Danska pylsuævintýrið í Bandaríkjunum

Meðal þess fyrsta sem kemur upp í huga margra þegar minnst er á Danmörku eru pyls­urnar og pylsu­vagn­arnir. Þótt vögn­unum hafi fækkað á síð­ustu árum á götu­hornum og torgum, enda margs konar annar skyndi­biti í boði, eru pyls­urnar enn mjög vin­sælar og í hugum margra Dana ómissandi hluti „danska eld­húss­ins“. Úrvalið í versl­unum er mikið, við laus­lega taln­ingu í mat­vöru­verslun skammt frá heim­ili sínu fann pistla­höf­undur tutt­ugu og tvær mis­mun­andi gerðir og „útfærslur“ á þess­ari kjöt­vöru.

Kannanir hafa sýnt að þegar Danir ferð­ast til ann­arra landa leita þeir gjarna að pylsu­bar til að geta gert sam­an­burð­ar­rann­sóknir á sama tíma og þeir seðja hungrið. Þótt víða séu til prýði­legar pylsur vantar þó eitt­hvað, að mati Dana, og þeir Danir sem setj­ast að fjarri heima­land­inu leita uppi versl­anir sem selja danskar pylsur og beri sú leit ekki árangur bregða þeir gjarna á það ráð að fá þær sendar að heiman.

Á brattann að sækja í hollustuumræðunni

Á und­an­förnum árum hefur orðið mikil umræða um heil­brigð­ari lífs­stíl og breytt og holl­ara matar­æði. Þessi umræða hefur ekki verið pyls­unum hag­stæð. Þær eru flestar fremur fitu­ríkar og þar að auki yfir­leitt reyktar, falla í þann flokk sem kall­ast unnin kjöt­vara. Pylsu­fram­leið­endur hafa reynt að bregð­ast við með því að bjóða upp á fitu­minni vörur og alls kyns létt­pylsur sem ekki sáust fyrir örfáum árum eru nú í boði. Slíkt þykir sönnum pylsu­að­dá­endum ekki manna­matur og fýla grön þegar talað er um létt­pyls­urnar í sömu andránni og „ekta“ vöru. En þrátt fyrir allt holl­ustu­talið, sem ekki skal gert lítið úr, hefur pylsan lifað af.

Pylsurnar ekki bundnar við Danmörku

Þótt hér að framan hafi ein­göngu verið minnst á Dani og danskar pylsur fer því þó fjarri að Danmörk sé eina landið þar sem pylsan skipar ríkan sess í dag­legu matar­æði. Þjóð­verjar eru miklir pylsu­menn, sama má segja um Ítali, Pólverja, Rússa og margar fleiri þjóðir sem gera pyls­urnar hver með sínum hætti. „Ein með öllu“ hefur lengi notið mik­illa vin­sælda sem skyndi­biti á Íslandi og þekktur pylsu­bar í Reykja­vík er lík­lega það sem flestir Íslend­ingar tengja við Íslands­heim­sókn Bill Clinton árið 2004. Hann hrós­aði íslensku pyls­unum og lét að sögn þau orð falla að svona góður skyndi­biti væri ekki í boði vestan hafs.

Líklega hefur hann ekki grunað að tólf árum síðar yrði kom­inn danskur pylsu­bar á aðal­járn­braut­ar­stöð­ina í New York, Grand Central Terminal. Og kannski enn síður að Dani búsettur í New York hefur ekki undan að fram­leiða, að dönskum hætti, pylsur sem hann selur vítt og breitt um Banda­ríkin. 

Claus Meyer á járnbrautarstöðinni í New York

Claus Meyer er einn þekkt­asti frum­kvöð­ull í danskri mat­ar­gerð sam­tím­ans. Iðulega er talað um hann sem mat­reiðslu­mann og það er hann vissu­lega enda þótt hann hafi ekki hlotið neina form­lega menntun á því sviði. Hann er mennt­aður við­skipta­fræð­ingur og loka­verk­efni hans fjall­aði um stofnun og upp­bygg­ingu fyr­ir­tækja. Claus Meyer hefur víða komið við, varð fyrst lands­þekktur vegna sjón­varps­þátta um mat­ar­gerð og var einn stofn­enda hins þekkta veit­inga­staðar NOMA og á þar hlut. Fyr­ir­tæki sem hann hleypti af stokk­unum undir heit­inu Meyers rekur meðal ann­ars bak­arí og veit­inga­hús er all­stórt og þekkt í Danmörku.

Fyrir nokkru seldi Claus Meyer fyr­ir­tækið og flutti til New York þar sem hann hugð­ist opna veit­inga­stað, og pylsu­bar, á aðal­járn­braut­ar­stöð borg­ar­innar. Þótt fæstar járn­braut­ar­stöðvar þyki til­heyra háborg mat­ar­gerð­ar­list­ar­innar gegnir öðru máli um Grand Central Terminal. Margir Danir ráku upp stór augu þegar þeir fréttu af áformum Claus Meyer og „það á járn­braut­ar­stöð­inni” sögðu sumir og varð kannski hugsað til skyndi­bita­stað­anna á Hoved­banegår­den í Kaup­manna­höfn. En þarna er ólíku saman að jafna. Veit­inga­stað­ur­inn sem heitir Agern (akarnið, aldinið) var opn­aður fyrir nokkru og hefur fengið mjög góða dóma, meðal ann­ars í Financial Times og New York Times en mat­gæð­ingar þess­ara blaða eru ekki silki­hanska­menn.

Danish dogs

Við hlið­ina á veit­inga­staðnum Agern opn­aði Claus Meyer pylsu­bar­inn Danish Dogs. Þar eru seldar pylsur, að danskri fyr­ir­mynd. Mat­gæð­ingur New York Times segir að Danish Dogs sé ein­fald­lega lang besti pylsu­bar New York borgar og það sé hrein unun að læsa tönn­unum í hinar kyn­þokka­fullu pylsur (án þess að útskýra það nánar) sem boðið sé uppá á þessum nýja nor­ræna pylsu­bar. Claus Meyer kvaðst í við­tali í dönsku dag­blaði vera him­in­lif­andi yfir við­tök­unum í New York, sem séu líka mikil aug­lýs­ing fyrir Danmörku.

Martin Høedholt og Revolving Dansk

Árið 2011 flutti ungur maður, Martin Høedholt frá Horsens á Jótlandi, til New York. Nokkrum dögum eftir að hann kom til borg­ar­innar keypti hann sér pylsu á götu­horni. Mikil voru von­brigðin þegar hann „beit í þessa vatns­ósa og grámyglu­legu kjöt­lufsu sem kölluð var pylsa“. Eftir að hafa rætt málið við eig­in­kon­una, sem er banda­rísk, ákváðu þau hjónin að reyna að búa til pylsur, svip­aðar þeim sem Martin þekkti að heiman. Hvorugt þeirra hjóna kunni nokkuð til verka á þessu sviði og þau eyddu miklum tíma, og pen­ingum, í að prófa sig áfram. Þegar þau töldu sig hafa fundið réttu upp­skrift­ina reyndu þau fyrir sér á götu­mörk­uðum og úti­skemmt­unum. Skemmst er frá því að segja að við­tök­urnar fóru fram úr þeirra björt­ustu vonum og þau ákváðu að stofna fyr­ir­tæki sem fékk heitið Revol­v­ing Dansk.

Martin sagði í við­tali við dag­blaðið Politi­ken að ekki hefði verið hlaupið að því að kom­ast í gegnum banda­ríska skrifræðið og ekki hefði síður verið erfitt að finna fram­leið­anda sem hægt væri að treysta. Það tókst á end­anum og til að gera langa sögu stutta þá annar fyr­ir­tækið ekki eft­ir­spurn. Pyls­urnar, sem eru dýrar á banda­rískan mæli­kvarða eru seldar í sæl­kera­versl­unum og á net­inu. Og, sem Martin þykir þó mest um vert er að all­margir þekktir veit­inga­staðir hafa nú sett pyls­urnar á mat­seð­il­inn. „Við stefnum ekki að heims­yf­ir­ráðum á pyl­su­mark­aðnum“ sagði hann í áður­nefndu við­tali „en fyrir mér er amer­íski draum­ur­inn pylsa. Pylsa sem bragð­ast eins og sú sem pabbi keypti stundum þegar hann sótti mig í skól­ann. Ég lít líka á þetta sem frum­kvöðla­starf“ sagði Martin Høedholt og rétti blaða­manni Politi­ken nafn­spjaldið sitt. Þar stendur Martin Høedholt Pølse Pioneer. Pylsu­frum­kvöð­ull.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár