Sænsk stjórnvöld neita líka að afhenda lista með nöfnum fyrirtækja sem nota hlutabótaleiðina

Vinnu­mála­stofnun Sví­þjóðar, Tillväxt­verket, neitar að afhenda lista með nöfnum fyr­ir­tækja sem farið hafa hluta­bóta­leið­ina. Vinnu­mála­stofnun Íslands komst að sömu nið­ur­stöðu.

Báðar segja nei
Báðar segja nei Bæði íslenska og sænska vinnu­mála­stofn­unin segja nei við beiðnum um að afhenda lista með nöfnum fyr­ir­tækja sem farið hafa hluta­bóta­leið­ina. Unnur Sverr­is­dóttir er for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar. Mynd: Lögreglan

Sænska vinnu­mála­stofn­unin Tillväxt­verket segir að hún geti ekki afhent Stund­inni list­ann með nöfnum allra þeirra fyr­ir­tækja sem farið hafa hluta­bóta­leið­ina í COVID-19 far­aldr­inum þar í landi. Í svari til Stund­ar­innar þar sem beiðni mið­ils­ins um þennan lista er hafnað er vísað til per­sónu­vernd­ar­sjón­ar­miða fyrir synj­un­inni og er vísað í þar­lend lög um hluta­bóta­leið­ina sem lög­fest voru árið 2013. Bæði er vísað til lögvar­inna hags­muna ein­stak­ling­anna sem vinna hjá fyr­ir­tækj­unum sem sækja um hluta­bóta­leið­ina og eins hags­muna þeirra fyr­ir­tækja sem um ræðir. 

Ráð­herrar í rík­is­stjórn Íslands, til að mynda Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra, hafa kallað eftir því að þessi listi verði birtur í kjöl­farið á umfjöll­unum um ein­stök fyr­ir­tæki sem nýtt hafa hluta­bóta­leið­ina. 

Þessi nið­ur­staða sænsku stofn­un­ar­innar er sam­hljóða bráða­birgða­nið­ur­stöðu Vinnu­mála­stofn­unar sem hefur hafnað beiðnum fjöl­miðla um að fá lista með nöfnum allra fyr­ir­tækja sem hafa nýtt þetta úrræði.

Í yfir­lýs­ingu á föstu­dag­inn í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hlutabótaleiðin

Fréttir

Guð­laugur Þór hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umfjöll­unar um hags­muna­tengsl við Bláa Lónið

Utan­rík­is­ráð­herra er eini ráð­herr­ann sem hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umræðna um efna­hags­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna Covid-19. Fjöl­skylda Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra á einnig ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem hefur nýtt sér úrræði stjórn­valda vegna Covid-19.
FréttirHlutabótaleiðin

Mat­væla­fyr­ir­tæki með eign­ar­haldi í skatta­skjóli nýtti hluta­bóta­leið­ina

Mat­væla­fyr­ir­tækiið Mata, sem er eígu eign­ar­halds­fé­lags­fé­lags á lág­skatta­svæð­inu Möltu sem sagt er hafa öll ein­kenni skatta­skjóls, setti 20 starfs­menn á hluta­bóta­leið­ina. Fram­kvæmda­stjór­inn, Eggert Árni Gíslason vill ekki ræða um eign­ar­haldið á Möltu en segir að engin skil­yrði vegna eign­ar­halds hafi verið á notkun hluta­bóta­leið­ar­innar.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár