Þrjú ný ráðuneyti, tveir nýir ráðherrar og stjórnarsáttmáli sem skilur eftir „erfið mál“

Nýr stjórn­ar­sátt­máli gæti verið kynntur í næstu viku. Til­færsla verður á mála­flokkum milli ráðu­neyti, ný ráðu­neyti mynduð og nýtt fólk sest í rík­is­stjórn. Ágrein­ingur flokk­anna um virkj­ana­á­form verður klæddur í bún­ing end­ur­skoð­unar á ramma­á­ætlun.

Mörg kunnugleg andlit munu hittast aftur við ríkisstjórnarborðið eftir að sú næsta verður mynduð.
Mörg kunn­ug­leg and­lit munu hitt­ast aftur við rík­is­stjórn­ar­borðið eftir að sú næsta verður mynduð. Mynd: Bára Huld Beck

Til við­bótar við nýtt inn­við­a­ráðu­neyti, sem mun bæta hús­næðis- og mann­virkja­málum og skipu­lags­málum við þá mála­flokka sem nú til­heyra sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­inu, þá er verið að ræða að mynda nýtt þekk­ing­ar­ráðu­neyti utan um mál­efni vís­inda, menn­ing­ar og ný­sköp­un­ar. Auk þess kemur til greina að end­ur­reisa við­skipta­ráðu­neytið sem lengi vel var starf­andi og að undir það falli allur fjár­mála­geir­inn, sam­keppnis- og neyt­enda­mál og fé­laga­réttur. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans er nýr stjórn­ar­sátt­máli nýrrar rík­is­stjórnar nán­ast til­bú­inn. Hann mun ekki takast á við öll þau mál sem aðskilja flokk­anna sem mynda stjórn­ina: Vinstri græn, Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk og eitt helsta ágrein­ings­mál þeirra, hversu mikið eigi að virkja, verði klætt í bún­ing end­ur­skoð­unar á fyr­ir­komu­lagi ramma­á­ætl­unar. Í frétt Morg­un­blaðs­ins er sagt að ein­hver „erfið mál“ verði látin bíða lausnar á kjör­tíma­bil­inu.

[adspot]Ef und­ir­bún­ings­nefnd fyrir rann­sókn kjör­bréfa nær að klára vinnu sína fyrir viku­lok, og nið­ur­staða hennar verður önnur en upp­kosn­ing í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, þá ætti að vera hægt að kalla þing saman í næstu viku og kynna stjórn­ar­sátt­mála í kjöl­farið.

Sjálfstæðisflokkurinn á leið í heilbrigðisráðuneytið

Líkt og Kjarninn greindi frá um liðna helgi er búist við því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fái heil­brigð­is­ráðu­neytið og mestar líkur taldar á að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son setj­ist í þann stól. Hann hefur áður gegnt því emb­ætti, á árunum 2007 til 2009. Ástæður þess að hann þykir lík­legur til að færa sig eru þær að hann hefur reynslu af því að stýra ráðu­neyt­inu, sem Sjálf­stæð­is­menn vilja mikið kom­ast yfir, og að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur auga­stað á utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. Verði þessi kap­all að veru­leika segja við­mæl­endur Kjarnans senni­leg­ast að Lilja D. Alfreðs­dóttir, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks, setj­ist í utan­rík­is­ráðu­neytið. Svandís Svav­ars­dóttir myndi þá fara í mennta­málin.

[links]Stjórn­ar­for­menn­irnir þrír munu halda sínum ráðu­neytum. Katrín Jak­obs­dóttir verður for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son sitja áfram í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu og Sigurður Ingi Jóhanns­son fara fyrir nýju inn­við­a­ráðu­neyti.

Samkvæmt umfjöllun Morg­un­blaðs­ins í dag er búist við að ráðu­neytum mun fjölga um eitt með mögu­legum til­bún­ingi við­skipta­ráðu­neytis og að það við­bót­ar­ráðu­neyti muni senni­lega falla í skaut Willums Þórs Þórs­sonar, þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins. Sjálf­stæð­is­flokkur mun halda sínum ráð­herra­fjölda en í stað Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, sem er hættur í stjórn­málum, muni Guðrún Haf­steins­dóttir, odd­viti flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, setj­ast í rík­is­stjórn.

Nær allir við­mæl­endur Kjarnans sem starfa í stjórn­málum telja sig nokkuð örugga um að emb­ætti for­seta Alþingis muni falla Sjálf­stæð­is­flokknum í skaut, en það er talið ígildi ráð­herra­emb­ættis. Í það muni setj­ast Birgir Ármanns­son, sem um þessar mundir stýrir vinnu und­ir­bún­ings­nefndar fyrir rann­sókn kjör­bréfa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár