Þetta var ekki illa meint

Þor­steinn V. Ein­ars­son um karl­mennsku og inn­ræt­ingu á kven­fjand­sam­legum við­horfum.

Karl­mennskan er mér afar hug­leikin. Ég er oft­ast með­vit­aður um hug­myndir mínar og sam­fé­lags­ins til karl­mennsku, og reyni með­vitað að vinna gegn þeim. Stundum vefst karl­mennskan þó fyrir mér og ég hrúta yfir mig. Oftast nær er það í sam­skiptum við maka minn, sem ég virði og elska. Það er auð­vitað aldrei illa meint.

Pabbinn sem vill ekki að nýfæddur sonur hans klæð­ist bleiku er ekki að meina neitt illt. Kenn­ar­inn sem spyr hvort strák­arnir séu ekki bara skotnir í stelp­unum sem þeir voru að meiða í frímó, er ekki illa mein­andi. Kærast­inn sem skrifar: „Hvernig land­aði ég þess­ari gyðju?“ undir mynd af kærust­unni sinni á Instagram er pott­þétt ekki að meina neitt illt. Sam­býl­is­mað­ur­inn sem telur sig vera að gera kon­unni sinni greiða með því að „taka þátt“ í hvers­dags­legum heim­il­is­störfum, er eflaust ekki illa mein­andi. Heldur ekki eig­in­mað­ur­inn sem vaknar aldrei á nótt­unni með unga­barn­inu eða skiptir aldrei um kúka­bl­eyju. Eða kærast­inn sem gefur kær­ustu sinni fyr­ir­mæli um að drekka ekki of mikið, spyr hvers­vegna hún sé svona mikið máluð þegar hún fer að hitta stelp­urnar. Menn sem efast um að kona sé að segja alveg rétt til um ofbeldið sem hún varð fyrir, eru eflaust ekk­ert að meina neitt illt þegar þeir segja: „Það þarf nú tvo til að dansa tangó“. Menn­irnir sem myrtu konur á árinu voru kannski ekk­ert illa mein­andi.

Síðustu mán­uði hafa konur, hver á eftir annarri stigið fram og lýst ofbeldi sem þær hafa orðið fyrir af hendi karl­manna. Oft manna sem þótt­ust elska þær eða þær báru traust til. Sjáiði bara tölur úr skýrslu Stíga­móta*.

Þessar tölur eru ekki svona af til­viljun. Það þarf stað­fasta afneitun til að sjá ekki að á bak­við þessar tölur liggur kerf­is­bundin rot­þró. Inn­ræt­ing á kven­fjand­sam­legum við­horfum og óþroskaðar hug­myndir um karl­mennsk­una leiða af sér hatur á konum. Ekkert endi­lega með­vitað. Þess vegna er svo mik­il­vægt að við end­ur­skoðum hug­myndir okkar um karl­mennsk­una. Nýtum lær­dóm­inn af upp­reist æru, falli rík­is­stjórn­ar­innar og umræð­unni sem hefur verið hávær síð­ast liðnar vikur og mán­uði. Tökum ábyrgð á hegðun okkar og við­horfum og hættum að láta eins og allt sé bara í himna­lagi. Hvað er það ann­ars sem fær karl­menn til að áreita, nauðga og drepa konur?

*Ársskýrsla Stígamóta 2016: https://www.stigamot.is/static/files/arsskyrslur/stigamot-arsskyrsla-2016-loka.pdf

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár