Björgólfur Thor tekur stökk á milljarðamæringalistanum - er eini Íslendingurinn

Millj­arða­mær­ingar heims­ins hafa aldrei verið fleiri sam­kvæmt nýj­ustu úttekt Forbes. Bill Gates er enn og aftur rík­astur og Björgólfur Thor Björg­ólfs­son er enn sem aftur eini Íslend­ing­ur­inn sem kom­ist hefur á list­ann.

Björgólfur Thor Björg­ólfs­son fjár­festir tekur stökk á lista Forbes yfir millj­arða­mær­inga heims­ins á milli ára. Í fyrra var Björgólfur Thor í 1.415 sæti en er nú í 1.116 sæti á list­anum með eignir upp á 1,8 millj­arð dala. Það þýðir að auður Björg­ólfs Thors er met­inn á 186,3 millj­arða króna.

Björgólfur Thor er eini Íslend­ing­ur­inn á list­an­um, og reyndar eini Íslend­ing­ur­inn sem hefur nokkru sinni kom­ist á hann.

Ríkasti maður heims sam­kvæmt Forbes er Bill Gates, stofn­andi Microsoft. Þetta er í 17 sinn á síð­ustu 21 árum sem hann vermir topp­sæt­ið. Heild­ar­eignir hans eru metnar á 86 millj­arða dala, eða um 8.900 millj­arða króna. Warren Buffett, véfréttin frá Omaha, situr í öðru sæti og Jeff Bezoz, stofn­andi Amazon, er í því þriðja.

Fjöldi millj­arða­mær­inga náði nýjum hæðum í ár og í fyrsta sinn frá því að Forbes hóf að taka list­ann um þá sem eiga meira en einn millj­arð dali saman er fjöld­inn yfir 2000. Í fyrra fjölg­aði millj­arða­mær­ing­unum um 13 pró­sent, úr 1.810 í 2.043.

Var einu sinni í 249. sæti

Í águst 2014 var til­kynnt að skulda­upp­gjöri Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar væri lokið og að hann hefði greitt kröfu­höfum sín­um, að mestu stórum alþjóð­legum bönk­um, sam­tals um 1.200 millj­arða króna. Þessi upp­gjör tryggði honum mik­inn auð þar sem hann fékk að halda góðum eign­ar­hluta í Act­a­vis að því loknu. Sá eign­ar­hluti hefur gert Björgólf Thor ævin­týra­lega ríkan á ný.

Árið 2007 var Björgólfur Thor Björg­ólfs­son í 249. sæti yfir rík­ustu menn ver­aldar á lista tíma­rits­ins For­bes. Ári síð­ar, eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins, stóð hann frammi fyrir tveimur kost­um. Annað hvort að verða per­sónu­lega gjald­þrota og láta það verk­efni í hendur kröfu­hafa sinna að vinna sem mest verð­mæti úr eignum hans. Eða að vinna með þeim, leggja allar eignir sínar á borð­ið, bæði per­sónu­legar eignir og eignir félaga í hans eigu, og reyna að ná sam­komu­lagi sem kæmi í veg fyrir hans per­sónu­lega gjald­þrot. Eftir hrunið lá fyrir að Björgólfur Thor var í per­sónu­legum ábyrgðum vegna skulda sem námu minnst 40 millj­örðum króna.

Skömmu eftir hrun hófust við­ræður milli Björg­ólfs Thors og trún­að­ar­manna hans, og síðar full­trúa lán­ar­drottna sem áttu kröfu á Björgólf Thor og félög hans.

Á end­anum var lagt upp með að reyna að sam­eina Act­a­vis öðru stóru sam­heita­lyfja­fyr­ir­tæki og svo gengið frá und­ir­rit­uðu sam­komu­lagi milli Björg­ólfs Thors og Novators og allra lán­ar­drottna og þeirra sem áttu kröfu á hann.

Til­kynnt um skulda­upp­gjör

Um þetta til­kynnti Björgólfur Thor með frétta­til­kynn­ingu 21. júlí 2010. Í henni sagði meðal ann­ars: „Sam­kvæmt sam­komu­lag­inu [við kröfu­hafa] munu skuldir verða gerðar upp að fullu og ekki gefnar eft­ir. Allar eignir Björg­ólfs Thors og Novators liggja til grund­vallar upp­gjör­inu, en á þeim var gerð ítar­leg úttekt og mat af hálfu alþjóð­legs ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæk­is. Björgólfur Thor verður áfram hlut­hafi í félögum á borð við Act­a­vis, Play, CCP og Verne Hold­ing. Arð­ur­inn af þessum eign­ar­hlutum og verð­mæti, komi til sölu þeirra, mun ganga til upp­gjörs skuld­anna, ásamt ýmsum per­sónu­legum eigum hans. Þar á meðal eru hús­eign í Reykja­vík og sum­ar­hús við Þing­velli. Sam­hliða þessu skulda­upp­gjöri hefur náðst sam­komu­lag um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Act­a­v­is. Við gerð sam­komu­lags­ins nutu Björgólfur Thor og Novator lið­sinnis tveggja alþjóð­legra fyr­ir­tækja, hinnar virtu lög­manns­stofu Linkla­ters og ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Alix­Partners, sem er eitt þekktasta fyr­ir­tæki heims á sviði fjár­hags­legrar end­ur­skipu­lagn­ing­ar“.

Eftir að sam­komu­lagi hafði verið náð þar sem allir sem áttu hags­muna að gæta komu að borð­inu var vinnu haldið áfram. Í sam­komu­lag­inu fólst meðal ann­ars að Deutsche Bank, stærsti kröfu­hafi Björg­ólfs Thors, réði ferð­inni þegar kom að Act­a­vis en skuld­batt sig til að vinna úr stöðu mála með Björgólfi Thor og Novator. Með sam­komu­lag­inu varð form­lega ljóst að Björgólfur Thor yrði ekki gerður per­sónu­lega gjald­þrota.

Björgólfur verður rík­ur…aftur

Í apríl 2012 dró til tíð­inda. Þá var til­kynnt um yfir­töku lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Watson á Act­a­v­is. Sam­tals voru greiddar um 700 millj­arðar króna fyrir félagið en til við­bótar áttu að koma greiðslur sem tóku mið af því hvernig rekstur Act­a­vis var árið 2012 sam­kvæmt upp­gjöri. Hagur Björg­ólfs Thors og Novator vænk­að­ist við þetta en í þeirra hlut komu fimm millj­ónir hluta í hinu nýja félagi á grund­velli samn­ings við Deutsche Bank sem gerður var sam­hliða kaupum Watson. Eftir að til­kynnt var um kaup Watson á Act­a­vis, og þar með sam­ein­ingu þess­ara félaga, hefur mark­aðsvirði þess hækkað hratt. Það er skráð á markað undir nafni Act­a­vis og hækk­aði gengi bréfa á hlut úr tæp­lega 60 dölum frá því til­kynnt var um kaupin í 127,2 dali þann 22. maí 2013, ríf­lega ári síð­ar. Þetta þýddi að hlutur Björg­ólfs í Act­a­vis í gegnum Novator var á milli 70 og 80 millj­arða króna virði á þeim tíma.

Um miðjan maí 2013 var síðan til­kynnt um enn meiri stækkun á efna­hags­reikn­ingi Act­a­vis þegar greint var frá kaupum félags­ins á írska lyfja­fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­inu Warner Chilcott. Sam­kvæmt fyrstu fréttum AFP-frétta­veit­unnar var kaup­verðið áætlað um 8,5 millj­arða dala, sem jafn­gilti um 1.100 millj­örðum króna, miðað við gengi krónu gagn­vart Banda­ríkja­dal dag­inn sem til­kynnt var um við­skipt­in.

Allt var und­ir, líka einka­þotan og snekkjan

Allt eigna­safn Björg­ólfs Thors og félaga sem hann tengd­ist var sett að veði fyrir því að honum tæk­ist að greiða skuldir sínar til baka. Stein­grá einka­þota hans af Chal­len­ger-­gerð, sem merkt var Novator, var þar á með­al. Hún var oft í kast­ljósi fjöl­miðla þegar allt var í blóma í íslensku við­skipta­lífi. Fyrr­ver­andi leið­togi Sov­ét­ríkj­anna, Mik­hail Gor­bat­sjov, fékk meðal ann­ars far með henni þegar hann kom hingað til lands 11. októ­ber 2006 til að halda fyr­ir­lestur í Háskóla­bíói. Hún var að lokum seld. Það sama átti við um snekkj­una Elem­ent sem var bátur af dýr­ari gerð­inni, svo ekki sé fastar að orði kveð­ið.

Upp­haf­lega var gert ráð fyrir því að nið­ur­staðan úr upp­gjöri Björg­ólfs Thor­s og Novator við kröfu­hafa myndi ekki liggja fyrir fyrr en fjar­skipta­fyr­ir­tækið Play í Pól­landi yrði selt. Það er á meðal stærstu far­síma­fyr­ir­tækja Pól­lands en við­skipta­vinir þess voru á vor­mán­uðum 2013 ríf­lega 9,1 milljón tals­ins.

Tilkynnt var um það sum­arið 2017 að Novator, fjár­fest­inga­fé­lag Björg­ólfs Thors, ætl­aði að selja tæp­lega helm­ings­hlut í Play, sem þá var metið á 261 millj­arð króna.

Björgólfur Thor gaf árið 2015 út bók um fall sitt og end­ur­komu. Kjarn­inn birti umfjöllun um bók­ina skömmu eftir að hún kom út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár