Flóttinn frá Íslandi: „Höfuðstóllinn lækkar í réttu hlutfalli við afborgun“

Heimir Jón, íþrótta­kenn­ari og fim­leika­þjálf­ari, í Espoo í Finn­landi.

Það er dálítið ódýr­ara að lifa hérna. Ég finn það þegar ég versla í mat­inn á Íslandi að það verður miklu minna úr aurnum en hérna. Áfengi er líka nokkuð ódýr­ara í Finn­landi, kostar um 1 evru bjór­inn úr mat­vöru­verslun, um fjórar evrur á hverfispöbbnum en ef þú ferð í mið­bæ­inn á fínni stað kostar bjór­inn um 7 ervrur. Raf­magns­vörur eins og til dæmis sjón­vörp eru hátt í helm­ingi ódýr­ari í sumum til­fellum. 

Leik­skóla­gjöld eru alger­lega tekju­tengd. Sem dæmi borgar fjöl­skylda með tvö börn og um 4000 evrur í brúttó­tekjur 108 evrur á barn á mán­uði fyrir leik­skóla­pláss. En ef við­kom­andi fjöl­skyldan væri með helm­ingi lægri tekjur myndi hún borga nán­ast ekk­ert. Ein­stæðir myndu borga helm­ing­inn af fyrra dæm­inu eða um 50 evrur fyrir hvert barn. 

Heilsu­gæsla er mjög ódýr. Þú borgar ekk­ert í þínu umdæmi fyrir við­tal hjá lækni, en ef þú ferð á spít­ala þá borg­arðu 30 evrur á dag. Börn undir 18 ára borga bara fyrir sjö daga og svo er frítt eftir það.  

Tann­lækna­kostn­aður hjá rík­inu er mun lægri - meiri bið eftir tíma reyndar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár