Viðreisn horfir til Evrópu og telur stöðugleika fylgja nýjum gjaldmiðli

Í nýsam­þykktri stjórn­mála­á­lyktun Við­reisnar kemur fram að flokk­ur­inn vilji að hluti kvót­ans verði boð­inn upp á hverju ári og að réttur til veiða verði bund­inn í 20 til 30 ára leigu­samn­ingum. Sem fyrr vill flokk­ur­inn taka upp evru.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar í púlti á landsþingi flokksins.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar í púlti á lands­þingi flokks­ins. Mynd: Aðsend mynd

Áhersla er lögð á jafn­rétti, efna­hags­legt jafn­vægi og alþjóð­lega sam­vinnu í stjórn­mála­á­lyktun Við­reisnar. Líkt og áður stefnir flokk­ur­inn að aðild að Evr­ópu­sam­band­inu, að und­an­geng­inni þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, en evran er fyr­ir­ferð­ar­mikil í kosn­inga­á­herslum flokks­ins sem settar eru fram í stjórn­mála­á­lykt­un­inni.

Lands­þing Við­reisnar var haldið um helg­ina þar sem mál­efna­vinna og breyt­ingar á sam­þykktum fór fram.

Evru geti fylgt stöðugleiki í efnahagsmálum

Sem fyrr berst Viðreisn fyrir því að Ísland gangi í Evr­ópu­sam­bandið að und­an­geng­inni þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Flokk­ur­inn vill binda gengi krón­unnar við evru með samn­ingi við Seðla­banka Evrópu sem yrði þá fyrsta skrefið að upp­töku gjald­mið­ils­ins. Í álykt­un­inni upp­taka evru sögð geta aukið stöð­ug­leika og lækkað kostnað heim­ila og fyr­ir­tækja. „Þannig mun draga veru­lega úr verð­bólgu, erf­iðum geng­is­sveiflum og vextir hald­ast lágir. Kostn­aður heim­ila og fyr­ir­tækja lækkar. Stöð­ug­leiki eykst og fjár­hags­legar skuld­bind­ingar verða skýr­ari.“

Í ræðu sinni á lands­þingi sagði Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður flokks­ins það verða fyrsta verk flokks­ins, fái hann til umboð til þess, „að semja um gagn­kvæmar geng­is­varnir og tengja krón­una við Evru. Við eigum ekki að sætta okkur við meiri verð­bólgu, miklu hærri vexti á hús­næð­is­lánum eða dýr­ari mat­ar­körfu en þekk­ist í nágranna­löndum.“

Nýr gjaldmiðill auðveldi samkeppni

Í álykt­un­inni segir enn fremur að nýr gjald­mið­ill muni breyta skil­yrðum fyrir nýsköpun og upp­bygg­ingu þekk­ing­ar­iðn­aðar sem og gera sam­keppni mögu­lega á mörk­uðum „sem flökt­andi króna hindrar í dag“, líkt og í banka­starf­semi og trygg­ingum.

Evran kemur einnig við sögu í þeim kafla álykt­un­ar­innar sem snýr að atvinnu­líf­inu. „Stöðugur gjald­mið­ill og virk þátt­taka í alþjóð­legu við­skipta­lífi eru grunn­for­sendur fyrir sterk­ari stöðu heim­il­anna, efna­hags­legum fram­förum, auk­inni fram­leiðni í atvinnu­líf­inu og var­an­legri aukn­ingu kaup­máttar.“

Þar segir einnig að sam­keppni á öllum sviðum við­skipta leiði til betri lífs­kjara almenn­ings og að ein­fald­ara reglu­verk sé í þágu almanna­hags­muna. Þá geti fjöl­breytt atvinnu­líf um land allt sem byggi á nýsköpun og tækni orðið und­ir­staða útflutn­ings.

Hluti kvótans verði boðinn upp á markaði á hverju ári

Í sjáv­ar­út­vegs­málum vill Viðreisn að réttur til veiða verði með tíma­bundnum leigu­samn­ingum til 20 til 30 ára í senn. Á hverju ári verði hluti kvót­ans boð­inn upp á mark­aði og í fyll­ingu tím­ans verði allar veiði­heim­ildir bundnar slíkum samn­ingum.

Með þessu fáist „sann­gjarnt gjald til þjóð­ar­innar og meiri arð­semi í grein­inni án þess að koll­varpa kerf­inu,“ segir í álykt­un­inni. Fyr­ir­komu­lagið skapi vissu til lengri tíma hjá þeim sem stunda veiðar auk þess sem tæki­færi til nýlið­unar í sjáv­ar­út­vegi muni aukast.

Vilja blandaða leið í heilbrigðiskerfinu

Flokk­ur­inn vill standa vörð um einka­rekstur í heil­brigð­is­kerf­inu en í ályktun sinni hafnar hann aðför núver­andi rík­is­stjórnar að sjálf­stætt starf­andi stofum og sér­fræð­ingum,“ en flokk­ur­inn telur bland­aða leið vera besta. Sú aðför hafi leitt af sér biðlista og auk­inn kostnað, ekki síst fyrir íbúa lands­byggð­ar­innar.

Í álykt­un­inni segir að heil­brigð­is­þjón­usta eigi að standa öllum til boða óháð efna­hag og að áhersla skuli lögð á þjón­ust­una frekar en rekstr­ar­form þeirra sem hana veita.

Þar segir einnig að fjár­munum hins opin­bera verði að verja skyn­sam­lega. Því skuli ráð­stafa eftir grein­ingu á þörf og kostn­að­ar­mati. Land­spít­ali eigi aftur á móti að fá nauð­syn­legt fé til þess að „geta risið undir þeim kröfum sem gerðar eru til hans“.

Þá er það sagt ótækt að sótt­varna­að­gerðir séu óhóf­lega íþyngj­andi vegna fjár­skorts heil­brigð­is­kerf­is­ins og að létta þurfi á tak­mörk­unum með auknu aðgengi að hrað­prófum.

Þau borgi sem menga

Til þess að takast á við stöð­una sem upp er í komin í lofts­lags- og umhverf­is­málum vill Viðreisn „hvetj­andi grænt kerfi þannig að það borgi sig að vera umhverf­is­væn og að þau borgi sem menga,“ eins og það er orðað í álykt­un­inni.

Þar segir einnig að stærstu áskor­anir sam­tím­ans séu vegna alvar­legrar stöðu í þessum mála­flokki. Því krefj­ast almanna­hags­munir þess að næstu rík­is­stjórnir setji bar­átt­una við lofts­lags­vána í for­gang.

Í ræðu sinni á lands­þingi sagði Þor­gerður Katrín að kom­ist flokk­ur­inn í rík­is­stjórn muni hann leggja áherslu á að ný aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum inni­haldi tíma­sett mark­mið fyrir hvert ár, „svo hægt verði að sjá til þess að staðið sé við stóru orðin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár