Katrín: Þeir sem afneita loftslagsbreytingum fá nú meira rými

For­sæt­is­ráð­herra Íslands hélt ræðu við setn­ingu Norð­ur­landa­ráðs­þings sem nú stendur yfir í Stokk­hólmi í Svíþjóð. Þema umræð­unnar hjá nor­rænu ráð­herr­unum var: Hvernig getur nor­ræna sam­fé­lags­líkanið þróað og stuðlað að sjálf­bærum umskiptum?

Katrín Jakobsdóttir
Katrín Jak­obs­dóttir Mynd: norden.org/Magnus Fröderberg

„Það er ekki síst vegna bar­áttu gras­rót­ar­hreyf­inga, ung­menn­anna sem hafa staðið vakt­ina í lofts­lags­verk­föllum, umhverf­is­vernd­ar­sam­taka og vís­inda­manna, að lofts­lags­málin eru orðin hluti af meg­in­straumi stjórn­mál­anna. Sá árangur sýnir okkur að lýð­ræð­is­leg umræða skilar árangri.“ Þetta sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra við setn­ingu Norð­ur­landa­ráðs­þings í þing­húsi Sví­þjóðar í Stokk­hólmi í dag.

Á sama tíma hefðu þeir sem afneita lofts­lags­breyt­ingum líka fengið meira rými í umræð­unni. Slíkt væri eðli lýð­ræð­is­ins – and­stæð sjón­ar­mið tækjust á. Það lægi enn meiri ábyrgð á herðar þeirra stjórn­mála­manna sem vildu fylgja vís­indum og byggja ákvarð­anir á rann­sóknum og gögnum. Þó að þar ljósti oft saman ólíkum skoð­unum þá fengjust bestu nið­ur­stöð­urnar með lýð­ræð­is­legum hætti „vegna þess að það er besta stjórn­ar­form sem við eigum.“

Neysluvenjur verða að breytast

Norð­ur­landa­ráðs­þingið er haldið í 71. skiptið og mun standa til 31. októ­ber næst­kom­andi. Þá safn­ast stjórn­mála­fólk frá öllum Norð­ur­lönd­unum saman. Lofts­lags­mál, sjálf­bærni og þátt­taka ungs fólks er meðal ann­ars á dag­skrá. 87 þing­menn Norð­ur­landa­ráðs koma saman, sem og fjöl­margir ráð­herrar, þar á meðal for­sæt­is­ráð­herr­arnir.

Norrænu for­sæt­is­ráð­herr­arnir lögðu allir mikla áherslu á lofts­lags­mál í máli sínu. Meðal ann­ars var bent á að mik­il­vægt væri að berj­ast fyrir hreinum sjó, að stjórn­mála­menn yrðu að taka hug­rakkar ákvarð­anir og að lofts­lags­mál væru flókið verk­efni. Neyslu­venjur yrðu að breyt­ast en það yrði þó ekki ein­falt.

„Þurfum að þora meira lýðræði“

Katrín byrj­aði á því að þakka þing­inu fyrir að setja á dag­skrá spurn­ing­una um hlut­verk gras­rót­ar­hreyf­inga, stjórn­mála­flokka og frjálsra félaga­sam­taka í bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ingum – hvernig þau tækjust á við mik­il­væg­asta verk­efni sam­tím­ans, lofts­lags­vána með leik­reglum lýð­ræð­is­ins.

Hún vís­aði í orð Willy Brandt sem sagði á sínum tíma að við þyrftum að „þora meira lýð­ræði.“ Þar hefði hann ekki síst átt við sam­tal stjórn­valda við frjáls félaga­sam­tök og hags­muna­hópa. Lýðræði fælist líka í því að hlusta og setja sig inn í sjón­ar­mið þeirra sem séu manni ósam­mála.

Aðgerðir gegn loftslagsvánni verða að vera réttlátar

„Vestræn sam­fé­lög standa frammi fyrir grund­vall­ar­um­breyt­ingu. Til að ná henni fram þarf að breyta efna­hags­legum og sam­fé­lags­legum stjórn­tækjum. Það þarf að skapa hvata og breyta skatt­lagn­ingu þannig að hún þjóni mark­miðum í lofts­lags­málum. Það þarf að tryggja að líf­eyr­is­sjóðir og sjóðir hins opin­bera fjár­festi í grænum skulda­bréfum. Það þarf að vinna gegn sóun með þeim stjórn­tækjum sem við eigum og tryggja að hag­kerfið ýti undir eðli­lega hringrás.

Á sama tíma þurfa aðgerðir okkar gegn lofts­lags­vánni að vera rétt­látar. Við þurfum að huga að vel­sæld fólks­ins á sama tíma og við drögum úr losun. Góðu frétt­irnar eru að þetta tvennt fer saman,“ sagði Katrín.

Hún sagði enn fremur að ákvörðun íslenskra stjórn­valda um að lengja fæð­ing­ar­or­lof og auka þannig lífs­gæði barna­fólks myndi vafa­lítið draga úr skutli bæjar­enda á milli sem drægi úr losun og yki dýr­mætan sam­veru­tíma. Það sama mætti segja um ákvörðun stjórn­valda um að lækka álögur á raf­hjól. Ákvörðun sem gæti dregið úr losun og bætt loft­gæði og einnig bætt heilsu þeirra sem velja þennan ferða­máta.

Þurfa að sýna þetta í verki

„Fjár­fest­ing í menntun, rann­sóknum og nýsköpun hjálpar okkur að finna nýjar leiðir til að takast á við lofts­lags­vána, draga úr losun og auka við­náms­þrótt sam­fé­lag­anna til að takast á við óum­flýj­an­legar breyt­ingar. Um leið eflum við sam­keppn­is­hæfni okkar.

Stjórn­mála­flokkar og stjórn­mála­menn þurfa að sýna í verki að við erum reiðu­búin að takast á við áskor­un­ina um sjálf­bært sam­fé­lag. Við þurfum að vera reiðu­búin að taka djarfar ákvarð­anir sem þjóna almanna­hags­munum og þjóna fram­tíð­inni. En þessar ákvarð­anir þurfa að vera teknar með lýð­ræð­is­legum hætti svo við stöndum öll saman að þess­ari umbreyt­ingu,“ sagði ráð­herr­ann.

Um leið þyrftu stjórn­málin að vera með­vituð um að ábyrgðin á lofts­lags­að­gerðum verði ekki ein­göngu lögð á herðar ein­stak­ling­anna.

Tuttugu jarð­efna­elds­neyt­is­fram­leið­endur bæru sam­an­lagða ábyrgð á rúm­lega þriðj­ungi alls útblást­urs í heim­inum. Tólf þeirra væru í rík­i­s­eigu. Stór­fyr­ir­tækin yrðu að axla ábyrgð á sínum hlut í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Hún sagði jafn­framt að stjórn­mála­menn og stjórn­mála­flokkar þyrftu að tryggja að stór­fyr­ir­tækin öxl­uðu þá ábyrgð sem þau bera – rétt eins og stjórn­völd þyrftu að axla sína ábyrgð. Þá væri hægt að tala um ábyrgð almenn­ings.

Framtíðin kallar á okkur að gera betur

„Ísland hefur í ár gegnt for­mennsku í Norrænu ráð­herra­nefnd­inni. Það hefur verið heiður og ánægja að stýra skút­unni um stund.

Ísland er minnst af þeim stóru en við erum líka stærst af þeim litlu. Þannig höfum við á for­mennsku­ár­inu lagt okkur fram um að efla enn frekar sam­vinn­una við Álandseyjar, Færeyjar og Grænland, og ég held að það hafi tek­ist ágæt­lega.

Í sumar ákváðum við að setja Norrænu ráð­herra­nefnd­inni nýja fram­tíð­ar­sýn; sum Norð­ur­löndin sem sjálf­bærasta og sam­þættasta svæði í heimi árið 2030.

Norð­ur­löndin hafa sýnt að þau geta með sam­vinnu náð miklu meiri árangri en sitt í hvoru lagi. Nú kalla lofts­lags­málin á okkur. Fram­tíðin kallar á okkur að gera betur. Að þora. Ég hlakka til umræð­unnar hér á eftir,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár