Breytt landslag í forvali repúblikana

Forval stóru flokk­anna í Banda­ríkj­unum fyrir for­seta­kosn­ing­arnar þar í landi heldur áfram í næstu viku þegar kosið verður í New Hamps­hire. Útlit er fyrir að Donald Trump muni ekki halda sínu mikla fylgi því Ted Cruz og Marco Rubio sækja á.

Donald Trump veifar til stuðningsmanna eftir að hafa talað í Iowa fyrir forvalið.
Donald Trump veifar til stuðn­ings­manna eftir að hafa talað í Iowa fyrir for­valið.

Setið var á sófa­brún­inni langt fram á nótt yfir kosn­inga­vöku sjón­varp­stöðv­anna hér í Banda­ríkj­unum á mánu­dags­kvöldið. Til að fylgj­ast gaum­gæfi­lega með hverjum ein­asta fram­bjóð­anda lagði pistla­höf­undur það á sig, að skrá sig á póst­lista hjá öllum helstu fram­bjóð­endum og keppt­ust þeir við að senda vin­sam­legar ábend­ingar um ágæti sitt alla vik­una auk þess sem þeir buðu upp á þá þjón­ustu að gefa þeim pen­inga. Þegar nið­ur­staðan lá loks ljós fyrir í Iowa var ljóst að hún boð­aði nokkuð breytt lands­lag, sér­stak­lega í for­vali repúlik­ana. Fram á síð­ustu stundu benti allt til þess í skoð­ana­könn­unum að Donald Trump, fast­eigna­mó­gull­inn frá New York, myndi sigra nokkuð örugg­lega og komu úrslitin því nokkuð á óvart með sigri Ted Cruz, öld­unga­deild­ar­þing­mann­ins­ins og teboðsliðsm­ans­ins frá Texas. Til að auka á spenn­una fylgdi Marco Rubio, hinn ungi öld­unga­deild­ar­þing­maður frá Flórída, fast á hæla Trump og end­aði naum­lega í þriðja sæt­inu. En for­völ flokk­anna eru þó aðeins rétt að byrja og á þriðju­dag verður kosið í New Hamps­hire. Þar benda kann­anir til þess að Trump hafi sigur úr bítum hjá repúblikönum og Bernie Sanders hjá demókrötum en eftir þessi óvæntu tíð­indi mánu­dags­ins virð­ist allt geta gerst.

Eftir nið­ur­stöð­urnar frá Iowa urðu ljósar, beindust sjónir manna hér vestra að miklu leiti að Rubio sem undir lok mánu­dags­kvölds­ins, hélt inn­blásna sig­ur­ræðu sem fer seint úr minni, þrátt fyrir að hafa lent í þriðja sæti. Mörgum þykir hann vera sá kandídat repúblik­ana sem hefur mesta mögu­leika til að sigra Hillary Clinton eða Sanders, þar sem hann er lík­legur til að ná til miðju­fylg­is­ins sem þarf ef tryggja á að flokk­ur­inn eigi raun­veru­legan mögu­leika á sigri í nóv­em­ber. Nið­ur­stöð­urnar hjá demókröt­unum voru nokkuð óljós­ari, þar sem þau Sanders og Clinton komu nærri jöfn í mark og hinn geð­þekki Martin O’Malley fékk lítið sem ekk­ert fylgi. Þegar leið á kvöldið til­kynnti hann stuðn­ings­mönnum sínum að hann myndi draga sig úr fram­boði.

Skilaboðin frá Martin O'Malley eftir niðurstöður forvals demókrata í Iowa-ríki.
Skila­boðin frá Martin O'Malley eftir nið­ur­stöður for­vals demókrata í Iowa-ríki.

Hverjir kjósa?

Talið er um að fjöldi þeirra sem tóku þátt í for­vali flokk­anna í gær séu 0,1 til 0,2 pró­sent af þeim sem búi í öllum Banda­ríkj­unum og aðeins um tíu pró­sent þeirra þriggja millj­óna sem búa í Iowa. Ríkið er að auki nokkuð eins­leitt og því lang­sótt að ætla að nið­ur­stöð­urnar end­ur­spegli hug allra lands­manna í þessum efnum. Aftur á móti hefur byggst upp mikil spenna í sam­fé­lag­inu síð­ustu mán­uði, eða allt frá því að kapp­ræður flokk­anna hófust, og því var beðið í ofvæni víða eftir að leikar myndu hefj­ast.

Í könn­unum hefur komið á óvart hversu mikið fylgi Trump mælist með og hafa margir verið skept­ískir á að hann gæti skilað því fylgi á kjör­stað. Þeir sem þekkja til hins flókna kosn­inga­kerfis í Banda­ríkj­unum vita að það er eitt að koma vel út úr könn­unum og allt annað að sigra kosn­ingar. Öllu máli skiptir að velja réttu leik­á­ætl­un­ina fyrir hvern fram­bjóð­anda og beina kröftum þeirra á réttu svæðin sem lík­leg­ust eru til að skila sem flestum atkvæðum. Þetta krefst reynslu og krafta rétta fólks­ins sem og úthalds.

Þrátt fyrir mikla umfjöllun um stjórn­málin í fjöl­miðlum er kjör­sókn almennt afar slök í Banda­ríkj­unum. Í spenn­andi for­seta­kosn­ingum hefur kjör­sókn náð í kringum fimm­tíu pró­sent. Í venju­legum þing­kosn­ingum kýs að jafn­aði rétt tæp­lega fjórð­ungur. Það er því oft frekar fámennur hópur sem hefur áhrif á loka­nið­ur­stöðu kosn­inga, ekki síst þegar mjótt er á munum í við lok for­vala. 

Á þriðju­dag féll kjör­sókn­ar­met í Iowa hjá repúblikönum og því reikn­aði fólk með því að Donald Trump, sem vakið hefur allra mestu athygl­ina upp á síðkastið, væri að laða nýja kjós­endur á kjör­stað. Regl­urnar í Iowa voru þannig að skráðir kjós­endur repúblik­ana máttu kjósa en hægt var að skrá sig á staðnum í flokk­inn og kjósa svo. Oft eru svona nýskrán­ingar meðal kjós­enda í yngri kant­inum, en það vakti athygli að útgöngu­spár bentu til þess að Trump væri með lang minnsta fylgið meðal 17 til 29 ára kjós­enda eða um 17 pró­sent, en í heild­ina hlaut hann 24 pró­sent atkvæða.

Til sam­an­burðar við þetta nýtur Bernie Sanders stuðn­ings 84 pró­sent kjós­enda í sama ald­urs­hópi. Þessi yngri hópur skil­aði sér helm­ingi verr á kjör­stað en hópur 45 til 64 ára sem kaus kaus Clinton í auknum mæli og áhrifin því mun meiri. Til að sigra er mik­il­vægt að ná stuðn­ingi hjá þeim hópum sem skila sér best á kjör­stað. Þannig er eldra fólk í raun dýr­mæt­ari kjós­enda­hópur sem og konur. Aftur á móti kjósa konur frekar demókrata en karlar. Þá þarf að taka inn í reikn­ing­inn að mjög stór hluti kjós­enda er af suður-amer­ískum upp­runa og kýs sá þjóð­fé­lags­hópur frekar til vinstri. Svona mætti lengi halda áfram.

Þessi margumræddi Trump

Donald Trump hefur litla reynslu úr stjórn­málum og hefur tölu­vert af reynslu­litlu fólki sér til aðstoðar sé það borið saman við aðra fram­bjóð­endur. Trump sendir skráðum „kjós­endum“ síður tölvu­pósta og er sá eini sem ekki hefur beðið um krónu eftir að hafa boðið und­ir­rit­aða vel­komna í hóp þeirra sem „ætla að end­ur­reisa Ameríku“, í takt við kjör­orð hans.

Eftir að Trump lenti í öðru sæti á mánu­dag, gerði hann þau mis­tök að halda fremur slaka ræðu sem bæði var stutt og efn­is­rýr. Hann hefði vel getað verið kok­hraustur þrátt fyrir að lenda í öðru sæti og vakti það sér­staka athygli. Um miðja síð­ustu viku fór stemm­ingin í for­vali repúblik­ana svo að líkj­ast íslensku próf­kjöri þegar Trump sendi færslu á Twitter þar sem hann sak­aði Cruz um að hafa svindlað í Iowa með því að koma þeim skila­boðum til kjós­enda að Ben Carson, mót­fram­bjóð­andi þeirra, væri að hætta bar­átt­unni. Carson hefur enn ekki gef­ist upp og vill Trump meina að þetta hafi fylkt kjós­endum Carson að baki Cruz í miklum mæli.

En hver er þessi sér­kenni­lega greiddi 69 ára maður í raun og veru? Við þekkjum hann aðeins af snagg­ar­legum fréttum síð­ustu ára­tugi þar sem hann er annað hvort rík­asti maður heims eða í gjald­þrota­skiptum, nýgiftur með pompi og prakt eða að skilja með til­heyr­andi hneyksl­is­málum á for­síðu slúð­ur­blað­anna. Hverjir eru það sem reyna að stöðva fram­göngu hans? Hvers vegna stendur svona mörgum stuggur af honum?

Trump er fyrst og fremst umdeildur vegna þeirra öfga­fullu skoð­ana sem hann keyrir fram­boð sitt að miklu leiti á. Hann lætur sér ekki nægja að tala dig­ur­bark­lega um hvernig hann muni „gera Banda­ríkin frá­bær aftur“ (e. „Make America Great Again“), heldur ætlar hann að kné­setja alla sem ætla sér að verða á vegi hans eins og hann lætur ítrekað hafa eftir sér. Verði hann for­seti ætlar hann að meina múslimum inn­göngu inn í landið og reisa múr þvert á landa­mærin við Mexíkó, vísa á brott úr land­inu öllum þeim millj­ónum ólög­legu inn­flytj­endum sem nú búa í Banda­ríkj­unum. Til við­bótar við þetta lætur hann reglu­lega hafa eftir sér rasísk og kven­fjand­sam­leg ummæli án þess að blikna.

Það er þó óum­deilt að þann hefur hæfi­leika til að tala hreint út og vera algjör­lega laus við skrúð­mælg­ina sem stjórn­mála­menn fest­ast svo gjarnan í. Hann stað­setur sig og sinn mál­flutn­ing líka þannig að hann sé fyrir utan kerfið, hann sé maður fólks­ins. Á ein­hvern undra­verðan hátt hefur hann líka sann­fært marga um að hann sé besta dæmið um „amer­íska draum­inn“ sem snýst um að sýna dugnað og vinnu­semi og þá eigi allir að geta orðið ríkir. Sjálfur fædd­ist Trump þó inn í efn­aða fjöl­skyldu. Flestir stuðn­ings­menn Trump eru hvítir, með fremur lágar tekjur, litla menntun og eru komnir með „nóg“ af hefð­bundnum stjórn­mála­mönnum.

Það er óhætt að segja að Donald Trump sé eld­klár, fljót­fær, ein­lægur, sjálf­um­glaður og honum leið­ist ekki athygli, jafn­vel þó hún sé nei­kvæð. Í heim­ilda­mynd sem sýnd var á sjón­varp­stöð­inni MSNBC í vik­unni var farið í saumana á ævi hans. Trump er fæddur og upp­al­inn í New York og þegar hann var á tán­ings­aldri lenti hann í vand­ræðum í skól­anum og var færður í sér­stakan her­skóla. Bróðir hans glímdi við áfeng­is­sýki sem seinna varð honum að ald­urtila og hefur Trump því aldrei reykt né drukkið áfengi. Hann hefur verið giftur í þrí­gang og á með fyrr­ver­andi konum og núver­andi konu fimm börn á aldr­inum 10 til 39 ára. Þekktust er lík­lega Ivana sem var umsjóna­mann­eskja í raun­veru­leika­þátt­unum Apprentice þar sem Trump var sjálfur í aðal­hlut­verki sem við­skipta­ráð­gjafi fólks sem keppti í að vera best í við­skiptum. 

Eftir námið fór hann að vinna fyrir fyr­ir­tæki föður síns sem hafði verið far­sælt. Við­skipti Trump hafa verið marg­vís­leg í gegnum árin. Hann hefur átt fast­eignir, spila­víti og golf­velli um allan heim auk þess að hann hefur fjár­fest í allskyns óvenju­legum við­skipta­ein­ingum eins og íþrótta­fé­lögum og eigin sjón­varps­fram­leiðslu um sjálfan sig. Trump átti lengi vel hluti í feg­urð­ar­sam­keppn­unum Ungfrú Ameríka, Ungfrú alheimur, og Ungfrú ung­lings­feg­urð þar til árið 2015.

Við­skipti Trump hafa hins vegar ekki alltaf gengið stór­á­falla laust fyrir sig og fyr­ir­tæki hans hafa nokkrum sinnum orðið gjald­þrota. Honum hefur þó alltaf tek­ist að koma sér aftur á lapp­irnar.

Stuðn­ingur hans við banda­rísku stjórn­mála­flokk­ana tvo hefur farið fram og aftur í gegnum tíð­ina. Trump hefur í nokkur skipti sagts ætla bjóða sig fram og í tvígang hafið bar­átt­una, einu sinni fyrir End­ur­reisn­ar­flokk­inn árið 2000 og svo árið 1999 fyrir repúblik­ana en hann hætti fram­boði sínu þegar ljóst var að hann ætti enga mögu­leika á að sigra. Flokka­flakkið hefur haft áhrif skoð­anir hans og þær sveifl­ast allt frá því að hafa verð fylgj­andi rétt­indum kvenna til að ráða yfir eigin lík­ama þegar kemur að fóst­ur­eyð­ingum yfir í að vilja banna þær alfarið. Hann hefur talið Hillary Clinton vera frá­bæran samn­inga­mann fyrir Banda­ríkin gegn Írönum en skipt um skoðun og sagt að samn­ing­ur­inn við Íran sem nýverið var sam­þykktur sé „ömur­leg­asti samn­ingur sem hann hafi nokkurn tím­ann augum litið“.

Afstaða Trump snýst mikið um að stað­setja sig „réttu megin“ við þau mál sem repúblikana­kjós­endur velja mikið eftir, svo sem að herða á inn­flytj­enda­lög­gjöf­inni, verja rétt manna til að eiga og kaupa skot­vopn óáreiddir, gegn fóst­ur­eyð­ingum, gegn vígðri sam­búð sam­kyn­hneigðra og lækka tekju­skatt í Banda­ríkj­unum veru­lega, eitt­hvað sem gagn­rýnendur hans benda á að myndi setja rík­is­fjár­málin í mik­inn vanda. Trump ætlar sér hins­vegar líka að skera ræki­lega niður í opin­bera kerf­inu.

Kosn­inga­bar­átta Trump hefur að ráða 13 millj­ónum doll­ara í sem eru bara smá­aurar miðað við virði veldi hans, sem hann segir vera 10 millj­arða doll­ara. Mest allur pen­ing­ur­inn í kosn­inga­sjóðnum kemur úr hans eigin vasa.

Andstæðingarnir

Ted Cruz og Marco Rubio eru þeir sem eru lík­leg­astir til að fella Donald Trump í for­vali repúblik­ana. Þeir eru báðir rétt ríf­lega fer­tugir og eiga nokkuð fátæk­legan feril að baki þegar þeir eru bornir saman við ævin­týra­lega ævi Trump. Þrátt fyrir að menn­irnir þrír séu allir frekar íhaldsamir er Ted Cruz lík­lega sá sem teygir sig lengst í þá veru.

Teboðshreyfing Cruz frá Texas

Þegar und­ir­rituð skráði sig á póst­lista Ted Cruz barst svar frá fram­boð­inu með hvatn­ingu um að sýna hug­rekki og standa með íhalds­ömum gildu. Þar var einnig óskað eftir pen­ingum í leið­inni.

Cruz er 45 ára, giftur og á tvö börn. Hann er fæddur í Kanada (eitt­hvað sem Trump mun án efa halda áfram að minna kjós­endur á) en hann kallar Cruz núorðið Ted „Kanada“ í ræðum sínum því deilt hefur verið um hvort hann sé í raun og veru kjör­gengur. Cruz er hins vegar fæddur banda­ríkja­maður, því for­eldrar hans höfðu bæði banda­rískt rík­is­fang þegar hann fædd­ist.

Cruz er sonur kúbversk föð­urs og banda­rískrar móður. Hann er upp­al­inn í Texas og nam lög­fræði við Harvard. Hann starf­aði fyrir rík­is­stjórn Bush yngri en var svo kos­inn sem full­trúi Texas og full­trúi Teboðs­ins í Öld­unga­deild banda­ríska þings­ins árið 2012. Hann hefur sterkar skoð­anir og þykir frekar óvin­sæll í Washington, bæði innan flokks­ins og utan, því hann þykir ósam­vinnu­þýður og óhagg­an­legur í skoð­un­unum sínum. Þetta vinnur hins vegar með Cruz í kosn­inga­bar­átt­unni þar sem hann getur með þessu stað­sett sig utan kerfs­ins í Washington, sem er gríð­ar­lega óvin­sælt hjá almenn­ingi. Hann nýtur dyggs stuðn­ing evang­elista og má greina sterkt trú­ar­legt stef í ræðum hans.

Cruz hefur lýst því yfir að hann muni vilja banna fóst­ur­eyð­ingar alfarið verði hann for­seti. Hann hefur í lög­fræði­störfum sínum varið NRA, helstu hags­muna­sam­tök byssu­eig­enda, og styður óhindr­aðan aðgang lands­manna að því að kaupa vopn og bera í almenn­ings­rými. Hann vill leggja af heil­brig­iðis­trygg­inga­kerfið sem Obama kom á og vill einka­væða félags­trygg­inga­kerfið, svo fátt eitt sé nefnt. Hann boðar einnig mjög umdeildar efna­hags­til­lögur sem flestir telja að muni helst gagn­ast þeim sem eiga mest, en ekki hinni marg­um­töl­uðu milli­stétt sem þykir aðþrengd efna­hags­lega. Cruz hefur notið ríku­legs stuðn­ings fjár­sterkra aðila og hafa söfn­un­ar­hópar merktir honum safnað 42 millj­ónum miðað við fram­boðið hans sem safnað hefur 47 millj­ónum doll­ara.

Ungi íhaldsami Flórídabúinn með kúbverskar rætur

Marco Rubio er aðeins 44 ára gam­all, giftur og á fjögur börn. Hann er sonur kúbverskra inn­flytj­enda og er alinn upp í Flórída þar sem hóf nokkuð hefð­bund­inn tröppu­gang í stjórn­málum. Hann byrj­aði í Miami-borg, tók því næst sæti á rík­is­þing­inu, var svo kjör­inn í full­trúa­deild banda­ríska þings­ins fyrir Flórída og því næst sem öld­unga­deild­ar­þing­maður rík­is­ins.

Rubio er svo sann­ar­lega íhalds­samur, en hann er þó aðeins nær miðj­unni en flokks­bróðir hans Cruz. Hann er and­vígur fóst­ur­eyð­ingum eftir 20. viku og seg­ist við­ur­kenna dóm hæsta­réttar um að að hjóna­vígsla sam­kyn­hneigðra sé fest í lög. Þó hann seg­ist sjálfur líta svo á að hjóna­band eigi að vera milli karls og konu. Hann hefur talað fyrir því að sett verði upp leið til þess að ólög­legir inn­flytj­endur sem hafa verið í mörg ár í Banda­ríkj­unum og eiga jafn­vel börn geti sótt um rík­is­borg­ara­rétt með lög­mætum hætti en dregið mjög í land með þessa skoðun sína frá því að hann hóf for­seta­fram­boð sitt. Hann er ósam­mála sumum fram­bjóð­endum repúblik­ana um að einka­væða félags­lega kerfið. Hann er geð­þekkur í við­tölum og í sam­an­burði við þá Trump og Cruz og virð­ist vera nokkuð hefð­bundn­ari fram­bjóð­and; er klókur og með gott bak­land Hann á einnig tölu­vert góða mögu­leika á að höfða til fólks af spænsku­mæl­andi ættum sem er sá kjós­enda­hópur sem stækkar hrað­ast í dag.

Hann þykir einnig vera lík­legur að ná til til þeirra sterku pen­inga­afla sem hafa hingað til stutt Jeb Bush í for­seta­for­val­inu en sá mun lík­lega hætta kosn­inga­bar­átt­unni á næstu vikum. Það kemur sér vel fyrir Rubio sem er ríf­lega 25 millj­ónum á eftir Cruz í söfn­un­inni. Þó er kosn­inga­bar­átta hans ekki á flæðiskeri stödd og á nú rúmar 51 milljón doll­ara ef lagðar eru saman eigur hópsafn­ana merktar honum og fjár­öflun fram­boðs­ins.

Þess ber að geta að ein­hverra hluta vegna hefur ekk­ert svar borist greina­höf­undi síðan því hún skráði sig á póst­lista Marco Rubio, ólíkt öllum öðrum fram­bjóð­endum.

Hópsöfnun gegn Trump

Í kringum kjör­fund­ina Iowa hóf nýr her­ferða­hópur, PAC, her­ferð undir yfir­skrift­inni „Hversu mikið veistu raun­veru­lega um Donald Trump?“. Her­ferðin gengur að mestu út að að birta aug­lýs­ingar gegn honum og er mark­mið hóps­ins að stöðva vin­sældir Trump. Til þess hefur hóp­ur­inn safnað millj­ónum banda­ríkja­dala og þegar eytt um 2,5 millj­ónum.

Aug­lýs­ingar á borð við þessar eru hluti af vopnum þeirra gegn Trump, auk þess sem birtar hafa verið aug­lýs­ingar í dag­blöðum, á net­inu og yfir 100 þús­und aug­lýs­ingar sendar í pósti.

Áhuga­vert verður að sjá hvaða áhrif und­an­farin vika hefur á fram­boð og vin­sældir Donald Trump fyrir kjör­fund­inn í New Hamps­hire. Þar mun reyna á her­ferð Trump þegar breyta á þessu mælda fylgi úr könn­unum í atkvæði á kjör­stað kjör­stað. Ljóst er að þeir Cruz og Rubio muni herða veru­lega á bar­átt­unni gegn Trump. Aðrir fram­bjóð­endur munu lík­lega draga sig í hlé á næstu vikum og hefst þá bar­áttan um hvert stuðn­ings­menn þeirra snúa sér.

Hvað sem ger­ist, hvernig sem fer, verður spenn­andi að fylgj­ast með frétta­bréf­unum rigna inn. Þegar eru fjórir komnir frá Hillary Clinton síðan á mánu­dag, tveir frá Bernie Sandes, þar af einn þar sem hann til­kynnir form­lega að stjórn­mála­bylt­ingin sé hafin. Algjör þögn ríkir hins vegar í tölvu­pósta­deild repúblik­ana. Það er án efa ein­ungis lognið á undan storm­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár