Vinstri græn ekki mælst með jafn lítið fylgi í sjö ár

Leita þarf aftur til vors­ins 2013 til að finna jafn lít­inn stuðn­ing við Vinstri græn í könn­unum MMR. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætir við sig og mælist með fjórð­ungs­fylgi. Athygli vekur að fylgi við flokk­inn sveifl­ast í gagn­stæða átt við fylgi Mið­flokks­ins þegar gögn er skoðuð aftur í tím­ann.

Ekki mælst minni á kjörtímabilinu
Ekki mælst minni á kjör­tíma­bil­inu Stuðn­ingur við Vinstri græn hefur ekki mælst minni frá árinu 2013. Mynd: RÚV

Fylgi við Vinstri græn mælist nú 7.5 pró­sent í nýrri könnun MMR og hefur flokk­ur­inn ekki mælst með jafn lágt fylgi áður á kjör­tíma­bil­inu í könn­unum MMR. Í síð­ustu könnun, 26. októ­ber,  mæld­ist fylgi við Vinstri græn 8,3 pró­sent. Flokk­ur­inn hefur tapað vel yfir helm­ingi af kjör­fylgi sínu frá síð­ust kosn­ingum, en þá fengu Vinstri græn 16,9 pró­sent atkvæða.

Flokk­ur­inn hefur raunar aðeins einu sinni mælst með minni stuðn­ing á und­an­förnum ára­tug, 14. apríl 2013, skömmu fyrir Alþing­is­kosn­ingar, þegar fylgi við Vinstri græn mæld­ist 6,7 pró­sent í einni könnun. Flokk­ur­inn hlaut 10,9 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 27. apríl það ár.

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins eykst mark­vert milli kann­ana en stuðn­ingur við flokk­inn nú er 25 pró­sent og mælist hann með mest fylgi flokka á land­inu. Það er því sem næst sama fylgi og flokk­ur­inn hlaut í kosn­ing­unum 2017. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mæld­ist með 21,9 pró­sent fylgi í könnun MMR í síð­asta mán­uði.

Sam­fylk­ingin eykur við sig fylgi milli kann­ana, þó ekki þannig að um töl­fræði­lega mark­tæka aukn­ingu sé að ræða. Fylgi við flokk­inn mælist nú 16,7 pró­sent en var 15,2 pró­sent í síð­ustu könnun. Flokk­ur­inn nýtur næst­mests stuðn­ings flokka á Alþingi.

Píratar mæl­ast lítið eitt hærri en í síð­ustu könnun, þó innan vik­marka. 14,3 pró­sent aðspurðra segj­ast styðja Pírata, borið saman við 13,5 pró­sent í síð­asta mán­uði. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með því sem næst sama stuðn­ing og í síð­ustu könnun, 9,9 pró­sent nú borið saman við 10,2 pró­sent síð­ast.

Mið­flokk­ur­inn mælist nú með 9,1 pró­senta fylgi en mæld­ist síð­ast með 11,6 pró­sent. Það er töl­fræði­lega mark­tækur munur. Í frétt MMR um könn­un­ina nú kemur fram að þegar gögn séu skoðuð veki athygli að stuðn­ingur við Sjálf­stæð­is­flokk sveiflist í gagn­stæða átt við fylgi Mið­flokks­ins. Bendi það til að bar­átta standi flokk­anna á milli um sama kjós­enda­hóp.

Fylgi við Viðreisn dalar lít­il­lega milli kann­ana, þó innan vik­marka, en flokk­ur­inn mælist nú með 8,4 pró­senta fylgi en mæld­ist síð­ast með 9,7 pró­senta stuðn­ing. Sós­í­alista­flokk­ur­inn nýtur stuðn­ings 4 pró­senta aðspurðra borið saman við 4,6 pró­sent í síð­ustu könnun. Ekki er um töl­fræði­lega mark­tækan mun að ræða milli kann­ana. Þá mælist Flokkur fólks­ins með 3,9 pró­senta fylgi, nálega hið sama og síð­ast þegar flokk­ur­inn mæld­ist með 3,8 pró­senta fylgi. Stuðn­ingur við aðra er sam­an­lagt 1,1 pró­sent.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist nú 51,7 pró­sent, rúmu pró­sentu­stigi meira en í síð­ustu könnun þegar stuðn­ing­ur­inn mæld­ist 50,3 pró­sent.

925 manns yfir 18 ára svör­uðu könn­un­inni sem gerð var dag­ana 6. til 11. nóv­em­ber. 81,8 pró­sent gáfu upp afstöðu sína til flokka, 6 pró­sent sögð­ust óákveðnir, 4,5 pró­sent kváð­ust myndu skila auðu, 2,1 pró­sent sögðu að þau myndu ekki mæta á kjör­stað og 5,5 pró­sent vildu ekki gefa upp afstöðu sína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hug­sjóna­flokkur verður að borg­ara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síð­ustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trú­verð­ug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokk­ur­inn tal­aði áður skýrt á móti. Samhliða hefur rót­tækt fólk úr gras­rót­inni yfir­gefið Vinstri græn, kjós­enda­hóp­ur­inn breyst, hratt gengið á póli­tíska inn­eign Katrínar Jak­obs­dóttur og fylgi flokks­ins hrunið. Þetta er fórn­ar­kostn­aður þess að kom­ast að völdum með áður yfir­lýstum póli­tískum and­stæð­ingum sínum.

10 mín. lestur

ÚttektRíkisstjórn Katrínar

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár