Það helsta hingað til: Fléttan um Arion banka

Kjarninn tók saman helstu frétta­mál íslensks sam­fé­lags á fyrsta fjórð­ungi árs­ins 2018. Þar á meðal er kaup og sala á hlutum í Arion banka, stærsta banka þjóð­ar­innar.

Hvað?

Lokakafl­inn í flétt­unni um fram­tíð Arion banka, eina stóra við­skipta­bank­ans á Íslandi sem er ekki að meiri­hluta í rík­i­s­eigu, stendur nú yfir.

Hann hófst þegar líf­eyr­is­sjóðum lands­ins var boðið að kaupa allt að fimm pró­sent hlut í bank­anum. Sjóð­irnir höfðu til 12. febr­úar að svara til­boð­inu. Þeir sögðu pass hver á fætur öðrum.

Í kjöl­farið var þeim skila­boðum komið til Banka­sýslu rík­is­ins að vilji væri hjá Kaup­skilum, félagi í eigu Kaup­þings þar sem vog­un­ar­sjóðir eru stærstu hlut­haf­arnir, að virkja kaup­rétt á 13 pró­sent hlut rík­is­ins í Arion banka og greiða um 23 millj­arða króna fyrir 13 pró­sent hlut rík­is­ins.

Samhliða fór fram stjórn­ar­fundur hjá Kaup­þingi sem, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, stóð fram á nótt. Nið­ur­staða hans var meðal ann­ars sú að tveir af erlendum hlut­höfum bæði Kaup­þings og Arion banka, Attestor Capital og fjár­fest­ing­ar­bank­inn Goldman Sachs, myndu kaupa 2,8 pró­sent hlut í Arion af Kaup­þingi til við­bótar við það sem þeir áttu. Auk þess keyptu rúm­lega 20 sjóðir í stýr­ingu fjög­urra af stærstu sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækjum Íslands: Stefnis, Íslands­sjóða, Lands­bréfa og Júpíter, sam­tals 2,54 pró­sent hlut. Sam­an­lagt kaup­verð var um 9,5 millj­arðar króna.

Af hverju?

Ástæða þess að salan á hlutnum var keyrð í gegn þennan dag var ein­föld: þá var hægt að miða kaup­verðið við níu mán­aða upp­gjör Arion banka. Miðað við það er verðið sem greitt var fyrir 0,805 krónur á hverja krónu af eigin fé sem bank­inn á. Ef verðið hefði farið niður fyrir 0,8 krónur hefði for­kaups­réttur rík­is­ins á hlutnum virkj­ast. Ef við­skiptin hefðu farið fram 14. febr­úar hefði það gerst.

15. febr­úar var sam­þykkt að Arion banki myndi kaupa 9,5 pró­sent hlut í sjálfum sér af Kaup­skil­um, félagi í eigu Kaup­þings, stærsta eig­anda bank­ans. Um er að kaup á eigin bréfum í sam­ræmi við ákvörðun hlut­hafa­fundar. Til við­bótar var greidd arð­greiðsla upp á 7,9 millj­arða króna.

Hver var niðurstaðan?

Mikil póli­tísk átök urðu um ofan­greindar vend­ingar. Hluti þing­manna vildi að stjórn­völd myndu grípa inn í ferlið með ein­hverjum hætti, annað hvort með því að nýta for­kaups­rétt sinn á hlutum í Arion banka eða með því að hafna nýt­ingu Kaup­þings á kaup­rétt­inum á hlut rík­is­ins. Stjórn­völd töldu hvor­ugt ger­legt, enda engar for­sendur til staðar til nýt­ingar á for­kaups­rétt­inum og nýt­ing kaup­réttar í sam­ræmi við gerða samn­inga. Auk þess er það skoðun margra ráða­manna að æski­legt sé að ríkið selji að minnsta kosti hluta þeirra banka­eigna sem það á.

Allt er þetta hluti af skrán­ing­ar­ferli Arion banka. Fram undan er nefni­lega tví­hliða­skrán­ing Arion banka á markað, hér­lendis og í Svíþjóð. Enn er stefnt að því að sú skrán­ing fari fram í apríl. Í aðdrag­anda hennar mun fara fram hluta­fjár­út­boð þar sem Kaupþing mun bjóða til sölu hluta af eign sinni í bank­anum.

Í aðdrag­anda skrán­ingar er eign­ar­hald Arion banka nú mjög breytt frá því sem það var í upp­hafi árs. Kaupþing, vog­un­ar­sjóðir sem eru ráð­andi innan þess félags og Goldman Sachs eiga nú 87,95 pró­sent í Arion banka. Bankinn á sjálfur 9,5 pró­sent hlut sem vænt­an­lega verður færður niður á næst­unni og íslenskir fjár­fest­inga­sjóðir eiga 2,54 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár