Trúði ekki að hjólandi Dagur væri borgarstjóri

Yfir­maður örygg­is­mála vegna heim­sóknar Mike Pence í Höfða trúði því ekki að Dagur B. Egg­erts­son væri borg­ar­stjór­inn í Reykja­vík. Vegna þess að hann var á hjóli.

Yfir­maður örygg­is­mála við Höfða þrí­spurði starfs­mann sendi­ráðs Banda­ríkj­anna hvort að Dagur B. Egg­erts­son væri virki­lega borg­ar­stjór­inn í Reykja­vík þegar Dagur kom í Höfða í dag til að vera við­staddur fund með Mike Pence, vara­for­seta Banda­ríkj­anna.

[links]Ástæðan fyrir því að yfir­mað­ur­inn trúði ekki að Dagur gæti verið borg­ar­stjóri var sú að Dagur var hjólandi. „Ég hef aldrei hitt borg­ar­stjóra á hjóli áður,“ sagði yfir­mað­ur­inn á ensku við borg­ar­stjór­ann.

Dagur greinir frá þessu á Twitter. Þar segir hann að eðli­legt svar við orðum yfir­manns­ins væru að allt væri ein­hvern tím­ann fyrst (e. first time for everyt­hing“).

Gríð­ar­legar örygg­is­ráð­staf­anir eru vegna heim­sóknar Pence til Íslands. Hátt í 300 manns eru í fylgdar- og örygg­is­liði for­set­ans og eru leyniskyttur meðal ann­ars stað­settar upp á höf­uð­stöðvum Arion banka, sem stað­settar eru við hlið Höfða.

Þá var fjöl­mörgum götum lokað í höf­uð­borg­inni á meðan að á dvöl Pence stendur, en hann lenti skömmu fyrir klukkan eitt síð­degis og flýgur aftur af landi brott síðar í dag.

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, tók á móti Pence í Höfða í dag um tvöleytið síð­degis. Í kjöl­farið tók hann þátt í umræðum um við­skipta- og fjár­festa­tengsl Íslands og Banda­ríkj­anna þar sem ýmsir full­trúar úr íslensku atvinnu­lífi og stjórn­sýslu ræddu við Pence og fylgd­ar­lið hans, ásamt Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni utan­rík­is­ráð­herra.

Pence mun síðar í dag taka þátt í umræðum um örygg­is­mál á gamla her­svæð­inu í Keflavík og hitta Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra þar á stuttum fundi sem áætlað er að hefj­ist rétt fyrir klukkan 18:45.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár