Eldislaxar fundist allt frá Borgarfirði yfir í Blöndu

Erfða­grein­ing stað­festir útbreiðslu eld­is­laxa suður og austur af Vest­fjörðum.

Erfða­grein­ing hefur stað­fest að eld­is­laxar hafa veiðst í sex lax­veiðiám allt frá Reykja­dalsá í Borg­ar­firði yfir í Blöndu í Austur-Húna­vatns­sýslu.

Eftir slysa­slepp­ingu laxa í Dýra­firði í ágúst vakn­aði grunur um að fjöldi eld­is­laxa hefðu veiðst í Hauka­dalsá inn af Hvamms­firði, skammt frá Búðardal. Í ljós hafði komið að gat var á sjó­kví Arctic Sea Farm „í nokkurn tíma án þess að fram­leið­andi hafi til­kynnt um til­vist þess til Mat­væla­stofn­unar“. Var málið litið „alvar­legum augum“.

Nú hefur rann­sókn leitt í ljós að eld­is­lax fannst í Hauka­dalsá, Hrúta­fjarð­ará, Blöndu, Mið­fjarð­ará, Vatns­dalsá og Reykja­dalsá í Borg­ar­firði. Að auki er einn lax sem veidd­ist í byrjun októ­ber í Ytri-Rangá á Suð­ur­landi, í upp­runa­grein­ingu.

Ekkert sjó­kvía­eldi er í þeim lands­hlutum þar sem lax­veiði­árnar renna til sjávar og er því ljóst að eld­is­lax­inn hefur ferð­ast …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár