Hvert nýtt ráðuneyti kostar í kringum 190 milljónir króna á ári

Þegar rík­is­stjórn­ar­sam­starfið var end­ur­nýjað var ákveðið að fjölga ráð­herrum úr ell­efu í tólf en ráðu­neyt­unum úr tíu í tólf. Kostn­aður við stofnun nýs ráðu­neytis er met­inn á 190 millj­ónir króna.

Heilt yfir er áætlað að kostn­aður, vegna stofn­unar nýs ráðu­neytis sé í kringum 190 millj­ónir króna á árs­grund­velli. Núver­andi rík­is­stjórn hefur ákveðið að fjölga ráðu­neytum úr tíu í tólf. Í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur lagt fram um breytta skipan ráðu­neyta innan stjórn­ar­ráðs­ins, og var birt á vef Alþingis síð­degis í dag, kemur þó fram að kostn­aður við þá við­bót verði „minni en tvö­faldur sá kostn­aður enda fjölgar ráð­herrum aðeins um einn og tak­markast fjölgun stöðu­gilda aðstoð­ar­manna ráð­herra, rit­ara og bíl­stjóra af því.“

Þar segir enn fremur að gert sé ráð fyrir að end­an­legt mat á kostn­aði vegna skipu­lags­breyt­ing­anna komi fram við til­lögu­gerð við aðra og eftir atvikum þriðju umræðu á Alþingi um frum­varp til fjár­laga fyrir árið 2022.

[adspot]Kostn­að­ur­inn sem fellur til er að uppi­stöðu vegna launa­kostn­aðar, rekstr­ar­kostn­aðar og kostn­aðar við hús­næði. Að frá­töldum ráð­herra og tveimur aðstoð­ar­mönnum megi gera ráð fyrir að að minnsta kosti sex ný stöðu­gildi verði til við stofnun nýs ráðu­neytis, þar með talin ný staða ráðu­neyt­is­stjóra.

Þegar end­ur­nýjað sam­starf Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks var kynnt greindu for­menn flokk­anna frá því að þeir ætl­uðu að fjölga ráð­herrum í tólf. Þeir hafa aldrei verið fleiri hér­lendis.

Auk þess voru mála­flokkar færðir til og kynnt að heiti ráðu­neyta myndu breyt­ast. Í stað atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytis, félags­mála­ráðu­neytis, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytis, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytis og umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytis koma félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyti, háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyti, inn­við­a­ráðu­neyti, mat­væla­ráðu­neyti, menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neyti, mennta- og barna­mála­ráðu­neyti og umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár