Svíar framlengja ekki vopnasamning við Sádi-Arabíu

Svíar ætla ekki að fram­lengja umdeildan vopna­samn­ing við Sádi-Arabíu. Sænskir fjöl­miðlar greina frá þessu og segja til­kynn­ingar að vænta frá rík­is­stjórn­inni nú seinni part­inn.

Útflutn­ingur vopna frá Svíþjóð til Sádi-Arabíu er mjög umdeildur í Svíþjóð og hefur verið mikið í umræð­unni und­an­farið, eins og Kjarninn fór yfir um helg­ina. Rík­is­stjórn Jafn­að­ar­manna gerði leyni­legan samn­ing um vopna­verk­smiðju í land­inu árið 2005, og samn­ing­ur­inn var svo end­ur­nýj­aður af nýrri rík­is­stjórn árið 2010. Það var ekki fyrr en árið 2012 sem upp komst um samn­ing­inn, þegar sænska rík­is­út­varpið greindi frá honum. Í kjöl­farið vökn­uðu spurn­ingar um það hvernig rétt­læta megi slíkan samn­ing við land sem ítrekað hefur verið staðið að grófum mann­rétt­inda­brotum.

Margot Wallström, utan­rík­is­ráð­herra Sví­þjóðar, sagði frá því í gær að henni hefði verið meinað að halda ávarp á fundi Arababanda­lags­ins í Kaíró, þar sem hún var þó heið­urs­gestur. Hún segir að hún hafi verið stöðvuð vegna við­horfa hennar til og ummæla um mann­rétt­inda­brot Sádi-Arabíu. Staðfest hefur verið við fjöl­miðla að hætt var við að hún héldi opn­unará­varp á fundi banda­lags­ins.

Utan­rík­is­ráð­herrar ríkja Arababanda­lags­ins hafa í kjöl­farið gagn­rýnt hana harð­lega og sagt að yfir­lýs­ingar hennar um mann­rétt­inda­brot eigi ekki við rök að styðj­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár