Ólína vill flýta formannskosningu: „Öllu haldið í lömunarástandi"

Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ingar, vill flýta lands­fundi flokks­ins um hálft ár og þar með for­manns­kosn­ingu. Hún segir ríkja löm­unar­á­stand innan Sam­fylk­ing­ar­innar og staða flokks­ins í ítrek­uðum skoð­ana­könn­unum sé óboð­leg.

Ólína Þorvarðadóttir, þingmaður Samfylkingar
Ólína Þor­varða­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ingar Mynd: RÚV

Það á að flýta lands­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar um hálft ár og þar með for­manns­kjöri. Þetta er mat Ólínu Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttur, þing­manns Sam­fylk­ingar. Ástæðan er slakt fylgi flokks­ins í skoð­ana­könn­unum und­an­farin miss­eri.

Vísir greinir frá mál­inu. Í sam­tali við Kjarnann segir Ólína að staða flokks­ins sé orðin það slök að ekki verði unað við hana lengur.

Veikt formannsumboð flokknum til trafala

„Við erum flokkur sem lítur á sig sem burð­ar­afl í íslenskri póli­tík. Það verður að kom­ast ein­hver hreyf­ing á innan flokks­ins og það verður að skerpa betur á því gagn­vart almenn­ingi fyrir hvað Sam­fylk­ingin stendur,” segir hún. „Það kann að vera að for­ystu­kreppa flokks­ins hafi áhrif þarna og sú stað­reynd að for­mað­ur­inn hefur veikt umboð eftir síð­asta lands­fund. Það er aug­ljós­lega flokknum til trafala.”

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, vann for­manns­kosn­ingu á síð­asta lands­fundi með einu atkvæði þegar Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir bauð sig fram á móti honum með afar skömmum fyr­ir­vara.

Ólína segir að ásamt for­manns­kjöri hafi flokk­ur­inn gott af þeirri mál­efna­vinnu sem fylgi lands­fundi. Hann er á dag­skrá í nóv­em­ber en hún vill flýta honum um hálft ár og halda hann í maí.

„Það eru kosn­ingar vorið 2017 og það er allt of knappur tími fyrir flokk­inn að standa í for­manns­kosn­ingum, sem geta verið erf­iðar, og eiga svo á nokkrum mán­uðum að kynna sig fyrir kosn­ingar,” segir hún.

Sam­fylk­ingin hefur verið að mæl­ast með sögu­lega lágt fylgi í skoð­ana­könn­unum und­an­farið. Í Gallup­könnun sem birt var í gær mæld­ist hún með 9,2 pró­sent, hjá MMR sem birt var 20. jan­úar var fylgið 10,4 pró­sent og svo 9,9 pró­sent í skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins og Stöðvar 2 sem birt var 28. jan­úar.

Margir hæfir í formanninn

Ólína segir að van­traust á hefð­bundnum stjórn­mála­flokkum sé ríkj­andi í könn­unum nú, sem og innri vandi ein­stakra flokka eins og Sam­fylk­ingar.

„Flokk­ur­inn hefur átt í vand­ræðum og mál­flutn­ingur veikst, þó að það hafi sjaldan verið meiri þörf fyrir jafn­að­ar­stefnu og nú,” segir hún.

Hún seg­ist ekki vera að horfa til neinna sér­stakra ein­stak­linga varð­andi for­manns­kjörið. Spurð hvort hún geti hugsað sér að leiða flokkin sjálf segir hún:

„Ég tel ekki tíma­bært að hug­leiða það núna. En allir sem gefa kost á sér til for­ystu­starfa í stjórn­málum, í þingi og sveit­ar­stjórnum, hljóta að vera til­búnir til að taka að sér þau störf sem þeim er trúað fyrir," segir hún. „En á meðan öllu er haldið í löm­unar­á­standi eins og staðan er núna, þá kemur það fólk ekki fram. Fólk verður að fá tæki­færi til þess án þess að það kosti leið­indi. Í Sam­fylk­ing­unni eru margir vel til þess fallnir að leiða flokk­inn.”

Frumvarp Sigríðar og Helga hressandi

Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir og Helgi Hjörvar þing­flokks­for­maður lögðu fram frum­varp í síð­asta mán­uði um afnám verð­trygg­ingar. Frum­varpið hlaut ekki hljóm­grunn meðal flokks­ins. Ólína segir að ekki sé hægt að gera þá kröfu að allir eigi að vera sam­mála.

„Þess vegna fannst mér frum­varp Helga og Sigríðar hressi­legt inn­leg inn í stjórn­mála­um­ræð­una og það sem flokk­ur­inn stendur fyrir, þó að ég hafi ekk­ert endi­lega verið sam­mála því. Það er ekk­ert að því að þing­menn hafi sér­stöðu í ein­staka málum,” segir hún. „Við eigum að vera óhrædd við að vera ekki alltaf öll eins - svo fram­ar­lega sem við stöndum öll sam­eig­in­lega um þunga­miðj­una sem er jafn­að­ar­stefnan.”

Bjartsýn á að landsfundi verði flýtt

Til að flokk­ur­inn nái aftur vopnum sínum fyrir næstu kosn­ingar segir Ólína að nauð­syn­legt sé að halda rétt á spil­unum og það megi ekki drag­ast lengur að gera eitt­hvað í mál­unum. Hún seg­ist hafa fengið góðan hljóm­grunn vegna til­lög­unnar um að flýta lands­fundi. Fram­kvæmda­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar lagði fram sömu til­lögu síð­asta sumar en það náði aldrei lengra. Ólína er bjart­sýn á að annað verði uppi á ten­ingnum nú og segir mik­il­vægt að ná góðri sam­stöðu um það. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár