Þriðji hver sem afplánar undir rafrænu eftirliti situr inni fyrir efnahagsbrot

Miklu fleiri afplána dóma undir raf­rænu eft­ir­liti en áður. Lögum var breytt árið 2016 með þeim hætti að fangar gátu afplánað stærri hluta dóms síns með slíkum hætti.

Þeir sem hljóta þunga dóma og uppfylla skilyrði fyrir því að afplána undir rafrænu eftirliti þurfa nú að eyða minni tíma í fangelsum ríkisins á borð við Litla Hraun.
Þeir sem hljóta þunga dóma og upp­fylla skil­yrði fyrir því að afplána undir raf­rænu eft­ir­liti þurfa nú að eyða minni tíma í fang­elsum rík­is­ins á borð við Litla Hraun. Mynd: Fangelsismálastofnun

Fjöldi þeirra fanga sem eru undir raf­rænu eft­ir­liti næstum þre­fald­að­ist í fyrra. Árið 2016 voru að með­al­tali sjö fangar undir slíku eft­ir­liti á meðan að þeir afplán­uðu eft­ir­stöðvar fang­els­is­dóma sinna. Í fyrra voru að með­al­tali 17,8 fangar undir raf­rænu eft­ir­liti. Það er lang­mesti með­al­tals­fjöldi sem verið hefur undir slíku.

Með raf­rænu eft­ir­liti er átt við afplánun utan fang­elsis, þar sem fangi dvelur á eigin heim­ili eða öðrum sam­þykktum dval­ar­stað og er gert að bera ökkla­band til þess að hægt sé að fylgj­ast með ferðum hans.

Um afplánun undir raf­rænu eft­ir­liti gilda ákveðnar reglur sem fangi verður að fram­fylgja. Fangi verður til að mynda að vera á dval­ar­stað sínum á kvöldin og yfir nótt­ina. Á virkum dögum þurfa þeir að vera þar frá klukkan 23 á kvöldin og til klukkan sjö á morgn­anna. Um helgar þarf fang­inn að vera kom­inn heim fyrir klukkan 21. Þá ber honum að sinna vinnu, námi eða ein­hvers konar verk­efnum á virkum dögum, sem fang­els­is­mála­stofnun hefur sam­þykkt.

Fjórir af 13 með dóma fyrir efnahagsbrot

Af þeim sem voru undir raf­rænu eft­ir­liti þann 11. jan­úar síð­ast­lið­inn voru þrír sem hlotið höfðu dóma fyrir brot gegn 249. grein almennra hegn­ing­ar­laga sem fjallar um umboðs­svik. Einn sem sætir raf­rænu eft­ir­liti hlaut dóm fyrir skjala­fals og fjár­drátt. Alls voru 13 fangar að afplána hluta refs­ingar sinnar undir raf­rænu eft­ir­liti á ofan­greindum degi og því var 31 pró­sent þeirra sem það gerðu á þeim tíma fangar sem hlutu dóma fyrir efna­hags­brot þar sem refsiramm­inn er allt að sex ára fang­elsi.

[box]Fimm þeirra sem nú sæta raf­rænu eft­ir­liti hlutu dóma fyrir kyn­ferð­is­brot, einn fyrir mann­dráp eða til­raun til mann­dráps, einn fyrir fíkni­efna­brot, einn fyrir umferða­laga­brot og einn fyrir annan glæp en ofan­greinda. Alls luku fimm fangar sem höfðu verið undir raf­rænu eft­ir­liti afplánun um líð­inn ára­mót og þeim sem sættu slíku fækk­aði því úr 18 í 13. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá fang­els­is­mála­stofnun er búist við því að fjöld­inn verði aftur kom­inn nálægt með­al­tali síð­asta árs áður en jan­ú­ar­mán­uður er lið­inn.

Páll Winkel, for­stjóri fang­els­is­mála­stofn­unar, segir að það sé algjör­lega ótengt brota­flokkum hverjir fái að afplána með þessum hætti. Allir sem hlotið hafi eins árs fang­elsi eða lengra upp­fylla skil­yrði til að ljúka refs­ingu sinni með þessum hætti. Páll segir að heilt yfir hafi reynslan af úrræð­inu verið góð.

Lögum breytt vorið 2016

Lögum um fulln­ustu refs­inga var breytt á Alþingi í mars 2016. Þar var há­marks­fjöldi daga und­ir ra­f­rænu eft­ir­liti auk­inn úr 240 dög­um í 360. Við laga­breyt­ing­una gat fangi með sex ára fang­els­is­refs­ingu eða lengri verið allt að tólf síð­ustu mán­uði afplán­unar undir raf­rænu eft­ir­liti.

Við með­ferð alls­herj­ar­nefndar var gerð sú breyt­ing á frum­varp­inu að fjölga dög­um sem brota­menn gætu fengið í ra­f­rænt eft­ir­lit úr 30 dög­um í 60 daga fyr­ir fyrsta árið. Þessi breyt­ing var gerð að til­lögu meiri­hluta alls­herj­ar­nefndar eftir aðra umræðu um frum­varpið, og skömmu áður en það var afgreitt sem lög. Skömmu áður en breyt­ing­ar­til­lagan var lögð fram hafði Borgar Þór Ein­ars­son, lög­maður og í dag aðstoð­ar­maður utan­rík­is­ráð­herra, skilað umsögn til nefnd­ar­innar þar sem umrædd breyt­ing var lögð til. For­stjóri fang­els­is­mála­stofn­unar lýsti yfir and­stöðu við þessa breyt­ingu þegar hann kom fyrir alls­herj­ar­nefnd.

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þáver­andi nefnd­ar­maður í alls­herj­ar­nefnd og þing­maður Vinstri grænna, sagði við Stundina í byrjun apríl 2016 að hún teldi laga­breyt­ing­una hafa verið smíð­aða í kringum þrjá menn sem hefðu hlotið dóma í Al Thani-mál­inu svo­kall­aða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár