Sjálfstæðisflokkurinn mælist tvisvar sinnum stærri en Samfylkingin

Stærsti flokkur lands­ins mælist nú yfir kjör­fylgi. Hinir tveir flokk­arnir sem sitja með honum í rík­is­stjórn myndu bíða afhroð ef kosið yrði í dag. Flokkur fólks­ins er á skriði og Sós­í­alista­flokkur Íslands næði inn á þing.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, getur verið ánægður með nýjustu könnun MMR.
Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, getur verið ánægður með nýj­ustu könnun MMR. Mynd: Bára Huld Beck

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætir vel við sig á milli mán­aða í könnun MMR, en fylgi flokks­ins mælist nú 27,1 pró­sent. Það er næst mesta fylgi sem flokk­ur­inn hefur mælst með á kjör­tíma­bil­inu. Eina skiptið sem MMR mældi hann stærri var í mars síð­ast­liðnum, í fyrstu könnun eftir að COVID-19 far­ald­ur­inn skall á Íslandi, þar sem fylgið mæld­ist 27,4 pró­sent. Yrði þetta nið­ur­staða kosn­inga myndi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bæta við sig næstum tveimur pró­sentu­stigum frá kosn­ing­unum 2017.

Sam­fylk­ingin tapar að sama skapi fylgi milli mán­aða og mælist nú með 13,8 pró­sent fylgi. Það er næstum þremur pró­sentu­stigum minna fylgi en hún mæld­ist með fyrir um mán­uði og ein­ungis 1,7 pró­sentu­stigi yfir því sem flokk­ur­inn fékk upp úr kjör­köss­unum fyrir rúmum þremur árum.

[adspot]Píratar mæl­ast jafn stór og Sam­fylk­ing en tapa samt hálfu pró­sentu­stigi milli mán­aða. Viðreisn bætir við sig frá síð­ustu könnun og mælist nú með 9,5 pró­sent stuðn­ing.

Hinir stjórn­ar­flokk­arnir tveir, Vinstri græn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, eru ekki í góðri stöðu. Þeir mæl­ast báðir með 7,6 pró­sent fylgi.Það er 2,3 pró­sentu­stigum minna en Framsókn mæld­ist með fyrir mán­uði en nán­ast það sama og í nóv­em­ber. Saman hafa flokk­arnir tapað 12,4 pró­sentu­stigum af fylgi á kjör­tíma­bil­inu, á sama tíma og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur bætt við sig 1,9 pró­sentu­stigi.

Níu flokkar næðu inn

Líkt og vana­lega þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætir við sig þá skreppur Mið­flokk­ur­inn saman milli kann­ana. Hann mæld­ist með 9,1 pró­sent fylgi í nóv­em­ber en nú segj­ast sjö pró­sent kjós­enda styðja Mið­flokk­inn. Það er lægsta fylgi flokks­ins í könn­unum MMR frá því að fyr­ir­tækið hóf að mæla flokk­inn, ef frá eru taldir þeir þrír mán­uðir sem fylgdu í kjöl­far Klaust­urs­máls­ins svo­kall­aða í lok árs 2018 og byrjun árs 2019.

Flokkur fólks­ins hress­ist veru­lega milli mán­aða og mælist nú með 6,2 pró­sent stuðn­ing. Það er mesta fylgi sem flokk­ur­inn hefur mælst með hjá MMR í heilt ár. Sós­í­alista­flokkur Íslands bætir sömu­leiðis við sig pró­sentu­stigi milli mán­aða og mælist með fimm pró­sent fylgi. Það myndi lík­ast til duga honum inn á þing og gera það að verkum að fá atkvæði myndu detta niður dauð, en ein­ungis 2,34 pró­sent aðspurðra sögð­ust ætla að kjósa önnur fram­boð en þau níu sem nefnd eru hér að ofan.

Könnunin var fram­kvæmd 26. nóv­em­ber - 3. des­em­ber 2020 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 944 ein­stak­lingar, 18 ára og eldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár