Hanna Birna hættir í pólitík

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og inn­an­rík­is­ráð­herra, ætlar að hætta í stjórn­málum þegar kjör­tíma­bil­inu lýkur. Þetta til­kynnti hún sam­flokks­fólki sínu í dag og RÚV greinir frá.

Til­kynn­ingu Hönnu Birnu má lesa hér fyrir neðan:

„Nú, þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er að hefja und­ir­bún­ing fyrir kom­andi alþing­is­kosn­ingar, vil ég greina ykkur frá þeirri ákvörðun minni að gefa ekki kost á mér í þeim kosn­ingum.

Ástæðan er ein­föld; mig langar að leita nýrra áskor­ana og nú er ein­fald­lega komið að þeim tíma­mótum í mínu lífi að ég tel rétt að nýta reynslu mina, orku og starfs­krafta ann­ars staðar en á vett­vangi stjórn­mál­anna.

En þó ástæðan sé ein­föld var end­an­leg ákvörðun það ekki. Frá því ég man eftir mér hef ég haft mik­inn áhuga á stjórn­málum og hef notið þess að vinna með ykkur og fyrir ykkur í þágu hug­sjóna okkar í Sjálf­stæð­is­flokknum. Ég er inni­lega þakk­lát fyrir þann mikla stuðn­ing sem ég hef ítrekað notið meðal ykkar, stolt af þeim fjöl­breyttu verk­efnum sem þið hafið treyst mér fyrir og ánægð með þann árangur sem við höfum sam­eig­in­lega náð.

En þó að þessi ákvörðun hafi verið tekin þá kveð ég ekki alveg strax. Ég mun klára það tíma­bil sem ég var kjörin til, fylgj­ast með kosn­inga­bar­átt­unni næstu mán­uði úr aðeins meiri fjar­lægð en oft áður og óska Sjálf­stæð­is­flokknum góðs gengis í þeim mik­il­vægu verk­efnum sem framundan eru.“

Hanna Birna hætti sem inn­an­rík­is­ráð­herra í lok árs 2014 í kjöl­far leka­máls­ins, þar sem aðstoð­ar­maður hennar, Gísli Freyr Val­dórs­son, var dæmdur fyrir að leka trún­að­ar­upp­lýs­ingum úr ráðu­neyt­inu. Hún fór í leyfi frá þing­störfum í kjöl­farið. Þegar hún snéri til baka var hún gerð að for­manni utan­rík­is­mála­nefndar þings­ins. Skömmu síðar, eða í októ­ber í fyrra, ákvað hún að hætta sem vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en hún hafði áður sagst ætla að sækj­ast eftir emb­ætt­inu áfram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár