Reynslan af heimsóknarbanni á hjúkrunarheimili: „Fólki hrakaði“

Við verðum að finna leiðir svo að fólk fái að hitt­ast, segir Þórunn Svein­björns­dóttir, for­maður Lands­sam­bands eldri borg­ara um heim­sókn­ar­tak­mark­anir til eldra fólks í vetur. „Ein­mana­leiki er vágestur.“

Þórunn Sveinbjörnsdóttir.
Þórunn Svein­björns­dóttir. Mynd: Lögreglan

Reynslan af því að íbúar á hjúkr­un­ar­heim­ilum gátu ekki fengið heim­sóknir í vetur og vor vegna far­sótt­ar­innar er ekki góð að sögn Þórunnar Svein­björns­dóttur, for­manns Lands­sam­bands eldri borg­ara. „Fólki hrak­aði. Til dæmis alzheimer-sjúkum, þeim hrak­aði við það að eng­inn kom [í heim­sókn] og þekktu svo jafn­vel ekki sína nán­ustu.“

Þórunn seg­ist gera sér grein fyrir því að tak­mark­an­irnar hafi verið settar á í þeim til­gangi að vernda við­kvæma hópa sam­fé­lags­ins. „En ég held að það sé vert að hug­leiða fleiri mögu­leika, ein­hverja aðra mögu­leika til að hjálpa fólki að hitt­ast. Leggja virki­lega höf­uðið í bleyti, hvernig getum við gert það. Og ég held að það hljóti að finn­ast ein­hverjar leiðir.“

Þórunn var gestur á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­læknis í dag. Sagði hún að eftir reynsl­una í vetur og vor hafi gef­ist hlé í sumar til að fara yfir stöð­una meðal eldri borg­ara, kanna líðan þeirra og hagi. Þetta er stór hópur, um 45 þús­und manns, og líðan fólks eftir því fjöl­breytt.

[adspot]

Eitt af því sem Þórunn segir breytt nú frá því sem var í vetur og vor sé að færri virð­ist vera úti að hreyfa sig. Hún vill sjá breyt­ingu á því. „Hreyfing er gríð­ar­lega mik­il­væg,“ ítrek­aði hún. „Við þurfum aftur að taka upp þessa bylgju sem fór í gang hvað þetta varðar.“ Hún sagði að það hættu­leg­asta sem fólk gerði, ekki síst þegar veik­indi eru í loft­inu, það er að setj­ast niður og gera ekki neitt. „Við köllum það að vera sófa­kartafla eða sófa­dýr en það er hrein­lega það versta sem þú getur gert fyrir þinn eigin lík­ama.“

Þórunn minnti líka á mik­il­vægi holls matar­æðis og sagði að til dæmis núna væri úrval af fersku íslensku græn­meti gríð­ar­legt. „Það hefur klár­lega komið í ljós að vannær­ing er til. Ekki aðeins út af heilsu­leysi heldur líka út af því að yfir 10 pró­sent eldri borg­ara búa við fátækt. „Það er fólk sem virki­lega þarf á okkur að halda.“

Að sögn Þórunnar var ýmis­legt gert í vor og sumar sem skil­aði góðum árangri. Sveit­ar­fé­lögin hafi verið dug­leg að ann­ast félags­starf aldr­aðra. Því hafi m.a. boð­ist kennsla á spjald­tölvur. „Þörfin var greini­lega mikil. Elsti hóp­ur­inn okkar hann er ekki tengdur, eins og maður segir, og hann er að missa af svo mörgu. Við verðum að hjálpa þeim að vera með í okkar sam­fé­lagi eins og það virkar í dag.“

Einnig hafi síma­vinir, sem Rauði kross­inn sem og sveit­ar­fé­lög stóðu fyrir, gefið góða raun. „Það er svo dýr­mætt og svo mik­ils virði,“ sagði Þórunn með áherslu. Fólki sem taldi sig þurfa vegna ein­mana­leika bauðst að fá síma­vin. Margir eru enn með sinn síma­vin, sagði Þórunn. „Ég er sjálf að prófa þetta og ég á indælan síma­vin. Þetta er nýr gluggi fyrir fólk inn í sam­fé­lagið.“

Þórunn sagði að mann­leg virð­ing, sem yrði að sýna eldra fólki, væri eitt það mik­il­væg­asta sem fyrir okkur öllum liggur. Hvatti hún m.a. ungt fólk til að tala oftar við afa og ömmu. Það er ómissandi.

Eldri borg­arar voru mjög dug­legir að ferð­ast inn­an­lands í sumar – en þeir voru líka hræddir, töldu nánd­ina á ferða­lagi of mikla og treystu sér ekki til ferða­laga.

„Ein­mana­leiki er vágestur. Allar þjóðir í Evrópu eru að glíma við þetta,“ sagði Þórunn og biðl­aði til eldri borg­ara að sýna var­kárni og sinna per­sónu­legum sýk­inga­vörnum. Ef varúð er höfð eru eldri borg­arar að hennar sögn á grænni grein „því við erum hraust að eðl­is­fari – enda sannir, gamlir vík­ingar eins og þið vitið – og ég óska öllum eldri borg­urum góðs í þessu verk­efni. Við stöndum saman og styðjum hvert annað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár