Enn trekkir sagnaheimur Stephen King að

Á meðan Konungur hroll­vekj­unnar fagnar sjö­tugs­af­mæli gengur sagan hans um trúð­inn sem nær­ist á ótta barna í end­ur­nýjun líf­daga.

Bill Skarsgård í hlutverki Pennywise í It (2017).
Bill Skars­gård í hlut­verki Pennywise í It (2017). Mynd: Imdb

Rit­höf­und­ur­inn Stephen King átti stóraf­mæli á dög­unum en hann varð sjö­tugur þann 21. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Fáir rit­höf­undar hafa átt jafn mik­illi vel­gengni að fagna en hann hefur gert það sem flesta rit­höf­unda dreymir um.

Hann er sölu­hæsti rit­höf­undur sög­unnar en hann hefur skrifað fimm­tíu og fjórar skáld­sögur, hátt í tvö­hund­ruð smá­sögur og fleiri verk sem ekki eru skáld­verk. Sögur hans hafa tugum saman ratað á hvíta tjaldið og í sjón­varp og hafa fáir náð slíkum árangri. Hann hefur einnig unnið til fjölda verð­launa og verið titl­aður Konungur hroll­verkj­unnar.

It holdgervingur hræðslunnar

Með vin­sældum kvik­mynd­ar­innar It og þátt­anna Strange Things sem byggir að ein­hverju leyti á frá­sagn­ar­hefð King þá minnir hann enn og aftur á að hann eigi erindi til les­enda úti um allan heim. Þannig eru sögur hans end­ur­skap­aðar fyrir hverja kyn­slóð á fætur annarri.

Kvik­myndin It um skelfi­lega trúð­inn er búin að slá 44 ára gam­alt met kvik­mynd­ar­innar The Exorcist en hún fór yfir 500 millj­óna doll­ara múr­inn í lok sept­em­ber á heims­vísu. Það jafn­gildir 52 millj­örðum króna en óvenju­legt þykir að hryll­ings­mynd eigi slíkri vel­gengni að fagna. Sagan fjallar um trúð sem hræðir börn og nær­ist á ótta þeirra. Hún ger­ist á tveimur tíma­bilum og fjallar nýja kvik­myndin um það fyrra. Fram­haldið um það síð­ara er vænt­an­legt í sept­em­ber 2019.

Upp­runa­lega sagan kom út árið 1986 en þá hafði King gefið út alls 21 bók og var gerð sjón­varps­mynd í tveimur hlutum fjórum árum seinna þar sem Tim Curry fór með aðal­hlut­verkið sem trúð­ur­inn Pennywise. Margir eiga eflaust minn­ingar af þessum þáttum og er ímynd hrylli­lega trúðs­ins hold­gerv­ingur hræðsl­unnar í popp­menn­ing­unni.

Nýjasta sagan skrifuð með syninum

Frá­sagnir King og sögur hafa alltaf verið vin­sælar en svo virð­ist sem hann nái að fanga huga og hjarta les­enda sinna enn og aftur. Hann er frægur fyrir að skrifa sögu­per­sónur sem virð­ast ljós­lif­andi les­endum. Hann skrifar mikið um börn og nær með natni inn í hug­ar­heim þeirra.

Síðasta skáld­saga hans kom út í lok sept­em­ber síð­ast­lið­inn og nefn­ist hún Sleeping Beauties en hann skrif­aði hana með syni sínum, Owen King. Owen átti hug­mynd­ina af sögu­þræð­inum og sagði King hana vera of góða til að láta fram hjá sér fara. Sagan fjallar um hjón í smábæ í Banda­ríkj­unum sem þurfa að takast á við ein­kenni­legan far­aldur þar sem konur sofna djúpum svefni og leggj­ast í hýði.

King segir sjálfur að mark­miðið hafi verið að fólk myndi ekki sjá hver skrif­aði hvaða kafla. Mik­il­vægt væri að hún hefði sína eigin rödd. Bókinni hefur verið vel tekið af gagn­rýnendum en ennþá er of snemmt að segja til um vel­gengni hennar.

Eiginkonan helsti samstarfsmaður hans

Stephen Edwin King fædd­ist í bænum Portland í Maine-fylki árið 1947. For­eldrar hans voru Donald Edwin King og Nellie Ruth en faðir hans yfir­gaf fjöl­skyld­una þegar King var aðeins tveggja ára gam­all. Móðir hans ól hann og systk­ini hans upp. Hann byrj­aði ungur að skrifa og þegar hann var í mið­skóla þá gaf hann út sögur og smá­sögur. Hann gaf fyrstu smá­sög­una út árið 1967 og ber hún heitið The Glass Floor.

Hann útskrif­að­ist frá Háskól­anum í Maine með B.A.-gráðu í ensku 23 ára að aldri. Hann reyndi að fá starf sem kenn­ari en brösu­lega gekk að fá ráðn­ingu. Hann skrif­aði sögur og gaf út efni þangað til hann fékk kenn­ara­stöðu í bænum Hampden. Hann hætti þó ekki að skrifa og und­ir­bjó skáld­sögur og gaf út smá­sögur í tíma­ritum.

Hann gift­ist Tabitha Jane King árið 1971 en þau kynnt­ust í háskóla og eiga þau þrjú upp­komin börn og fjögur barna­börn. Hún hefur skrifað átta skáld­sögur, smá­sögur og ljóð. Hún hefur verið King innan handar í skrifum hans, er óform­legur rit­stjóri hans og alltaf fyrsta mann­eskjan til að lesa hand­ritin.

Óánægður með The Shining

Fyrsta skáldsagan hans, Carrie, kom út árið 1973 en eftir henni var gerð eft­ir­minni­leg kvik­mynd þremur árum seinna. Leik­stjórn var í höndum Brian De Palma og Sissy Spacek lék aðal­hlut­verkið. Sagan fjallar um feimna skóla­stelpu sem lögð er í ein­elti og á mjög trú­aða móður. Hún upp­götvar hjá sér yfir­skil­vit­lega hæfi­leika sem hefur hræði­legar afleið­ingar í för með sér. Kvik­myndin er löngu orðin klass­ísk og sagan með.

Minnst 66 kvik­myndir hafa verið gerðar eftir sögum Stephen King. Þær fræg­ustu eru lík­leg­ast The Shawshank Redemption frá 1994 með Morgan Freeman og Tim Robbins í aðal­hlut­verkum og The Shining frá 1980 með Jack Nicholson og Shelley Duvall í leik­stjórn Stanley Kubrick.

Frægt er orðið þegar King sagði útgáfu Kubrick ekki vera sér að skapi en hann sagði kvik­mynd­ina vera kalda. Í sögum hans sé ákveðin hlýja sem skil­aði sér alls ekki í kvik­mynd­ina. Hann segir að hann vilji að les­andi eða áhorf­andi sé með í upp­lifun­inni eða ferl­inu. Honum hafi ekki fund­ist Kubrick takast að ná til áhorf­enda á þann hátt. Hann hnýtir einnig í karakt­er­inn hennar Shelley Duvall og telur hann að hún hafi ein­ungis verið sett í kvik­mynd­ina til að öskra. Þannig er myndin lituð af kven­fyr­ir­litn­ingu, að hans mati.

Lífið gjörbreytt eftir bílslys

King lenti í bílslysi árið 1999 sem mark­aði djúp spor í líf hans. Hann var á gangi í bænum Lovell í Maine-fylki þegar bíll keyrði á hann svo að hann kastað­ist fjóra metra í burtu. Afleið­ing­arnar voru hrylli­legar: hægra lungað féll saman, hægri fótur brotn­aði á mörgum stöðum og fékk hann sár á höfði og mjaðma­brotn­aði. Hann var með með­vit­und þegar lög­regla og sjúkra­liðar komu á stað­inn en þjáð­ist mikið. Til stóð að taka af honum hægri fót­inn en komust læknar hjá því með því að fram­kvæma fimm aðgerðir á fæt­inum á tíu daga tíma­bili.

Eftir slysið átti King erfitt með að skrifa og ákvað þremur árum eftir það að hætta því alfarið. Hann gat illa setið og skrif­aði hægar en hann átti að venj­ast. Hann hætti þó ekki eins og til stóð og síðan þá hefur komið út fjöldi bóka.

Hann byrj­aði á Dark Tower-ser­í­unni 1971 með einni línu: „The man in black fled across the des­ert and the gunsl­in­ger followed.“ Hann kláraði fyrstu bók­ina ekki fyrr en 1986 og ser­í­una ekki fyrr en 2004, eftir þetta svæsna bílslys. Óhappið notar hann í einni bók ser­í­unnar en þar verður árekst­ur­inn höf­und­inum að hvata til að klára meist­ara­verk sitt.

Mundi ekki eftir að hafa skrifað Cujo

[quote font="0" align="right“]Ég vel að trúa því að Guð sé til, og þess vegna get ég sagt: „Guð, ég get ekki gert þetta sjálfur. Hjálpaðu mér að sleppa því að drekka í dag. Hjálpaðu mér að sleppa því að taka eit­ur­lyf í dag.[/quote]

King hefur glímt við alkó­hól­isma og fíkni­efna­vanda­mál til fjölda ára. Hann drakk mikið og neytti ýmissa efna, svo sem kóka­íns, maríjúana og lyf­seð­ils­skyldra lyfja. Neysla hans náði hápunkti á níunda ára­tugnum þar til fjöl­skylda hans greip inn í og hefur hann ekki bragðað áfengi síðan.

Hann greinir sjálfur frá því að hann hafi verið undir svo miklum áhrifum af kóka­íni þegar hann skrif­aði Cujo árið 1981 að hann mundi ekki eftir að hafa skrifað hand­ritið. Hann fann það seinna og kann­að­ist ekki við að hafa skrifað það. Cujo var kvik­mynduð tveimur árum síðar.

Í ljósi þess hversu margir af skúrk­unum í sögum King eru trú­ar­of­stæk­is­menn kemur það kannski sumum á óvart að trúin hafi hjálpað honum sjálfum að halda sér edrú. Hann segir frá því í við­tali við tíma­ritið Rolling Stone að hann sé trú­aður en líti þó svo á að trú­ar­brögð séu hættu­legt verk­færi sem sé mis­notað af fjölda fólks. „Ég vel að trúa því að Guð sé til, og þess vegna get ég sagt: „Guð, ég get ekki gert þetta sjálfur. Hjálpaðu mér að sleppa því að drekka í dag. Hjálpaðu mér að sleppa því að taka eit­ur­lyf í dag.“ Það virkar vel fyrir mig,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár