Bankarnir eiga enn í tuttugu fyrirtækjum - Þetta eru fyrirtækin

Þrátt fyrir að nær sjö ár séu liðin frá fjár­mála­hrun­inu þá eiga stóru við­skipta­bank­arnir þrír, Íslands­banki, Arion banki og Lands­bank­inn, enn tutt­ugu fyr­ir­tæki í óskyldum rekstri. Samkvæmt lögum er bönk­unum aðeins heim­ilt að stunda aðra starf­semi tíma­bundið en það er í höndum Fjár­mála­eft­ir­lits­ins að veita tíma­bundna tólf mán­aða und­an­þágu­heim­ild fyrir eign­ar­hald­inu. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag þar sem birtur er listi yfir þau félög sem bank­arnir þrír eiga enn að meira en 10 pró­sent hluta eða öllu leyti. Flestar eign­irnar eru á vef­síðum bank­anna sagðar til sölu. Listann má sjá hér að neðan.

Arion banki

Landey ehf. (nýbygg­ingar/lóðir) 100%


BG12 slhf. (Bakkavör Group Ltd.) 62%


Farice (Tveir sæstrengir) 39,3%


Síminn hf. 38,3%


Klakki ehf. (Lýsing/Bakkavör) 31,8%


EAB1 ehf. (Refresco Gerber) 30%


Stoðir hf. (Refresco Gerber) 16,3%


SV IV slhf. (Skelj­ungur/PF Magn) 12,91%

Landsbankinn

Iceland Construction hf. (áður Ístak) 100%


Fast­eigna­fé­lagið Borg ehf. 31,25%


Hest­hólar ehf. (fast­eigna­fé­lag) 26,4%


Eyrir Invest hf. (fjár­fest­inga­fé­lag) 23,3%


Slát­ur­fé­lag Suð­ur­lands svf. 20,76%


Stoðir hf. (fjár­fest­inga­fé­lag) 13,4%

Íslandsbanki

Manstron Properties Ltd. (fast­eign í Bret­landi) 100%


Geysir General Partner ehf. 100%


Geysir Green Invest­ment Fund slhf. 100%


Fergin (Frum­herji) 80%


Frumtak GP ehf (rekstr­ar­að­ili Frumtaks) 19%


Nýr Norð­ur­turn (Norð­ur­turn í Kópavogi) 11,85%


Í umfjöllun Morg­un­blaðs­ins er rætt við Daða Krist­jáns­son, fram­kvæmda­stjóra H.F. Verð­bréfa. Hann segir að það sé í raun óþol­andi hversu lítið sé ýtt á að bank­arnir losi sig við eignir sem eru í óskyldum rekstri. „Þeir hafa verið á und­an­þágu í mörg ár. Það er eins og menn séu að nýta sér þetta til hins ýtrasta,“ segir hann. Hann segir einnig það ekki vera hlut­verk banka að liggja á stórum eign­ar­hlutum í félögum að ástæðu­lausu. „Í mínum huga virð­ist sem hags­mun­irnir snú­ist helst um að búa til þókn­ana­tekjur hjá bönk­unum. Þeir hafa fengið mörg góð til­boð í þessa hluti sem hafa ekki verið sam­þykkt. það lítur því út fyrir að þeir hafi verið að bíða eftir tæki­fær­inu til að skrá sjálfir hlut­ina á markað.“ Þetta myndi ábyggi­lega ekki leyfast í nángranna­löndum, segir Daði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár