Borgarstjóri vill losna við dósafólkið

Frank Jensen yfir­borg­ar­stjóri Kaup­manna­hafnar vill breyta núgild­andi lögum um end­ur­greiðslu drykkj­ar­um­búða. Heim­il­is­lausum útlend­ingum sem draga fram lífið með dósa-og flösku­söfnun hefur fjölgað mikið í borg­inni á síð­ustu árum. Borg­ar­stjór­inn vill losna við dósa­fólkið.

Þær tug­þús­undir Íslend­inga sem hafa komið til Kaup­manna­hafnar muna sjálf­sagt vel gömlu bjór­flösk­urnar, sem Danir kalla reyndar ölflasker. Í lag­inu eins og Pilsner­flösk­urnar sem Íslend­ingar drukku úr í ára­tugi. Grænar flöskur voru algengastar (þetta var löngu fyrir daga dósa og plasts) enda not­aðar undir „Hof“ og „Grön“ eins og Danir köll­uðu tvær lang­vin­sæl­ustu bjór­teg­und­irnar, sú fyrr­nefnda frá Carlsberg, Grön frá Tuborg. Margir íslenskir náms­menn muna líka vel eftir því að rog­ast með bjór­kass­ana heim úr búð­inni og svo til baka með sömu kass­ana og sömu flösk­urnar, tómar, aftur út í búð. Og svo kannski aftur heim með „nýja áfyll­ingu“. Ástæðan fyrir þess­ari hringrás flaskn­anna var auð­vitað sú að á þeim var skila­gjald, til­tölu­lega hátt. Ef það hefði ekki verið til staðar hefðu flösk­urnar senni­lega endað í rusla­tunn­unni.

Skilagjaldið var tekið upp í stríðinu

Árið 1942, í miðri síð­ari heims­styrj­öld, ákváðu dönsk stjórn­völd að taka upp skila­gjald á bjór­flöskur. Til­gang­ur­inn auð­vitað sá að nýta flösk­urnar betur, henda þeim ekki frá sér þegar síð­asta drop­anum var kyngt. Og spara orku því gler­fram­leiðsla er mjög orku­frek.Haft var eftir dönskum stjórn­mála­manni að nauð­syn­legt væri að hafa skila­gjaldið hátt. Það reynd­ist rétt, Danir urðu strax mjög skilaglaðir og athug­anir bjór­fram­leið­end­anna sýndu, nokkrum árum eftir að skila­gjaldið var tekið upp að flösk­urnar fóru að með­al­tali 15 sinnum í gegnum áfyll­ing­ar­vél­arnar. Dæmi reyndar til um mun fleiri skipti.

Síðar kom skila­gjald á plast­flöskur og árið 2002 á dósir.

Þeir sem selja dósir og flöskur verða líka að taka við þeim tómu

Allt frá því að skila­gjaldið var tekið upp hafa gilt um það ákveðnar reglur. Allir sem selja gos­drykkja- og öldósir verða að taka við umbúðum og borga þeim sem skilar „pantið“. Einungis 33 cl. bjór­flöskur og 50 cl. gos­drykkjaflöskur eru í dag þvegnar og not­aðar aftur undir „aðra umferð“. Annað gler, dósir og plast er end­ur­unnið og þannig end­ur­nýtt. Í því felst mik­ill orku­sparn­aður miðað við að fram­leiða nýtt gler, ál og plast frá grunni. Fólk er þess vegna ein­dregið hvatt til að skila öllum flöskum, eða dósum sem ekki eru seldar með skila­gjaldi, í sér­staka end­ur­vinnslugáma, sem alls staðar má finna.

Sá sem skilar skila­gjalds­skyldum umbúðum fær ávísun sem hann getur ann­að­hvort notað til vöru­kaupa í við­kom­andi verslun eða fengið greitt í reiðufé.

Milljónir dósa og flaskna fara í ruslið

Þrátt fyrir að Danir séu mjög dug­legir að skila umbúðum er þó gríð­ar­legur fjöldi flaskna og dósa sem enda í rusl­inu. Fólk sem er „úti á líf­inu“ t.d. í Kaup­manna­höfn ber ekki tómu dós­irnar eða flösk­urnar með sér heim, það lætur umbúð­irnar ein­fald­lega flakka í rusla­dall­ana. Allur sá mikli fjöldi ferða­fólks sem röltir um götur borg­ar­innar er heldur ekki að velta fyrir sér skila­gjald­inu.

Hirðu­samir ein­stak­lingar gera sér svo mat úr öllum þessum ara­grúa umbúða og nán­ast hvert sem farið er um í borg­inni má sjá áhuga­sama flösku­safn­ara á ferð, kíkj­andi í ruslið og hirða svo þær umbúðir sem hægt er að breyta í pen­inga.

Útlendir flösku- og dósasafnarar áberandi í borginni

Þótt margir hinna hirðu­sömu séu Danir hefur þeim útlend­ingum fjölgað sem bein­línis koma til Kaup­manna­hafnar til að safna umbúðum og afla þannig fjár. Stór hluti þessa hóps kemur frá Austur-Evrópu og er að flýja fátækt­ina heima fyrir. Flestir blá­fá­tækir og hafa hvergi húsa­skjól og haf­ast við víðs­vegar í borg­inni, iðu­lega í almenn­ings­görðum. Blaða­maður dag­blaðs­ins Politi­ken ræddi nýlega við tvo rúm­enska flösku­safn­ara sem búa í tjaldi á afviknum stað í borg­inni. Þeir sögð­ust hafa komið til Kaup­manna­hafnar því þeir hefðu heyrt að þar væri hægt að skrapa saman aurum með því að safna flöskum og dósum. Þessir menn sögð­ust eiga fjöl­skyldur heima í Rúmeníu og pen­ing­arnir sem þeir söfn­uðu færu að mestu leyti þangað. Ekki er nákvæm­lega vitað hvað þeir útlend­ingar sem stunda þessa dósa- og flösku­söfnun eru margir en þeim hefur fjölgað mjög að und­an­förnu. Borg­ar­yf­ir­völdum til lít­illar ánægju.

Yfirborgarstjóri vill breytingar á skilagjaldslögunum

Frank Jensen yfir­borg­ar­stjóri Kaup­manna­hafnar er ósáttur við þessa miklu fjölgun erlendra dósa- og flösku­safn­ara. Hann vill gera breyt­ingar á skila­gjalds­lög­unum og hefur skrifað ráð­herrum dóms- og umhverf­is­mála bréf þess efnis. Hann vill að ekki verði hægt að fá reiðufé fyrir umbúðir sem skilað er, heldur verði ein­ungis hægt að nota inn­eign­arnót­una til vöru­kaupa í við­kom­andi verslun. Inn­eign­ar­nótan gildi ein­ungis í mjög tak­mark­aðan tíma, t.d klukku­stund. Það á að tryggja að ekki verði hægt að gera inn­eign­arnót­una að versl­un­ar­vöru. Þetta eru ekki flóknar reglur og borg­ar­stjór­inn telur að þær myndu verða til þess að heim­il­is­lausir útlend­ingar sæju sér ekki hag í að koma til Kaup­manna­hafnar og afla tekna með dósa- og flösku­söfnun. Frank Jensen segir að þetta myndi ekki breyta neinu fyrir þá Dani sem safna umbúðum, þeir noti inn­eign­ina und­an­tekn­inga­lítið til kaupa á mat og drykk.

Skiptar skoð­anir eru um þessar til­lögur borg­ar­stjór­ans sem ekki hafa verið teknar til skoð­unar og afgreiðslu í ráðu­neytum dóms- og umhverf­is­mála. Þar hefur und­an­farið verið í mörg önnur horn að líta, ekki síst vegna breyt­inga á rík­is­stjórn lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár