Hefði eignaumsýslufélag ríkisins átt að púsla saman íslensku atvinnulífi eftir hrunið?

Í gær voru sjö ár frá því að neyð­ar­lög voru sett á Íslandi vegna þess að hrun alls íslenska banka­kerf­is­ins var yfir­vof­andi. Næstu daga á eftir féllu þrír stærstu bankar þjóð­ar­innar eins og spila­borgir.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið taldi að við banka­hrunið hafi um 70 pró­sent af 120 stærstu fyr­ir­tækjum lands­ins verið undir beinum eða óbeinum yfir­ráðum banka. Annað hvort voru bank­arnir bein­línis búnir að taka fyr­ir­tækin yfir eða skulda­staða þeirra var þess eðlis að þau voru í gjör­gæslu bank­anna og gátu ekki ráðið sínum málum sjálf. Þessi 120 fyr­ir­tæki mynd­uðu um helm­ing íslensks þjón­ustu­mark­aðar.

Þótt ekki hafi verið birtar rann­sóknir sem sýna hver staðan var hjá öllu atvinnu­líf­inu var það skoðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og allra stóru bank­anna að þessa tölu, 70 pró­sent, megi í raun yfir­færa á starf­semi lands­ins í heild. Því stóðu stjórn­völd, stofn­anir og atvinnu­fyr­ir­tæki frammi fyrir risa­vöxnu og ein­stöku verk­efni. Hvernig átti að end­ur­skipu­leggja allt á Íslandi? Og hver átti að gera það?

Á end­anum var tekin sú ákvörðun að end­ur­reistu bank­arnir; Arion banki, Íslands­banki og Lands­banki ættu að gera það. Líf­væn­legum inn­lendum eignum hafði verið hrúgað inn í þessa banka og þeir voru fjár­magn­aðir með inn­stæðum lands­manna og fjár­magni frá hinum opin­bera. Þegar sam­komu­lag náð­ist við kröfu­hafa föllnu bank­anna, sem höfðu tapað þús­undum millj­arða króna á við­skiptum sínum við Ísland, um að þeir mættu eiga meiri­hlut­ann í tveimur end­ur­reistu bank­anna, enda voru eign­irnar sem settar voru inn undir öllum eðli­legum kring­um­stæðum þeirra eignir.

Bank­arnir fengu því að „þvo“ atvinnu­lífið. Það var þó fjarri því ein­boðið að svo yrði. Önnur hug­mynd var líka mikið rædd og kom raun­veru­lega til greina.

Bjuggust við því að fá fleiri fyrirtæki í fangið


Framan af árinu 2009 bjugg­ust íslensk stjórn­völd við því að fá fleiri fyr­ir­tæki í fangið en bara bank­ana. Þess vegna var meðal ann­ars und­ir­búin stofnun svo­kall­aðs eigna­um­sýslu­fé­lags rík­is­ins, sem átti að geta tekið við slíkum fyr­ir­tækjum.

Ljóst var að nokkur þjóð­hags­lega mik­il­væg fyr­ir­tæki myndu ekki fá að fara á von­ar­völ af neinu tagi. Á meðal fyr­ir­tækja sem skil­greind voru sem slík voru flutn­ings­fyr­ir­tæki og fjar­skipta­fyr­ir­tæki. Efst á þeim lista var Icelandair. Það hefði aldrei komið til greina að láta það fyr­ir­tæki lenda í vand­ræðum vegna mik­il­vægis þess fyrir flutn­inga á fólki og vörum til og frá land­inu. Rík­is­stjórnin hafði rétti­lega gert sér vonir um að ferða­þjón­usta gæti orðið ein af vaxta­grein­unum eftir hrun sem myndi hjálpa til við efna­hags­batann. Aukning innan hennar var ómögu­leg án Icelandair.

[caption id="attachment_10890" align="alignnone" width="800"] Aldrei kom til greina að hálfu stjórn­valda að láta Icelandair fara í þrot. Fyr­ir­tækið gegnir lyk­il­hlut­verki í flutn­ingi til og frá lands­ins og þeirri efna­hags­legu end­ur­reisn sem ferða­þjón­usta hefur gert Íslandi kleift að upp­lifa.[/caption]

Flutnings- og fjarskiptafélag ríkisins


Önnur fyr­ir­tæki sem raun­veru­lega var rætt um að ríkið myndi taka yfir var Míla. Ríkið átti þá þegar Landsnet og þurfti síðar að setja mikið fé í Farice, sem rekur sæstrengi til lands­ins. Hug­myndin var þá að setja Mílu, sem er félag utan um grunn­fjar­skipta­netið, ásamt Lands­neti og Farice inn í eitt stórt og öfl­ugt flutn­ings- og fjar­skipta­fé­lag í eigu rík­is­ins.

Aldrei kom til greina að hálfu stjórnvalda að láta Icelandair fara í þrot. Fyrirtækið gegnir lykilhlutverki í flutningi til og frá landsins og þeirri efnahagslegu endurreisn sem ferðaþjónusta hefur gert Íslandi kleift að upplifa.
Aldrei kom til greina að hálfu stjórn­valda að láta Icelandair fara í þrot. Fyr­ir­tækið gegnir lyk­il­hlut­verki í flutn­ingi til og frá lands­ins og þeirri efna­hags­legu end­ur­reisn sem ferða­þjón­usta hefur gert Íslandi kleift að upp­lifa.

Hug­myndin um opin­bert eigna­um­sýslu­fé­lag er oft­ast kennd við Sænska banka­sér­fræð­ing­inn Mats Jos­efs­son. Hann kom hingað til lands eftir hrunið fyrir til­stuðlan Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins og hafði ára­tuga reynslu af end­ur­skipu­lagn­ing­ar­störfum, meðal ann­ars í banka­krepp­unni í Svíþjóð eftir árið 1990. Jos­efs­son setti strax fram ákveðnar hug­myndir um hvernig ætti að end­ur­reisa atvinnu­lífið eftir hrunið. Það skyldi gert á grund­velli þess að vernda sam­keppni ann­ars vegar og síðan þjóð­hags­lega mik­il­væg fyr­ir­tæki hins vegar. Jos­efs­son lagði til að öll þjóð­hags­lega mik­il­væg fyr­ir­tæki sem stæðu höllum fæti yrðu sett í sér­stakt eigna­um­sýslu­fé­lag í opin­berri eigu, í það minnsta fyrst um sinn. Með þjóð­hags­lega mik­il­vægum fyr­ir­tækjum var átt við rekstur sem hag­kerfið þurfti nauð­syn­lega á að halda, svo sem rekstur á sviði skipa­flutn­inga, flug­sam­gangna og fjar­skipta.

Mikil andstaða við hugmyndir Josefsson innan bankanna


Jos­efs­son kynnti þessar hug­myndir í umboði Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins og taldi að þær væru best til þess fallnar að end­ur­heimta traust, fljótt og vel. Hann var for­maður nefndar um end­ur­reisn fjár­mála­kerf­is­ins, sem rík­is­stjórnin og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn komu sér saman um að skipa, og hafði það meg­in­mark­mið að sam­ræma aðgerðir stjórn­valda, eft­ir­lits­stofn­ana og bank­anna við þá vinnu fyrstu mán­uð­ina eftir að nýtt banka­kerfi varð til í kjöl­far neyð­ar­lag­anna. Á meðal þess sem Jos­efs­son lagði mikla áherslu á var að allt yrði uppi á borð­inu við end­ur­skipu­lagn­ingu bank­anna og björgun fyr­ir­tækja lands­ins.

[caption id="attachment_13420" align="alignnone" width="1024"] Stein­grímur J. Sig­fús­son var fjár­mála­ráð­herra þegar ákvörðun var tekin um að láta end­ur­reistu bank­ana end­ur­skipu­leggja íslenskt við­skipta­líf.[/caption]

Steingrímur J. Sigfússon var fjármálaráðherra þegar ákvörðun var tekin um að láta endurreistu bankana endurskipuleggja íslenskt viðskiptalíf.
Stein­grímur J. Sig­fús­son var fjár­mála­ráð­herra þegar ákvörðun var tekin um að láta end­ur­reistu bank­ana end­ur­skipu­leggja íslenskt við­skipta­líf.

Strax var ljóst að mikil and­staða var til staðar innan end­ur­reistu bank­anna og hags­muna­sam­taka atvinnu­lífs­ins, sér­stak­lega Samtaka atvinnu­lífs­ins og Samtaka iðn­að­ar­ins, við þær hug­myndir sem Jos­efs­son boð­aði. And­staðan var einkum gagn­vart hug­mynd­inni um stofnun eigna­um­sýslu­fé­lags á vegum rík­is­ins. Margir ótt­uð­ust póli­tíska spill­ingu við stjórn félags­ins og einnig að arð­sem­is­sjón­ar­mið fengju ekki að ráða för í rekstri, þ.e. að póli­tísk stefna yrði að ein­hverju leyti ráð­andi við ákvarð­ana­töku innan fyr­ir­tækj­anna sem yrðu í félag­inu. Horft var til ýmissa fyr­ir­tækja sem gætu farið inn í þetta félag, svo sem Eimskips, Icelandair Group og Skipta, móð­ur­fé­lags Símans.

And­staðan við hug­myndir Jos­efs­son magn­að­ist eftir því sem leið á end­ur­reisn­ar­starfið og varð brátt hávær innan stjórn­ar­flokk­anna. Þar var komin upp óánægja með störf Jos­efs­son í upp­hafi árs 2009 þegar nefndin sem hann stýrði hafði aðeins starfað í nokkra mán­uði.

Josefsson hótaði að hætta


Í maí­mán­uði það ár dró til tíð­inda. Þá snöggreidd­ist Jos­efs­son á fundi með stjórn­völdum og hót­aði að hætta störfum þegar í stað. Morg­un­blaðið greindi frá þessu á for­síðu 25. maí 2009. Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, stað­festi í umræðum á þing­inu sam­dæg­urs að Jos­efs­son hefði hótað að hætta. Ástæðan fyrir reiði­kasti Jos­efs­son og hót­unum hans í kjöl­farið var að hann taldi end­ur­reisn bank­anna ekki ganga nógu hratt. Var hann sér­stak­lega pirr­aður yfir því að bank­arnir væru ekki að leggja nógu mikið af mörkum við að greina eigna­söfn sín og taka á vanda fyr­ir­tækj­anna.

Innan end­ur­reistu bank­anna horfðu málin öðru­vísi við og var þeim sjón­ar­miðum marg­sinnis komið skýrt á fram­færi að hug­myndir Jos­efs­son væru á skjön við það sem stjórn­endur og starfs­fólk bank­anna teldu rétt­ast. Þeim hugn­að­ist ekki stofnun eigna­um­sýslu­fé­lags­ins og töldu skyn­sam­leg­ast að vandi fyr­ir­tækja, einnig þeirra sem væru þjóð­hags­lega mik­il­væg, yrði fyrst og fremst í höndum bank­anna og hann yrði leystur sér­tækt en samt á grund­velli almennra laga og reglna.

Eygló spurði út í Mats


Eygló Harð­ar­dóttir, þáver­andi þing­kona Fram­sókn­ar­flokks­ins og núver­andi félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, spurði for­sæt­is­ráð­herra sér­stak­lega út í það hvers vegna Mats Jos­efs­son hefði hótað að hætta störfum og hvaða skil­yrði hann hefði sett fyrir áfram­hald­andi störfum fyrir stjórn­völd.

[caption id="attachment_29210" align="alignnone" width="1024"] Eygló Harð­ar­dóttir spurði út í gagn­rýni Mats Jos­efs­sonar á Alþingi.[/caption]

Eygló Harðardóttir spurði út í gagnrýni Mats Josefssonar á Alþingi.
Eygló Harð­ar­dóttir spurði út í gagn­rýni Mats Jos­efs­sonar á Alþingi.

Í svari Jóhönnu við fyr­ir­spurn­inni sagði að Jos­efs­son hefði komið þeirri skoðun sinni „skýrt á fram­færi“ við stjórn­völd að end­ur­reisn banka­kerf­is­ins hefði verið tíma­frek­ari en að hefði verið stefnt.

„Frá lokum árs­ins 2008 hefur verið starf­andi svo­nefnd sam­ræm­ing­ar­nefnd í banka­málum sem Mats Jos­efs­son hefur stýrt og hefur sú nefnd haldið viku­lega fundi. Í þess­ari nefnd hafa setið auk Mats full­trúar for­sæt­is­ráðu­neytis, fjár­mála­ráðu­neytis, við­skipta­ráðu­neytis, utan­rík­is­ráðu­neytis, Fjár­mála­eft­ir­lits­ins og Seðla­banka Íslands. Í síð­asta mán­uði var ákveðið í fullu sam­ráði við Mats Jos­efs­son að breyta fyr­ir­komu­lagi þess­ara mála á þann hátt að í stað sam­ræm­ing­ar­nefnd­ar­innar yrði sett á lagg­irnar tíma­bund­inn stýri­hópur um end­ur­reisn banka­kerf­is­ins. Meg­in­til­gangur þess­arar breyt­ingar er að styrkja fram­kvæmd end­ur­reisn­ar­starfs­ins enn frekar nú þegar nær dregur þeim tíma­punkti að ríkið leggi nýju bönk­unum til nýtt eigið fé þegar samn­ingum við kröfu­hafa gömlu bank­anna lýkur. Stýri­hóp­ur­inn hefur fundað mjög ört og að jafn­aði þrisvar til fjórum sinnum í viku. Í stýri­hópnum sitja, auk Mats Jos­efs­sonar, seðla­banka­stjóri, sem stýrir starfi nefnd­ar­innar, full­trúi for­sæt­is­ráðu­neytis og fjár­mála­ráðu­neytis auk aðstoð­ar­manna for­sætis-, fjár­mála- og við­skipta­ráð­herra.

Mats Jos­efs­son hefur því ekki sett nein skil­yrði fyrir áfram­hald­andi starfi en hann hefur komið þeirri skoðun sinni skýrt á fram­færi við stjórn­völd að það fyr­ir­komu­lag sem upp­haf­lega var sett upp varð­andi end­ur­upp­bygg­ing­ar­starfið í banka­málum hafi ekki verið eins skil­virkt og stefnt var að. Með nýju fyr­ir­komu­lagi í þessum málum er brugð­ist við þessum ábend­ingum Mats Jos­efs­sonar,“ sagði í svari for­sæt­is­ráð­herra.

[caption id="attachment_22534" align="alignnone" width="950"] Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, stað­festi að Jos­efs­son hefði sett fram gagn­rýni á end­ur­skipu­lagn­ingu atvinnu­lífs­ins.[/caption]

Hafði litla trú á íslensku fagfólki og vildi erlenda ráðgjafa


Eftir því sem leið á vinn­una við end­ur­skipu­lagn­ingu banka­kerf­is­ins og stærstu fyr­ir­tækj­anna var ljóst að Mats Jos­efs­son var ekki að ráða för og inn­takið í hans hug­myndum fékk ekki hljóm­grunn hjá stjórn­völdum eða innan end­ur­reistu bank­anna. Á fundum sem hann sat með emb­ætt­is­mönnum og starfs­fólki úr bönk­unum kom marg­sinnis fram í hans máli að hann hefði litla trú á íslensku fag­fólki og helst vildi hann fá erlenda ráð­gjafa hingað til lands­ins til að stýra eigna­um­sýslu­fé­lag­inu. Aðeins þannig væri hægt að tryggja fag­lega stjórn yfir hinum þjóð­hags­lega mik­il­vægu fyr­ir­tækjum.

Jóhanna Sigurðardóttir, þáverandi forsætisráðherra, staðfesti að Josefsson hefði sett fram gagnrýni á endurskipulagningu atvinnulífsins.
Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, stað­festi að Jos­efs­son hefði sett fram gagn­rýni á end­ur­skipu­lagn­ingu atvinnu­lífs­ins.

Virkjun eigna­um­sýslu­fé­lags­ins reynd­ist óþörf eftir að bank­arnir voru orðnir starf­hæfir. Þá gátu þeir sjálfir tekið á vand­ræðum atvinnu­lífs­ins. Það er hins vegar ljóst að hug­myndin um eigna­um­sýslu­fé­lag rík­is­ins, sem hefði fært eign­ar­hald margra fyr­ir­tækja til hins opin­bera, var hótun sem virk­aði ágæt­lega gagn­vart bönk­unum. Hún var hvati til að drífa þá af stað. Jos­efs­son hætti störfum árið 2011. Hug­myndir hans fengu aldrei neitt braut­ar­gengi hjá íslenskum stjórn­völdum.

Væri pólitískt eignaumsýslufélag betra en bankar?


Þótt end­ur­skipu­lagn­ing íslensks atvinnu­lífs hafi að mörgu leyti gengið vel hefur hún einnig verið gagn­rýnd umtals­vert. Við­skipta­bank­arnir hafa til dæmis ítrekað legið undir ámæli fyrir að halda á eignum í óskyldum rekstri lengur en reglur gera ráð fyrir.

Þá hefur gagn­sæi og jafn­ræði við sölu fyr­ir­tækja sem búið er að end­ur­skipu­leggja einnig verið gagn­rýnt. Dæmi um slíka gagn­rýni snúa að sölu á fyr­ir­tækjum bak­við luktar dyr til val­inna hópa fjár­festa, að starfs­menn banka hafi nýtt sér aðstöðu sína til að kom­ast yfir fyr­ir­tæki eða að valdir við­skipta­vinir bank­anna eða aðilar innan fyr­ir­tækja sem verið er að selja fái betri kjör en öðrum bjóð­ast á hlutum í þeim í aðdrag­anda skrán­inga þeirra á markað.

Auk þess voru nýju bank­arnir gagn­rýndir harð­lega af stjórn­endum fyr­ir­tækja sem stóðu af sér hrunið fyrir að halda fyr­ir­tækjum sem lentu í fangi bank­anna á áfram á lífi með fjár­hags­legri með­gjöf. Með þess­ari stöðu, þar sem dauðum fyr­ir­tækjum væri haldið lif­andi með handafli, væri verið að refsa þeim sem stóðu af sér hrunið fyrir að hafa rekið fyr­ir­tækin sín af ábyrgð.

Hvernig end­ur­skipu­lagn­ingin hefði gengið ef eigna­um­sýslu­fé­lag rík­is­ins, með póli­tískri yfir­stjórn, hefði séð um hana mun eng­inn nokkru sinni vita. Það má þó slá því föstu að ásak­anir um spill­ingu, aðstöðumun, græðgi, mis­notkun og frænd­hygli, sem ítrekað hafa beinst að bönk­unum á meðan að á þeirra end­ur­skipu­lagn­ing­ar­ferli hefur staðið, hefðu síst orðið minni ef stjórn­mála­menn hefðu með beinum hætti verið með putt­ana í því hverjir myndu fá að eign­ast stærstu og mik­il­væg­ustu fyr­ir­tæki lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár