Sigríður Ingibjörg: „Ásakanir settar fram í hita leiksins“

Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir ætlar að halda áfram í stjórn­málum. Segir það styrkja flokk­inn að und­ir­alda fái að kom­ast upp á yfir­borðið.

„Framboð mitt til for­manns í Sam­fylk­ing­unni á lands­fundi nú um helg­ina var svar við kröfum fólks um breyttar og skýr­ari áherslur Sam­fylk­ing­ar­innar.“ Þetta segir Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í yfir­lýs­ingu sem hún sendi fjöl­miðlum nú í morg­unsárið. Eins og kunn­ugt er til­kynnti Sigríður Ingi­björg á fimmtu­dags­kvöld að hún hygð­ist bjóða sig fram gegn Árna Páli Árnasyni, for­manni Sam­fylk­ing­ar­innar, á lands­fundi flokks­ins nú um helg­ina. Úrslitin urðu hní­f­jöfn og vann Árni Páll aðeins með einu atkvæði. „Kosn­inga­bar­áttan var snörp. Sitjandi for­maður hafði betur og ég er sátt við þá nið­ur­stöðu, styð Árna Pál og tel það styrkja flokk­inn að und­ir­alda fái að kom­ast upp á yfir­borðið og umbreyt­ast í kraft til að skerpa áherslur jafn­að­ar­stefn­unnar og end­ur­meta stefnu­mál. Öllum má vera ljóst að áhrifa gætti þegar dag­inn eftir, þegar nýtt fólk var valið til ábyrgð­ar­starfa innan flokks­ins, margt af því ungt hug­sjóna­fólk með skýrar áheyrslur og með sam­þykktum lands­fundar á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár