Ungfrú Ísland Teen, útlitsstaðlar og tíðarandi fegurðarsamkeppna

Feg­urð­ar­sam­keppnin Ungfrú Ísland Teen hefur hlotið umdeilda athygli nýlega. En í ár er í fyrsta sinn keppt í ung­linga­flokki. Sólrún Ósk Lár­us­dóttir sál­fræð­ingur telur mik­il­vægt að ýta undir aðra þætti fólks en útlit. Nanna Hlín Hall­dórs­dóttir heim­spek­ingur segir feg­urð­ar­sam­keppn­ina mögu­lega birt­ing­ar­mynd um bakslag í jafn­rétt­is­málum.

Feg­urð­ar­sam­keppnin Ungfrú Ísland Teen hefur hlotið umdeilda athygli und­an­farið en þetta er í fyrsta skipti sem keppt er í ung­linga­flokki í Ungfrú Ísland. Í Gleði­göng­unni sem fram fór fyrr í ágúst gengu full­trúar Kven­rétt­inda­fé­lags­ins með kvígu-fígúru í klæðum sem á stóð Miss Young Iceland og vís­uðu þannig til gjörn­ings Rauð­sokka­hreyf­ing­ar­innar. Ein­hverjum fannst vegið að Ungfrú Ísland og Ungfrú Ísland Teen á meðan önnur bentu á að femínistar hafa í ára­tugi barist gegn slíkum keppnum.

Á heima­síðu Ungfrú Ísland stendur „Ungfrú Ísland TEEN: Að styrkja næstu kyn­slóð ungra kvenna.“ Þar segir að um sé að ræða umbreyt­andi verk­efni sem hannað sé til að „hvetja, styðja og styrkja ung­lings­stúlkur um allt Ísland.“ 

Þá segir einnig að Ungfrú Ísland Teen snú­ist um að „skapa öruggt rými þar sem ungar konur geti kannað áhuga­mál sín, rætt sam­fé­lags­leg mál­efni og þróað færni sem mun nýt­ast þeim alla ævi.“ Verk­efnið snú­ist um sjálfs­ást, systra­lag …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Það er einhvernvegin allt rangt við þessa keppni. Þetta er það síðasta sem að vantar eins og staðan er varðandi andlega heilsu hjá ungu fólki. Að selja líkama undir merkjum valdeflingar er skrítin siðfræði. Peningar hafa enga sál en er ekki hægt að gera þá kröfu að þeir sem eiga þá hafi einhverja.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár