Svandís þakkar þríeykinu fyrir sitt framlag

Heil­brigð­is­ráð­herra þakk­aði Ölmu, Þórólfi og Víði á síð­asta upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Hún minnti einnig á að bar­átt­unni væri enn ekki lokið.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Lögreglan

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra þakk­aði heil­brigð­is­starfs­fólki um allt land fyrir vel unnin störf í bar­átt­unni við COVID-19 á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag sem jafn­framt var sá síð­asti. Í ræðu sinni sagði hún það líka hafa verið verk­efni sam­fé­lags­ins alls að laga sig að breyttum aðstæðum og að þar hafi tek­ist vel til.

Það markar ákveðin tíma­mót að reglu­legir upp­lýs­inga­fundir almanna­varna hafi nú runnið sitt skeið á enda. Svandís nýtti samt sem áður tæki­færið til að minna á að sigur gegn veirunni væri ekki í höfn: „En verk­efn­inu er ekki lokið við þurfum áfram að fara var­lega og eftir því sem sam­fé­lagið opn­ast meira verðum við að leggja meiri áherslu á að gleyma ekki ein­földu regl­unum um að passa okkur sjálf, hand­þvott, sprittun og hæfi­lega fjar­lægð.“

[adspot]Enn sé fjöldi fólks og fjöl­skyldur að glíma við COVID-19, afleið­ingar sjúk­dóms­ins og eft­ir­köst. „Tíu manns hafa lát­ist og er fjöl­skyldum þeirra hér vottuð samúð. En nú er komið að næstu skrefum, næsta kafla þar sem við búum okkur undir að opna landa­mæri. Afar var­lega. Verk­efn­is­stjórn sem hefur fengið það hlut­verk að stýra und­ir­bún­ingi verk­efn­is­ins um sýna­töku og grein­ingar á COVID-19 meðal far­þega sem koma til lands­ins mun skila fyrstu til­lögum til mín á fundi síðar í dag, og í kjöl­farið fæ ég minn­is­blað frá sótt­varn­ar­lækni með til­lögu um næstu skref varð­andi opnun lands­ins. Þetta er flókið verk­efni sem snertir mörg mál­efna­svið og mörg ráðu­neyti og þarf að skoða bæði út frá sótt­varn­ar­legum rök­semdum og efna­hags­legum Þeim spurn­ingum öllum verður svarað á næstu dögum.“

Undir lok ræð­unnar ítrek­aði Svandís þakk­læti sitt í garð þrí­eyk­is­ins, þeirra Ölmu, Víðis og Þórólfs. Hún færði þeim að lokum þakk­læt­is­vott í formi blóma fyrir þeirra „ein­staka fram­lag á sann­ar­lega for­dæma­lausum tímum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár