Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag

Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr fram­sækinn frétta­miðill verður til í lok viku.

Snemma árs 2013 tók fimm manna hópur sig saman, lagði sparifé sitt inn í nýstofnað félag og stofnaði fjölmiðla­fyrirtæki sem fékk nafnið Kjarninn miðlar. Tilgangurinn var að stofna miðil sem væri óháður hagsmuna­öflum og gæti lagt áherslu á gæði og dýpt. Segja færri fréttir en stóru miðlarnir en segja þær betur og setja samfélagsleg málefni í stærra samhengi fyrir lesendur.

Upphaf­lega var útgáfu­formið stafrænt vikulegt tímarit. Ljóst var frá fyrsta degi að eft­ir­spurn var eftir efn­inu og efn­is­tök­un­um. Það var þörf fyrir gagn­rýna, heið­ar­lega og fram­sýna frétta­mennsku. Trú­verð­ug­leiki Kjarnans mæld­ist mik­ill.

Formið, hið vikulega stafræna rit sem var aðgengilegt án greiðslu, var hins vegar ekki að virka sem skyldi. Það var ekki að skila sjálf­bærum rekstrar­grundvelli. Á þessu tímabili unnu stofn­endur launa­lítið eða -laust til að halda útgáfunni gangandi.

Rúmu ári eftir fyrstu útgáfu, og 60 útkomin eintök, var því skipt yfir í daglegan fréttavef. Þannig hefur kjarninn í Kjarnanum verið alla tíð síðan. Ýmislegt hefur hlaðist utan á hann. Morgun­póstur. Hlaðvörp. Vísbending, Ensk frétta­bréf.

Og auðvitað Kjarna­samfélagið, sem hefur frá 2015 verið mikil­vægasta stoðin í tilveru Kjarnans.

***

Ég, sem er á meðal stofnenda og hef ritstýrt Kjarnanum frá upphafi, lít gríðar­lega stoltur um öxl. Á líftíma sínum hafa starfs­menn Kjarnans verið tilnefndir til blaðamanna­verðlauna á hverju einasta ári, og hlotið verð­launin fjórum sinnum.

Við höfum markað okkur sérstöðu hvað varðar umfjall­anir og grein­ingar um íslensk stjórn­mál og efna­hags­mál á tíma þar sem ríkt hefur for­dæma­laus póli­tískur óstöð­ug­leiki og eðl­is­breyt­ing hefur orðið á stjórn­mál­um.

Við höfum leitt umfjöllun um sölu Lands­bankans á eignar­hlut sínum í Borgun, uppgjör slitabúa föllnu bankanna og um nýjar uppgötvanir vegna einka­væðingar Búnaðar­bankans. Um Leið­réttinguna og áhrif hennar á íslenskt samfélag.

Við tókum þátt í úrvinnslu Panama­skjalanna. Við birtum lykil­umfjallanir í Lands­réttar­málinu, meðal annars listann yfir einkunna­gjöf þeirra sem sóttust eftir dómara­embættunum, sem breyttu eðli þess máls.

Við höfum birt umfangs­miklar umfjallanir um stöðu kvenna í íslensku sam­fé­lagi (sér­stak­lega þegar kemur að stýr­ingu á fjár­mun­um), umfjallanir um þær gríð­ar­lega miklu sam­fé­lags­breyt­ingar sem eru að eiga sér stað hér­lendis vegna fjölg­unar á erlendum rík­is­borg­urum og umfjallanir um ójöfnuð í íslensku sam­fé­lagi. Við vorum leiðandi í umfjöllun um peninga­þvætti á Íslandi í aðdrag­anda þess að Ísland var sett á gráan lista vegna þeirrar meinsemdar, höfum markað okkur einstaka sérstöðu í umfjöllun um umhverfis-, orku- og loftslagsmál og nálgast samfélagið frá sjónar­horni neytenda í fjölmörgum málum.

Á síðustu árum höfum við fjallað um kynferðis­brot og kynbundið ofbeldi, ítarlega um sölu á eignar­hlutum ríkisins í bönkum frá sjónar­horni almannahags­muna, fjallað gríðar­lega mikið um það fáveldi sem hefur myndast vegna þess sjávar­útvegs­kerfis sem rekið hefur verið hér á landi og verið í farar­broddi í umfjöllunum um ýmis athæfi Samherja. Þá er ónefnd fordæma­laus umfjöllun Kjarnans um brunann á Bræðra­borgar­stíg og marg­háttaðar afleiðingar hans. Svo fátt eitt sé nefnt.

Þetta hefur ekki alltaf verið auðvelt. Okkur hefur verið hótað lögsóknum. Fjölmargar rekstrar­hindranir hafa verið reistar. Vegið hefur verið að æru, fag­heiðri og fram­færslu blaða­manna sem hér hafa starfað. Í næstum ár hef ég og annar blaða­maður Kjarnans verið til rann­sóknar hjá lögreglu­embætti fyrir það að taka við gögnum sem áttu skýrt erindi við almenning og skrifa fréttir upp úr þeim.

En þetta hefur allt verið þess virði. Kjarninn hefur vaxið og dafnað. Frá 2019 og út síðasta ár hafa tekjur meira en tvöfaldast og reksturinn er sjálfbær. Þetta höfum við gert án þess að stofna til skulda. Með ykkar liðsinni.

***

Skömmu fyrir jól var greint frá því að aðstand­endur Kjarn­ans og Stund­ar­innar hefðu náð sam­stöðu um að sam­eina fjöl­miðl­ana tvo. Útgáfu­fé­lög þeirra runnu saman um nýliðin áramót og 13. janúar verður nýr mið­ill, með nýju nafni, til.

Kjarna­starf­semi hans verður dag­leg frétta­síða, á borð við þá sem Kjarninn hefur rekið, og öflug prentút­gáfa sem mun koma út tvisvar í mán­uði. Sameinuð ritstjórn verður sú öflugasta sem fyrir­finnst á Íslandi.

Mark­miðið með sam­ein­ing­unni er að setja saman öfl­ugt íslenskt fjöl­miðla­fyr­ir­tæki sem stendur að óháðri, vand­aðri, gagn­rýn­inni og upp­byggi­legri aðhalds­blaða­mennsku, býður upp á gott starfs­um­hverfi og móta fjöl­miðil sem getur stækk­að, vaxið og dafn­að.

Til viðbótar stendur til að breikka efnistök, fjölga leiðum til að miðla efni og vera með sterkari rödd í íslensku samfélagi.

Sameiginlega útgáfu­félagið verður með afar dreift eignar­hald og að hluthafa­hópi hans stendur fólk úr öllum áttum sem deilir því markmiði að vilja frjálsa og öfluga fjölmiðla sem hafa getu til að skipta máli og burði til að veita ráða­mönnum hverju sinni viðeigandi aðhald.

Alls verða einstaklingarnir í eigenda­hópnum á fjórða tug talsins og enginn einn hluthafi mun eiga yfir tíu prósent hlut. Algjör eining er um það innan hópsins að allar viðbótar­tekjur sem falla til fara í að efla reksturinn.

Með öðrum orðum þá verður allt það sem fékk ykkur til að ganga til liðs við Kjarna­samfélagið áfram til staðar.

***

Ég vil nota tækifærið á þessum tímamótum til að segja takk fyrir. Án ykkar hefði ekki orðið neinn Kjarni. Það sem við höfum gert, gerðuð þið okkur kleift að gera.

Við mótun nýja miðilsins verður leitað til almenn­ings um hug­mynd­ir, ábend­ingar og leið­sögn. Þeir sem vilja halda áfram að styrkja okkur með þeim hætti sem þið hafið gert hingað til gerið það einfald­lega áfram án þess þurfa að gera nokkuð. Þið getið líka gerst áskrifendur að nýja miðlinum með því að skrá ykkur á slóðinni kjarn­inn.­stund­in.is.

Þar er hægt að nálgast allar helstu upplýsingar um sameininguna og það sem þegar liggur fyrir um nýjan miðil. Þar geta lesendur líka komið á framfæri ábendingum og hugmyndum fyrir nýjan miðil.

Það er ekki hægt að setja verðmiða á óháða blaða­mennsku. Hún er ómetanleg, en hún er ekki ókeypis. Frjálsir, hugrakkir fjöl­miðlar gegna að okkar mati lykil­hlutverki í því að viðhalda lýðræðinu og stuðla að heilbrigðri þjóðfélags­umræðu.

Við bjóðum ykkur með í þetta ferðalag.

Með þakklætis­kveðju,

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans og annar ritstjóri nýs miðils.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár