Bergmál fyrstu bylgjunnar skellur á Evrópu

Kunn­ug­leg orð eru farin að hljóma á ný: Útgöngu­bann. Fjar­vinna. Skólar lok­aðir. „Verið heima“. Í byrjun árs­ins sem marka mun loka­sprett­inn í bar­átt­unni við COVID-19 hafa mörg ríki enn einu sinni gripið til harðra aðgerða.

„Verið heima“ eru skila­boðin sem Bretar hafa nú fengið. Í þriðja sinn. Mjög strangar tak­mark­anir hafa tekið gildi í land­inu – þær ströng­ustu síðan í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins í mars. Skólar eru enn á ný lok­aðir flestum nem­endum og fólki er aðeins heim­ilt að fara út ef brýna nauð­syn ber til vegna vinnu sem ekki er hægt að inna af hendi innan veggja heim­il­is­ins. Einu sinni á dag er fólki heim­ilt að fara út til að hreyfa sig. Útgöngu­bannið mun standa í að minnsta kosti sex vikur. En stjórn­völd vilja ekki vekja of miklar vonir og segja að lík­lega muni þær standa fram í mars. Ástæðan er aug­ljós: Fjöldi fólks með COVID-19 sem hefur þurft að leggj­ast inn á spít­ala hefur náð nýjum og áður óséðum hæðum. Sjúkra­húsin ráða ein­fald­lega ekki við mikið meiri fjölda.

[adspot]

Víðar í Evrópu sem og ann­ars staðar í heim­inum er einnig verið að herða eða fram­lengja strangar tak­mark­anir sem þegar voru í gildi. Aðgerð­irnar eru sum staðar fyr­ir­byggj­andi en ann­ars staðar verður að segj­ast eins og er: Far­ald­ur­inn er kom­inn úr bönd­unum. Það á t.d. við um Los Angeles en þar hafa sjúkra­flutn­inga­menn verið beðnir að flytja ekki á sjúkra­húsin COVID-veika sem ekki tekst að lífga við á 20 mín­útum. Skila­boðin eru ógn­vekj­andi. En sjúkra­húsin eru yfir­full og súr­efni sem gefið er fólki í andnauð af skornum skammti.

Í gær greind­ist svo met­fjöldi með kór­ónu­veiruna í Japan, svo dæmi sé tekið, og íhuga stjórn­völd að lýsa yfir neyð­ar­á­standi í Tókýó og næsta nágrenni.

Ítalir eyddu jólum og ára­mótum í skugga strangra sam­komu­tak­mark­ana og máttu nær aðeins yfir­gefa heim­ili sín til að fara til vinnu, til læknis eða í öðrum neyð­ar­til­vikum. Margir voru því skilj­an­lega að bíða eftir að til­slak­anir yrðu gerða á fimmtu­dag líkt og stefnt hafði verið að. Á fundi rík­is­stjórn­ar­innar, sem stóð langt fram á gær­kvöldið, var ákveðið að setja aftur á „þriggja stiga kerfið“ sem felur í sér að hægt er að beita mis­mun­andi tak­mörk­unum á ólíkum svæðum. Allir barir og veit­inga­staðir á Ítalíu verða lok­aðir um helg­ina og fólk á ekki að ferð­ast að nauð­synja­lausu milli bæja og borga. Þá var ákveðið að fresta fyr­ir­hug­aðri opnun mennta­skóla um að minnsta kosti nokkra daga og jafn­vel vikur.

Ítalir áttu í miklu basli með að hefta útbreiðslu far­ald­urs­ins um miðjan nóv­em­ber en þá greindust um 40 þús­und til­felli á dag. Núna eru þau í kringum 20 þús­und dag­lega. En smit­stuð­ull­inn er sveiflu­kenndur og hund­ruð manna deyja dag­lega vegna COVID-19.

Stjórn­völd í Aust­ur­ríki hafa ákveðið að fram­lengja sam­komu­tak­mark­anir sem verið hafa í gildi síð­ustu vikur þar til 24. jan­úar. Margar versl­anir, veit­inga­staðir og barir þurfa því áfram að hafa lokað. Til stóð að aflétta tak­mörk­unum um miðjan jan­úar en nú þykir það ekki lengur óhætt. Í byrjun des­em­ber hafði skref í átt að aflétt­ingu verið stigið en um jólin þurfti að herða á að nýju.

Útgöngu­bann frá klukkan átta á kvöldin og til 6 á morgn­ana var sett á í borgum og bæjum Frakk­lands um ára­mótin. Utan þess tíma má fólk fara til og frá vinnu ef ekki er hægt að vinna heima og til að viðra gælu­dýrin sín svo dæmi séu tekin.

Í Þýska­landi verða aðgerðir fram­lengdar til 31. jan­úar. Aðgerðir þar í landi voru hertar í des­em­ber er smitum tók að fjölda. Versl­anir eru flestar lok­aðar en mat­vöru- og lyfja­versl­anir mega hafa opið. Þá hafa skólar verið lok­aðir síð­ustu vikur. Heil­brigð­is­ráð­herr­ann Jens Spahn sagði í við­tali um helg­ina að hann vildi sjá dag­legan fjölda smita fara veru­lega niður áður en að aðgerðum yrði aflétt.

Á Norð­ur­lönd­unum eru einnig í gildi strangar tak­mark­anir. Við þekkjum stöð­una hér á landi, aðeins tíu mega koma saman, en Danir hafa nú tekið ákvörðun um að ganga skref­inu lengra. Frá og með gær­deg­inum mega aðeins fimm koma saman í stað tíu. Þar í landi sem og víðar ótt­ast menn hið svo­kall­aða breska afbrigði veirunnar sem talið er vera meira smit­andi en flest önnur. Í Danmörku hafa nokkrir tugir manna greinst með þennan stofn veirunnar. Næstu dagar og vikur verða svip­aðar fyrir Dani og þegar far­ald­ur­inn braust fyrst út í Evrópu fyrir rúm­lega ári. Þá var það einnig Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur, sem stóð á blaða­manna­fundi og til­kynnti for­dæma­lausar aðgerðir og lokun landamæra. Slíkt þótti næstum óhugs­andi. En nú er þetta orðið kunn­ug­legt.

Ástandið á sænskum sjúkra­hús fer versn­andi. Á fyrstu fimm dögum árs­ins lét­ust 258 vegna COVID-19. 378 eru á gjör­gæslu­deildum. Í gær höfðu 8.985 lát­ist vegna sjúk­dóms­ins frá upp­hafi far­ald­urs­ins. Þrettán til­felli af breska afbrigði veirunnar hafa greinst í Svíþjóð.

Sænsk stjórn­völd settu í lok des­em­ber á ferða­bann frá Bret­landi og Danmörku vegna hins breska afbrigðis veirunnar. Sænskir rík­is­borg­arar geta ferð­ast frá þessum löndum og til Sví­þjóðar en aðrir ekki. Aðeins átta mega koma saman í Svíþjóð en þær tak­mark­anir ná þó ekki til skóla, vinnu­staða og veit­inga­húsa svo dæmi séu tekin.

[adspot]

Þeir sem ferð­ast til Noregs þurfa nú að fara í sýna­töku við kom­una til lands­ins. Nýjar reglur hvað það varðar tóku gildi í vik­unni. Norðmenn ætla ekki að tefla árangri sínum í bar­átt­unni við kór­ónu­veiruna hingað til í tví­sýnu og hafa yfir­völd hvatt til að lands­menn taki sér hlé frá félags­lífi næstu dag­ana eða til að minnsta kosti 18. jan­úar. Aðeins fimm mega koma saman.

Biðin eftir bólu­efni gæti dreg­ist á lang­inn. Belgar verða nú að sætta sig við að fá helm­ingi minna af bólu­efni Pfizer en þeir höfðu talið sig geta fengið í fyrsta skammti. Sama stað­reynd blasti við okkur Íslend­ingum fyrir nokkrum vikum. Í til­kynn­ingu frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu í gær kom fram að gengið sé út frá því að bólu­efni Moderna hljóti náð fyrir augum sér­fræð­inga Evrópsku lyfja­stofn­un­ar­innar í dag. Samkvæmt samn­ingum munu Íslend­ingar fá 5.000 skammta af því bólu­efni í jan­úar og febr­úar og eftir það mun afhend­ingin verða hrað­ari.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í fyrra­dag að jafn­vel myndi bólu­setn­ing ganga hraðar fyrir sig hér á landi en útlit var fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár