Deildu um ríkisfjármál - Viðreisn vildi ekki skattahækkanir

Viðræður flokk­anna fimm á miðj­unni og á vinstri vængnum sigldu í strand. Hvað ger­ist nú?

Eftir viku langan tíma í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum fimm flokka, undir for­ystu Katrínar Jak­obs­dóttur, for­manns Vinstri grænna, sigldu við­ræður í strand á sjötta tím­anum í dag. Vinstri græn, Björt fram­tíð, Viðreisn, Píratar og Sam­fylk­ingin munu því ekki mynda rík­is­stjorn.

Það steytti á nokkrum hlutum, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, en deilur um áherslur í rík­is­fjár­málum og þá helst þegar kemur að skatta­málum, reynd­ust óleys­an­legar. Viðreisn gat ekki sætt sig við hug­myndir um að hækka skatta, meðal ann­ars á þá sem hæstar tekjur af, eða yfir 1,5 millj­ónir á mán­uði, og leggja á eigna­skatta á þá allra rík­ustu í sam­fé­lag­inu.

Hug­myndir um upp­bygg­ingu í heil­brigðis- og mennta­kerf­inu voru tengdar þessum skatt­stofnum.

Augljós ágreiningur

Þá var einnig uppi ágrein­ingur í land­bún­aðar- og sjáv­ar­út­vegs­málum, en Viðreisn hefur sett það á odd­inn að gera kerf­is­breyt­ingar í þessum mála­flokkum. Vinstri græn hafa ekki talað fyrir því, og var um þetta deilt í við­ræð­unum, ekki síst á milli þess­ara tveggja flokka, Vinstri grænna og Við­reisnar. Aðrir flokkar, Píratar, Sam­fylk­ingin og Björt fram­tíð, voru til­búnir að gera mála­miðl­anir til að ná saman um fyrr­nefnd áherslu­mál, en það steytti einkum á ágrein­ingi milli Vinstri grænna og Við­reisnar. Benedikt til­kynnti Katrínu um að hann hefði ekki sann­fær­ingu fyrir fram­haldi við­ræðna, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, og var það einkum þetta sem leiddi til þess að við­ræð­unum lauk.

Hvað gerist næst?

Nú hafa tvær til­raunir til mynd­unar rík­is­stjórnar runnið út í sand­inn. Fyrst sigldi til­raun Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, til að mynda stjórn með Viðrein og Bjartri fram­tíð, í strand, og síðan í dag við­ræður flokk­anna fimm undir for­ystu Katrín Jak­obs­dóttur. Óljóst er hvert fram­haldið verður, en Katrín Jak­obs­dóttir sagð­ist að loknum fundi for­ystu­manna flokk­anna fimm í dag, að hún ætl­aði sér að „sofa á“ nið­ur­stöð­unni og taka svo næstu skref. Hún hefur ekki misst umboðið til að mynda rík­is­stjórn form­lega ennþá, en það mun ekki skýr­ast fyrr en á morgun hvernig Guðni Th. Jóhanns­son, for­seti Íslands, mun stýra málum.

Þeir mögu­leikar sem fyrir hendi eru nú, við myndun rík­is­stjórnar, eru þrátt fyrir allt nokkrir, sé horft til fjölda þing­manna ein­göngu. Til dæmis gætu Sjálf­stæð­is­flokkur, Fram­sókn­ar­flokkur og Vinstri græn gætu myndað stjórn.

Áherslur þess­ara flokka eru ólíkar, að mörgu leyti, en þeir gætu náð saman um land­bún­aðar- og sjáv­ar­út­vegs­mál, sem til þess hafa verið eld­fim mál í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­unum. Vinstri græn, Viðreisn og Sjálf­stæð­is­flokkur einnig gætu einnig náð saman, en í ljósi reynsl­unnar til þessa er aug­ljós mál­efna­legur ágrein­ingur sem erfitt er að yfir­stíga.

Önnur mynstur eru einnig mögu­leg, svo sem að Framsókn kom inn í við­ræður flokk­anna fimm í stað Við­reisnar, en eins og reynslan sýnir, þá gæti reynst erfitt að ná saman um rík­is­stjórn­ar­sam­starf.

Boltinn hjá forsetanum

Spjótin bein­ast nú að for­set­anum, Guðna Th. Jóhann­essyni. Alveg eins og hann hafði áður gefið til kynna fyrir kosn­ingar, þá er komin upp snúin staða í hinu póli­tíska lands­lagi. Umboðið gæti næst farið til Pírata eða Við­reisnar. Svo er mögu­leik­inn á utan­þings­stjórn einnig fyrir hendi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár