að síðar í þeim mán­uði væru áætluð verk­lok. Af því varð hins vegar ekki.

Hluti af þessu verk­efni er skýrsla sem verk­fræði­stofan EFLA gerði fyrir Stjórn­stöð ferða­mála um stöðu og upp­bygg­ingu sal­ern­is­mála á ferða­manna­stöðum á Íslandi. Sú skýrsla var kynnt fyrir nokkrum dögum og er fyrsta áfanga­skýrsla af þremur sem birtar verða um þessi mál.

Slæmt ástand víðast hvar

EFLA gerði úttekt á 66 vin­sælum ferða­manna­stöðum um allt land, sem allir eru annað hvort innan þjóð­garðs, fólk­vangs, friðlands, frið­lýst nátt­úru­vætti eða frið­lýstar nátt­úru­minjar. „Því er mik­il­vægt að byggja upp aðstöðu á þessum stöðum sem tekið getur á móti þeim fjölda ferða­manna sem stað­ina sækja og er við­un­andi sal­ern­is­að­staða nauð­syn­legur hluti þeirrar upp­bygg­ingar,“ segir EFLA í skýrslu sinni.

„Við marga af helstu ferða­manna­stöðum lands­ins er sal­ern­is­að­staða mjög fátæk­leg og sum­staðar hrein­lega ekki til staðar,“ segir enn­fremur í sam­an­tekt EFLU. „Þar sem hún er til staðar er hún oft á höndum einka­að­ila sem bjóða upp á sal­erni fyrir sína við­skipta­vini, t.d. bens­ín­stöðvar, mat­sölu­staðir og minja­gripa­búðir.“ Allir sem rætt var við fyrir skýrsl­una voru sam­mála um að mik­ill skortur sé um allt land á boð­legum almenn­ings­sal­ernum, sem séu undir eft­ir­liti þjón­ustu­að­ila og opin eru allan sól­ar­hring­inn alla daga árs­ins.

Bráðabirgðasalerni slegin út af borðinu

Í skýrsl­unni sem EFLA gerði fyrir Stjórn­stöð ferða­mála kemur fram að kannað hafi verið hvort fýsi­legt væri að koma upp bráða­birgðasal­ernum frá og með sumr­inu í sumar til þess að takast á við ástandið þar sem það er hvað verst. Haft var sam­ráð við Skipu­lags­stofnun, Umhverf­is­stofnun, skipu­lags­full­trúa, Ferða­mála­stofu og fleiri en nið­ur­staðan var sú að það væri ekki fýsi­legt að koma upp bráða­birgðasal­ernum þar sem þörfin er mest.

Margar ástæður voru nefndar fyrir því að fara ekki í gerð bráða­birgðasal­erna. Segja má að margar þeirra eigi það sam­eig­in­legt að ein­fald­lega hafi ekki verið ráð­ist í verk­efnið nógu snemma. Það þurfi fram­kvæmda­leyfi til að setja niður rot­þrær og ekki sé tími til að sækja um öll leyfi fyrir sum­arið. Sömu sögu er að segja af sjálfum kló­sett­unum, því bestu bráða­birgða­kló­settin eru með fjög­urra mán­aða afhend­ing­ar­tíma og væru því aldrei til­búin fyrr en eftir sum­arið.

Þá ríkir óvissa um rekst­ur­inn á sal­ern­unum auk þess sem deilur við land­eig­endur koma sums staðar í veg fyrir alla upp­bygg­ingu. Skipu­lags­stofnun, Umhverf­is­stofnun og Ferða­mála­stofa settu sig líka öll upp á móti bráða­birgða­lausnum vegna þess að þær töldu hættu á að slíkar lausnir myndu hægja á eða stöðva upp­bygg­ingu á var­an­legum lausnum.

Hundruðum milljóna úthlutað í salernismál

Af þessum 66 stöðum sem skoð­aðir voru þóttu aðeins 19 þeirra vera í lagi. Allir aðrir staðir voru ýmist við þol­mörk, aðstöðu ábóta­vant eða ástandið talið slæmt. Níu staðir komu verst út allra, þar sem talið er nauð­syn­legt að ráð­ast í úrbætur á kló­sett­málum. Það eru Jök­ulsár­lón, Goðafoss, Detti­foss, Selja­lands­foss, Grábrók, Látra­bjarg, Hjálp­ar­foss, Dyrhóley og Kerið.

Við Hjálp­ar­foss og Dyr­hólaey verður bætt úr í sumar með styrk frá Fram­kvæmda­sjóði ferða­manna­staða. Í Dyr­hólaey á að koma upp aðstöðu í sumar. Við Selja­lands­foss sótti sveit­ar­fé­lagið þar um styrk í sama sjóð til að geta stækkað sal­ern­is­að­stöðu, en fékk ekki styrk til þess.

Búið er að úthluta um 300 millj­ónum króna í úrbætur í sal­ern­is­málum úr Fram­kvæmda­sjóði ferða­manna­staða á þessu ári og síð­asta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár