Íslendingar eru Ameríkanar Norðurlanda

Íslend­ingar eru þyngstir Norð­ur­landa­þjóð­anna, sam­kvæmt nið­ur­stöðum rann­sóknar sem gerð var árin 2011-2014.

Líkamsþyngdarstuðull íslenskra kvenna hækkaði marktækt á rannsóknartímabilinu.
Lík­ams­þyngd­ar­stuð­ull íslenskra kvenna hækk­aði mark­tækt á rann­sókn­ar­tíma­bil­inu. Mynd: Flickr.com/Tony Alter

Fleiri og fleiri íbúar á Norð­ur­löndum eru í yfir­vigt sam­kvæmt nið­ur­stöðum rann­sóknar sem gerð var á vaxt­ar­lagi nor­ræns fólks. Ísland sker sig frá hinum Norð­ur­lönd­unum því meira en helm­ingur full­orð­inna eru í yfir­vigt hér á landi.

Rann­sóknin var unnin við mat­væla­deild Tækni­há­skól­ans í Danmörku (DTU) í sam­starfi við rann­sókn­arteymi frá Svíþjóð, Noregi, Finn­landi og Íslandi. Athug­anir í rann­sókn­inni voru gerðar á árunum 2011 til 2014 og nið­ur­stöð­urnar birtar fyrr í vik­unni.

„Það er vin­sælt að segja að Íslend­ingar séu Amer­ík­anar Norð­ur­land­anna,“ er haft eftir Jeppe Matthies­sen, einn þeirra sem vann að rann­sókn­inni við DTU-háskól­ann í Kaup­manna­höfn, á vef danska rík­is­út­varps­ins. „Hér eru tveir af hverjum þremur körlum í yfir­vigt og fimmti hver karl og kona eru í mik­illi yfir­vigt.“

Meðaltal lík­ams­þyngd­ar­stuð­uls (Body Mass Index, BMI) íbúa Norð­ur­landa hækk­aði á rann­sókn­ar­tíma­bil­inu, mest meðal Íslend­inga og Norð­manna. BMI er aðferð til þess að leggja mat á hold­ar­far fólks. Þyngd­ar­stuð­ull ein­stak­lings er fund­inn með því að deila þyngd með hæð í öðru veldi (kg/m2). Þyngd­ar­stuð­ull­inn er sú mæli­ein­ing sem notuð er í við­mið­un­ar­mörk Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar til þess að kanna offitu, ofþyngd, kjör­þyngd og vannær­ingu í sam­fé­lögum.

Hækk­un­ina á með­al­tali lík­ams­þyngd­ar­stuð­uls­ins má rekja til hækk­unar með­al­tals stuð­uls­ins meðal kvenna, þá sér­stak­lega á Íslandi og í Noregi. Ekki var hægt að greina breyt­ingu á með­al­tali stuð­uls­ins á tíma­bil­inu meðal karla í lönd­unum fimm.

Hlutfall full­orð­ina í yfir­vigt eða offeitra Hér sést hlut­fall full­orð­inna Norð­ur­landa­búa sem eru í yfir­vigt eða offeitir og þeirra sem eru offeitir eftir löndum. Ísland stendur verst hvað þetta varðar og er eina landið í rann­sókn­inni þar sem meira en helm­ingur full­orð­inna er í yfir­vigt. Töfluna má finna á síðu 115 í rann­sókn­inni hér.
Land Yfirvigt/offita Offita
Svíþjóð 44,8% 10,1%
Danmörk 47,3% 13,3%
Noregur 47,5% 14,0%
Finnland 48,1% 14,8%
Ísland 59,6% 21,0%

Fleiri í yfirvigt

Meg­in­nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar eru að mat­ar­ræði fleiri Norð­ur­landa­búa var óhollt árið 2014 en árið 2011. Á sama tíma fækk­aði þeim sem neyttu holls mat­ar­ræðis. Sömu staðlar voru not­aðir í öllum lönd­unum sem rann­sökuð voru þegar mat var lagt á það hversu hollt matar­æði fólks var.

Af öllum þeim fæðu­flokkum sem rann­sak­aðir voru var aðeins að merkja jákvæða þróun í einum flokki; Þegar kemur að mat­vælum með við­bættum sykri var þró­unin jákvæð í Danmörku, Finn­landi og í Noregi en engin breyt­ing var merkj­an­leg á Íslandi og í Svíþjóð, hvað þetta varðar.

Helsta ástæða þess að fleiri íbúar Norð­ur­landa voru í yfir­vigt í lok rann­sókn­ar­tíma­bils­ins en í upp­hafi þess er talin vera hreyf­ing­ar­leysi. Í nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar er greint frá því að þriðj­ungur íbú­anna eru hreyf­ing­ar­lausir og þrír af hverjum tíu eyða meira en fjórum klukku­stundum á dag fyrir framan tölvu eða sjón­varp.

„Í dag er það orðið nær venju­legt að vera full­orð­inn ein­stak­lingur í yfir­vigt eða glíma við offitu,“ segir í sam­an­tekt nið­ur­staðna rann­sókn­ar­innar. Enn fremur segir að það sé áhyggju­efni hversu margir eru hreyf­ing­ar­lausir, hreyfa sig lítið og hversu margir glíma við yfir­vigt. „Þrátt fyrir þetta er hægt að merkja jákvæða aukn­ingu í hlut­falli þeirra sem hreyfa sig mikið. Þessar nið­ur­stöður gætu bent til þess að aukin pólun sé að verða meðal fólks þegar kemur að hreyf­ingu full­orð­inna á Norð­ur­löndum.“

14% reykja daglega, 45% fara á fyllerí

Í rann­sókn­inni var neysla áfengis og tóbaks könnuð í fyrsta sinn. Hver Norð­ur­landa­búi drekkur áfengi að með­al­tali 1,7 sinnum í hverri viku og hlut­fall þeirra sem fara á fyll­erí var 45 pró­sent full­orð­inna árið 2014.

Hlutfall þeirra sem reyktu var 21 pró­sent en hlut­fall þeirra sem reyktu dag­lega var 14 pró­sent á Norð­ur­löndum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lýðheilsa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár