Stýrivextir áfram eitt prósent

Seðla­banki Íslands hefur ákveðið að halda stýri­vöxtum sínum á sama stað og þeir hafa verið frá því í maí.

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands.
Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands. Mynd: Seðlabanki Íslands.

Pen­inga­­stefn­u­­nefnd Seðla­­banka Íslands hefur ákveðið að meg­in­vextir bank­ans verði áfram eitt pró­sent. Vextir hafa verið lækk­­­aðir þrisvar sinnum frá því að yfir­­stand­andi efna­hags­á­­stand vegna COVID-19 far­ald­­ur­s­ins hóf­st, síð­ast í maí, og alls hafa stýri­vextir lækkað um 3,75 pró­­­­­­sent­u­­­­­­stig frá því í maí í fyrra.

Þeir hafa aldrei verið lægri í Íslands­­­sög­unni.

Í yfir­lýs­ingu Pen­inga­stefnu­nefndar vegna ákvörð­un­ar­innar segir að sam­kvæmt bráða­birgða­tölum þjóð­hags­reikn­inga hafi hag­vöxtur reynst heldur þrótt­meiri á fyrri hluta þessa árs en gert var ráð fyrir í ágúst­hefti Pen­inga­mála. „Hins vegar benda hátíðni­vís­bend­ingar og kann­anir til þess að hægt hafi á vexti eft­ir­spurnar í lok sum­ars. Vegna auk­innar útbreiðslu veirunnar að und­an­förnu hafa efna­hags­horfur versnað frá því sem gert var ráð fyrir í ágúst. Óvissan er hins vegar mikil og þróun efna­hags­mála mun að tölu­verðu leyti ráð­ast af fram­vindu far­sótt­ar­innar.

[adspot]Verð­bólga jókst milli fjórð­unga á þriðja fjórð­ungi árs­ins og mæld­ist 3,2 pró­sent en það er heldur meira en spáð var í ágúst. Áhrifa geng­is­lækk­unar krón­unnar á verð inn­fluttrar vöru gætir enn. Mikill slaki í þjóð­ar­bú­skapnum mun að óbreyttu leiða til þess að verð­bólga hjaðnar þegar áhrif geng­is­veik­ing­ar­innar fjara út. Verð­bólgu­vænt­ingar til með­al­langs og langs tíma hafa hins vegar lítið breyst og virð­ist kjöl­festa þeirra í verð­bólgu­mark­miði bank­ans halda.“

Þar segir einnig að traust­ari kjöl­festa verð­bólgu­vænt­inga hafi gert pen­inga­stefnu­nefnd kleift að bregð­ast við versn­andi efna­hags­horfum með afger­andi hætti. „Lægri vextir og aðrar aðgerðir bank­ans sem gripið var til á vor­mán­uðum hafa stutt við inn­lenda eft­ir­spurn. Áhrif þeirra eiga þó eftir að koma fram að fullu og munu þær áfram styðja við þjóð­ar­bú­skap­inn og stuðla að því að efna­hags­bat­inn verði hrað­ari en ella.

Pen­inga­stefnu­nefnd mun áfram fylgj­ast grannt með fram­vindu efna­hags­mála og nota þau tæki sem nefndin hefur yfir að ráða til að styðja við þjóð­ar­bú­skap­inn og tryggja að laus­ara taum­hald pen­inga­stefn­unnar miðlist með eðli­legum hætti til heim­ila og fyr­ir­tækja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár